Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja þær takmarkanir á samkomum og skólahaldi sem áttu að falla úr gildi 13. apríl næstkomandi fram til 4. maí. Ákvörðunin er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Þótt vel hafi gengið að halda útbreiðslu smita í skefjum veldur áhyggjum hve alvarlega veikum einstaklingum sem þurfa á gjörgæslu að halda hefur fjölgað hratt. Ljóst er að frekari …
Frá sveitarstjóra
Kæru Dalamenn. Þetta eru undarlegir tímar sem við upplifum núna. Nú er tíminn til að hlúa sérstaklega að hvert öðru og reyna að halda í gleðina og bjartsýnina á meðan við verðum að aðlaga okkur að þessum aðstæðum. Það hefur verið stefna Dalabyggðar frá því að fyrstu fyrirmæli komu vegna COVID-19 að reyna að halda íbúum eins upplýstum og hægt …
Frestun eindaga fasteignagjalda vegna COVID-19
Á 190. fundi sveitarstjórnar sem haldinn var í gær var afgreitt undir 5.dagskrárlið að heimilt yrði að sækja um frestun á eindögum fasteignagjalda vegna þess ástands sem COVID-19 hefur skapað í samfélaginu. Erindið kom til sveitarstjórnar frá byggðarráði sem ályktaði á 242.fundi sínum að leggja það til við sveitarstjórn að hægt yrði að seinka eindögum. Á fundi sveitarstjórnar lagði sveitarstjóri …
Smitrakningar snjallforritið „Rakning C-19“
Landlæknir hefur í samstarfi við góða aðila útbúið snjallsímaforrit til að aðstoða við rakningu smita vegna COVID-19 veirunnar. Smitrakning getur verið flókin og kallar á mikinn mannskap ásamt því að erfitt getur reynst fyrir smitaða einstaklinga að rifja upp nákvæmar ferðir sínar. Er forritið hannað með það í huga að auðvelda smitrakningu en slík forrit hafa gefið góða raun m.a. …
Breyttur opnunartími Kjörbúðarinnar vegna COVID-19
Vegna álags af völdum COVID-19 hefur Kjörbúðin í Búðardal breytt opnunartíma sínum eins og segir á meðfylgjandi mynd. Áfram verður opið fyrir viðkvæma hópa fyrstu klukkustund eftir opnun á virkum dögum eða frá kl.9-10
Skilaboð frá Almannavörnum
Vegna ástandsins í samfélaginu af völdum COVID-19 veirunnar vill aðgerðastjórn almannavarna á Vesturlandi koma eftirfarandi á framfæri:
Sektir við brotum gegn sóttvarnarlögum og reglum
Vegna þeirra aðstæðna sem nú eru í samfélaginu vegna COVID-19 heimsfaraldursins og ákvarðana heilbrigðisráðherra um opinberar sóttvarnarráðstafanir í samræmi við sóttvarnarlög nr.19/1997, sbr. auglýsing nr. 243/2020 og reglur nr. 259/2020, hefur ríkissaksóknari ákveðið að gefa út sérstök fyrirmæli vegna brota á þeim reglum sem þar birtast og varða takmörkun á samkomum, sóttkví og einangrun. Brot gegn reglum heilbrigðisráðherra nr. 259/2020 …
Reglur um sóttkví í sumarhúsum
Að gefnu tilefni er vakin athygli á því að reglur um sóttkví gilda líka um þá sem kjósa að dvelja í sumarhúsi á meðan sóttkví stendur. Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir eftir aðföngum og þar af leiðandi ekki í matvöruverslanir. Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir með sorp á móttökustöðvar sveitarfélaga. Einstaklingar í sóttkví mega fara í …
Breytt fyrirkomulag á þjónustu Arion banka vegna COVID-19
Í tilkynningu frá Arion banka segir að vegna Covid-19 faraldursins mun frá og með fimmtudeginum 26. mars, vera loka á heimsóknir í útibú nema þær séu bókaðar fyrir fram og þá einungis fyrir brýn erindi. Viðskiptavinir eru hvattir til að nýta aðrar þjónustuleiðir eins og Arion appið og netbankann þar sem hægt er að framkvæma nær allar aðgerðir. Fyrir frekari …
Bakvarðasveit í velferðarþjónustu
Félags- og barnamálaráðherra og Samband íslenskra sveitarfélaga, vinna í sameiningu að því að koma á fót bakvarðasveit í velferðarþjónustu. Félagsmálaráðuneytið hefur útbúið rafrænt skráningarform í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir þá sem eru reiðubúnir að skrá sig í bakvarðasveitina. Fólki gefst kostur á að skrá sig í tímavinnu, hlutastarf eða fullt starf allt eftir því hvað hentar viðkomandi. Óskað er eftir liðsinni …