Ný samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar

DalabyggðFréttir

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur staðfest og birt í Stjórnartíðindum nýja samþykkt um stjórn Dalabyggðar og kemur hún í stað fyrri samþykktar frá 2013. Meðal breytinga í nýrri samþykkt er að reglulegir fundir sveitarstjórnar verða haldnir annan fimmtudag hvers mánaðar og fundir byggðarráðs verða að jafnaði haldnir fjórða fimmtudag hvers mánaðar. Þá verður núverandi menningar- og ferðamálanefnd skipt upp í tvær …

Húsmæðraskólinn á Staðarfelli

DalabyggðFréttir

Mánudaginn 30. apríl kl. 18:30 býðst Dalamönnum og nágrönnum tækifæri til að ganga um húsnæði Húsmæðraskólans á Staðarfelli í boði Byggðasafns Dalamanna, Héraðsskjalasafns Dalasýslu, bygginga- og skipulagsfulltrúa Dalabyggðar og ekki síst með dyggum stuðningi Sveins og Þóru bænda á Staðarfelli og Ríkiseigna. Dagskráin hefst á að Bogi Kristinsson byggingafulltrúi mun í stuttu máli segja frá byggingunni og Valdís Einarsdóttir safnvörður …

Sveitarstjórnarkosningar 2018

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 26. maí 2018. Upplýsingar um flest er lýtur að þeim er að finna á kosningavef innanríkisráðuneytisins, www.kosning.is. Kjörskrá Á kjörskrá skal taka alla íslenska ríkisborgara sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag, 26. maí, og sem skráðir eru með lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi þremur vikum fyrir kjördag, þann 5. maí. Óheimilt er að breyta kjörskrá ef tilkynning …

Árgjald héraðsbókasafns 2018

DalabyggðFréttir

Árgjald Héraðsbókasafns fyrir árið 2018 verður óbreytt frá fyrra ári, það er 1.000 kr. Hægt er að greiða árgjaldið inn á reikning 0312-26-001818, kt. 510694-2019, skrá þarf í skýringar ef greitt er fyrir annan. Einnig er hægt að greiða árgjaldið á skrifstofu Dalabyggðar. Eindagi árgjalds er 1. maí og eftir það verður greiðsluseðlar sendir út að viðbættum kostnaði. Héraðsbókasafn Dalasýslu …

Aðalfundur Hollvinasamtaka Dalabyggðar 2018

DalabyggðFréttir

Aðalfundur Hollvinasamtaka Dalabyggðar verður haldinn mánudaginn 30. apríl, klukkan 18 í stjórnsýsluhúsinu, Miðbraut 11 í Búðardal. Venjuleg aðalfundarstörf, inntaka nýrra félaga og stjórnarkjör.

Vinnuskóli Dalabyggðar 2018

DalabyggðFréttir

Vinnuskóli Dalabyggðar verður starfræktur frá 11. júní til 31. júlí og er fyrir unglinga fædda árin 2002 – 2005.  Daglegur vinnutími verður kl. 8-12 og 13-15 fimm daga vikunnar fyrir elstu börnin, en fjóra daga fyrir hin yngri. Verkstjóri verður eins og undanfarin ár Sigríður Jónsdóttir. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðunni og einnig á skrifstofu Dalabyggðar. Sérstakar vinnureglur og viðmið um verkefni og …

Auglýsing um samþykkt Svæðisskipulags Dala, Reykhóla og Stranda 2018-2030

DalabyggðFréttir

Svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar samþykkti þann 26. mars 2018 tillögu að svæðisskipulagi sveitarfélaganna ásamt umhverfisskýrslu, sbr. 25. gr. skipulagslaga og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana. Í svæðisskipulagstillögunni er sett fram sameiginleg framtíðarsýn sveitarfélaganna á þróun landbúnaðar, sjávarnytja og ferðaþjónustu í þeim tilgangi að styrkja atvinnulíf og byggð. Greind eru tækifæri sem búa í auðlindum og sérkennum svæðisins og …

Heilsuvera.is – Til upplýsingar

DalabyggðFréttir

Heilsuvera.is er vefur fyrir almenning um heilsu og áhrifaþætti hennar. Markmið síðunnar er að koma á framfæri til almennings áreiðanlegri þekkingu um þroska, heilsu og áhrifaþætti heilbrigðis. Inn á mínum síðum á Heilsuvera.is er öruggt vefsvæði þar sem hægt er að eiga í samskiptum við starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar og nálgast gögn úr eigin sjúkraskrá. Hægt er að endurnýja föst lyf, bóka …

Háls- nef og eyrnalæknir

DalabyggðFréttir

Þórir Bergmundsson, háls-, nef og eyrnalæknir verður með móttöku mánudaginn 30. apríl nk.  Tímapantanir eru í síma  432 1450. Vakin er athygli á að börn yngri en 18 ára, með tilvísun frá heimilis- eða heilsugæslulækni greiða ekki gjald fyrir komu til sérgreinalæknis. Börn sem sækja þjónustu án tilvísunar greiða hins vegar 30% af kostnaði við þjónustuna þar til greiðslumarki (hámarksgreiðsla …

Tjaldsvæðið í Búðardal

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórn hefur samþykkt að semja við Carolin A Baare-Schmidt um rekstur tjaldsvæðisins í Búðardal en hún hefur séð um reksturinn undanfarið ár ásamt Valdísi Gunnarsdóttur. Sveitarstjórn samþykkti á 158. fundi tillögu menningar- og ferðamálanefndar um að bjóða út rekstur tjaldsvæðisins í Búðardal. Auglýst var eftir áhugasömum aðilum í Dalapósti og á vef Dalabyggðar. Tvö tilboð bárust, frá Carolin A Baare-Schmidt …