Fréttir.

03.09.2015

Háls-, nef- og eyrnalæknir í Búðardal

Þórir Bergmundsson háls-, nef- og eyrnalæknir verður með móttöku á Heilsugæslustöðinni í Búðardal föstudaginn 11. september. Tímapantanir eru í síma 432 1450
Skoða betur
02.09.2015

Símenntunarmiðstöð Vesturlands – kynning

Starfsmenn Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi, Guðrún Vala Elísdóttir náms-og starfsráðgjafi og Helga Björk Bjarnadóttir verkefnastjóri, verða með kynningu á námi, námsleiðum og fleiru hjá Símenntunarmiðstöðinni mánudaginn 7. september kl. 17-19 í Dalakoti. Kynningu verður á · náms- og starfsráðgjöf · raunfærnimati · landnemaskóla · menntastoðum · tæknistoðum · sölu-,markaðs og rekstrarnámi · annarri þjónustu miðstöðvarinnar Allir velkomnir og kaffi á könnunni.
Skoða betur
27.08.2015

Uppskeruhátíð UDN

Uppskeruhátíð barna- og ungmennastarfs UDN og aðildarfélaga verður haldin við Reykhólaskóla miðvikudaginn 2. september klukkan 18. Allir eru velkomnir á hátíðina. Í boði verða grillaðir hamborgarar og veittar verða viðurkenningar fyrir þátttöku, framfarir og góðan árangur í frjálsum íþróttum, fótbolta og hestamennsku. Íþróttaálfurinn og Solla stirða munu mæta hress og kát á svæðið. Þeir sem eiga UDN fatnað eru hvattir
Skoða betur
23.08.2015

Sumargleði á Skarðsströnd

Laugardaginn 29. ágúst verður Sumargleði á Skarðsströnd í samstarfi Röðuls, Skarðsstöðvar og Þaulseturs. Opið hús verður í Röðli kl. 13-17. Þar verður markaður, kaffi og kökur, spjall, sýningar og uppákomur. Þrautaganga verður í Skarðsstöð kl. 17:30-20. Keppt verður þar í hefðbundnum skarðstrendskum þrautum og íþróttagreinum. Skráning er á staðnum. Síðan verður einhver næring í boði fyrir tónleika. Gleðisveitin PLÚS verður
Skoða betur
23.08.2015

Augnlæknir í Búðardal

Guðrún J. Guðmundsdóttir verður með móttöku á Heilsugæslustöðinni í Búðardal fimmtudaginn 3. september. Tímapantanir eru í síma 432 1450
Skoða betur
21.08.2015

MS Búðardal – laus störf

MS Búðardal óskar eftir starfsfólki til vélgæslu- og framleiðslustarfa. Um framtíðarstörf er að ræða. Nánari upplýsingar veita Lúðvík Hermannsson (ludvikh @ms.is) og Elísabet Svansdóttir (elisabets @ms.is). Mjólkursamsalan Búðardal Allir þeir sem hafa í boði lögleg störf, innan þess svæðis að íbúar Dalabyggðar geti sótt þau, geta fengið atvinnuauglýsingar birtar hér á heimasíðu sveitarfélagsins endurgjaldslaust.
Skoða betur
21.08.2015

Söngkennsla í Búðardal

Hanna Dóra Sturludóttir söngkona og söngkennari býður upp á söngkennslu í Búðardal 4. og 5. september. Boðið verður upp á einkatíma fyrir fólk á öllum aldri. Farið verður í undirstöðuatriði í söng, þ.e. öndun stöðu, framburð, túlkun o.s.frv. Hægt er að velja millum 30 mínútna kennslustunda (2.500 kr) eða 60 mínútna (5.000 kr). Áhugasamir hafi samband við Hönnu Dóru fyrir
Skoða betur
20.08.2015

Uppbygging í Ólafsdal

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, Þröstur Ólafsson stjórnarformaður Minjaverndar og Rögnvaldur Guðmundsson formaður Ólafsdalsfélagsins undirrituðu samkomulag um viðtöku lands og eigna í Ólafsdal í Gilsfirði. Markmiðið með samkomulaginu er endurreisn bygginga og menningarlandslags á staðnum þar sem m.a. er áformað að reka menningartengda ferðaþjónustu. Í Ólafsdal stofnaði Torfi Bjarnason fyrsta íslenska búnaðarskólann árið 1880. Í skólanum, sem starfræktur var til
Skoða betur
15.08.2015

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 127. fundur

127. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 18. ágúst 2015 og hefst kl. 17. Dagskrá Almenn mál 1. Brothættar byggðir 2. Lögreglusamþykkt fyrir Dalabyggð Fundargerðir til staðfestingar 3.35. fundargerð félagsmálanefndar 4.Byggðarráð Dalabyggðar – 160. fundur 4.1. Kjör formanns og varaformanns til eins árs 4.2. Sauðfjárveikivarnarlínur 5.Byggðarráð Dalabyggðar – 161. fundur 5.1. Starf íþrótta- og tómstundafulltrúa Dalabyggðar /
Skoða betur
11.08.2015

Húsvörður Tjarnarlundi

Starf húsvarðar í Tjarnarlundi er laust frá 1. september n.k. Áhugasamir hafi samband við sveitarstjóra á skrifstofu Dalabyggðar.
Skoða betur
11.08.2015

Fundur um ljósleiðaramál

Boðað er til opins fundar um ljósleiðaramál í Árbliki 25. ágúst nk. og hefst kl. 20. Fyrir liggur að Orkufjarskipti hf. munu leggja ljósleiðara um Skógarströnd nú í haust og líkur eru á að í framhaldi verði lagður ljósleiðari milli Hörðudals og Glerárskóga. Dalabyggð ásamt Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi hafa fundað með Orkufjarskiptum um hvernig fyrirhuguð lagning þessa ljósleiðara gagnist
Skoða betur
08.08.2015

Íslandsmót í hrútadómum

Íslandsmót í hrútadómum verður sunnudaginn 16. ágúst kl. 14 í Sævangi við Steingrímsfjörð. Jafnan er góð þátttaka í hrútadómunum, bæði í flokki þaulreyndra hrútadómara og líka í flokki óvanra hrútaþuklara. Að venju verður kjötsúpa á boðstólum og kaffihlaðborð allan liðlangan daginn. Síðasta ár sigraði Björn Þormóður Björnsson, Ytra-Hóli, Austur-Húnavatnssýslu og landaði því Íslandsmeistaratitlinum í hrútadómum í annað skipti, en hann
Skoða betur
Fréttir.