09.12.2012
Héraðsbókasafn Dalasýslu
Þriðjudaginn 11. desember kl. 17 mun Svavar Gestsson frá Grund á Fellsströnd lesa upp úr og árita nýja ævisögu sína á Héraðsbókasafni Dalasýslu. Bólin heitir „Hreint út sagt“ og hefur að geyma frásagnir úr einkalífi Svavars, m.a. uppvöxt hans á Fellsströndinni og í Reykjavík. Og síðan um þátttöku hans í stjórnmálasögu 20. aldar, ríkisstjórnarmyndanir, þingmál og margt fleira. Íris Björg
Skoða betur