06.08.2015
Árleg Ólafsdalshátíð verður laugardaginn 8. ágúst með dagskrá frá kl. 10 um morguninn. Enginn aðgangseyrir er á hátíðina og allir velkomnir. 10.00-12.15 Gönguferð með leiðsögn um minjar í Ólafsdal og inn í Draugaskot í Hvarfsdal. Um 6 km ganga við allra hæfi. 11.00 Sala á miðum í Ólafsdalshappdrættinu hefst. Fyrsti vinningur eru flugmiðar fyrir tvo að eigin vali með Primera
05.08.2015
Starfsleyfi fyrir urðunarstað
Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað Dalabyggðar við Laxárdalsveg, Dalabyggð. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti og urða allt að 500 tonn af óvirkum úrgangi á ári. Samkvæmt starfsleyfistillögunni verður gildistími starfsleyfis til næstu 12 ára. Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar í afgreiðslu stjórnsýsluhúss Dalabyggðar, Miðbraut 11, Búðardal, til 3. september
27.07.2015
Tónleikar með Tómasi og Ómari á Laugum
Föstudaginn 31. júlí munu Tómas R. Einarsson og Ómar Guðjónsson spila á Hótel Eddu Laugum í Sælingsdal. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og er aðgangur ókeypis. Tómas R. og Ómar munu leika á alls oddi og færa gestum ljúfa tóna úr smiðju sinni þar sem sveifludjassinn verður í aðalhlutverki. Salurinn opnar klukkan 20. Allir velkomnir. Hótel Edda
21.07.2015
Reykhóladagar verða dagana 23.-26. júlí. Þeir hefjast á hádegi á fimmtudaginn og standa yfir fram á sunnudag. Dagskrá Reykhóladaga 2015 er í meginatriðum svipuð og undanfarin ár. Á fimmtudaginn bíó, fitcamp, harmonikkuball, pubquiz og tónleikar. Á föstudaginn kjötsúpa, spurningakeppni, brenna og Halli Reynis. Á laugardaginn er Reykhóladagahlaupið, jóga, dráttarvélar, kaffihlaðborð, karnival, skottsala, þaraþrautir, grill, barnaball, dansleikur ofl. Á sunnudaginn lýkur
13.07.2015
Skrifstofa Dalabyggðar – sumarlokun 2015
Vegna sumarleyfa starfsmanna verður skrifstofa Dalabyggðar lokuð vikuna 12.-19. júlí.
10.07.2015
Járn- og timburgámar í Saurbæ verða staðsettir við Brekkurétt. Járn- og timburgámar á Skógarströnd verða staðsettir við sorpgáma hjá Straumi.
05.07.2015
Skrifstofa Dalabyggðar – sumarlokun 2015
Vegna sumarleyfa starfsmanna verður skrifstofa Dalabyggðar lokuð vikuna 12.-19. júlí.
03.07.2015
Svavar Knútur og Kristjana í Erpsstaðafjósinu
Vinirnir og söngvaskáldin Svavar Knútur og Kristjana Stefáns verða með tónleika í fjósinu á Erpsstöðum laugardaginn 4. júlí kl. 21. Kristjana og Svavar Knútur hafa undanfarin ár vakið athygli fyrir dúettakvöld. Þar ríkir bæði gleði og angurværð ásamt örlitlum fíflagangi og bera þau vinirnir á borð fjölbreytta dagskrá dúetta, sem rúmar allt frá Abba til Dolly Parton með viðkomu hjá
02.07.2015
Í Ólafsdal verður opið alla daga kl. 12-17 frá 27. júní til 16. ágúst. Umsjónarmenn verða hjónin Elfa Stefánsdóttir tómstundafræðingur og Haraldur Baldursson tæknifræðingur. Sýningar eru þar um sögu Ólafsdalsskólans, konurnar í Ólafsdal o.fl., en auk þess er skólahúsið sjálft frá 1896 er fallegt og skoðunarvert. Í sumar verður þar boðið upp á kaffi, rjómavöfflur og ís frá Rjómabúinu á
28.06.2015
Héraðsbókasafn – sumarlokun 2015
Héraðsbókasafn Dalasýslu verður lokað fimmtudaginn 18. júní og allan júlímánuð vegna sumarleyfa bókavarðar. Síðasti opnunardagur fyrir sumarlokun verður þriðjudaginn 30. júní og fyrsti opnunardagur eftir sumarleyfi þriðjudaginn 4. ágúst.
25.06.2015
Gróðursetning við Auðarskóla
Gróðursetning í tilefni þess að í ár eru 35 ár frá því að Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti Íslands. Að frumkvæði Skógræktarfélags Íslands munu Dalabyggð og Skógræktarfélag Dalasýslu standa saman að gróðursetningu þriggja birkiplantna líkt og Vigdís gerði með táknrænum hætti í forsetatíð sinni. Vigdís gróðursetti þrjár plöntur við Grunnskólann í Búðardal um Jónsmessuleytið árið 1981 eða fyrir 34 árum
23.06.2015
Sauðfjársetur á Ströndum heldur sína árlegu Furðuleika sunnudaginn 28. júní og hefjast þeir kl. 13:00. Leikarnir fara fram á Sævangsvelli við Steingrímsfjörð og eru lokapunkturinn á bæjarhátíðinni Hamingjudögum á Hólmavík. Á Furðuleikum er keppt í ýmsum skringilegum íþróttagreinum sem eiga sameiginlegt að vera afbragðs skemmtun þó þær hafi ekki enn hlotið viðurkenningu Alþjóða Ólympíunefndarinnar. Meðal þess sem fólk getur prófað