16.01.2013Bingó í Árbliki Kvenfélagið Fjóla heldur bingó í Árbliki laugardaginn 19. janúar kl 20:30. Spjaldið kostar 500 kr og rétt að hafa í huga að enginn posi er á staðnum og því eingöngu hægt að greiða með reiðufé.Skoða betur
12.01.2013Þorrablót Laxdæla Þorrablót Laxdæla verður haldið laugardaginn 26. janúar í Dalabúð. Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst kl. 20. Þorrablótið verður með hefðbundnu sniði. Þorramatur á borð borinn af Sigurði Finni Kristjánssyni, helstu atburðir liðins árs rifjaðir upp af þorrablótsnefnd og í lokin dansleikur með Hvanndalsbræðrum. Almennt miðaverð er 6.000 kr, fyrir eldri borgara 4.500 kr og eingöngu á dansleikinn 3.000Skoða betur
11.01.2013Aðalfundur Ólafs páa Aðalfundur Umf. Ólafs Páa fer fram að Stekkjarhvammi 11 í Búðardal fimmtudaginn 17. janúar kl. 20. Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf.Skoða betur
11.01.2013Sveitarstjórn Dalabyggðar 97. fundur 97. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 15. janúar 2013 og hefst kl. 18. Dagskrá Almenn mál 1. 1301006 – Fræðsla um gróðurrækt og önnur umhverfismál2. 1301007 – Samningur v/ forðagæslu 20133. 1301009 – Björgunarsveitin Ósk – Umsókn um styrk vegna ungmennastarfs Fundargerðir til staðfestingar 4. 1212002F – Byggðarráð Dalabyggðar – 1184.1. 1301002 – Leifsbúð – RekstrarsamningurSkoða betur
10.01.2013Félagsvist í Árbliki Kvenfélagið Fjóla heldur félagsvist í Árbliki föstudaginn 11. janúar kl. 20:30. Aðgangseyrir er 800 kr. Kaffi og meðlæti innifalið. Frítt er fyrir börn 14 ára og yngri. Allir velkomnir.Skoða betur
10.01.2013Húsaleigubætur 2013 Leigjendur geta átt rétt á húsaleigubótum hjá sveitarfélaginu og sækja þarf um þær fyrir 16. dag fyrsta greiðslumánuðar. Berist umsókn seinna verða húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánaðar. Samkvæmt 10. grein laga um húsaleigubætur nr. 138/1997 þarf að sækja um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsóknin til ársloka. Því er mikilvægt að endurnýja allar umsóknir nú fyrir 16. janúarSkoða betur
07.01.2013Vinnuvélanámskeið í Búðardal Fyrirhugað er að halda réttindanámskeið fyrir stjórnendur vinnuvéla í Búðardal með fyrirvara um næga þáttöku. Kennt verður í tveimur fjögurra daga lotum frá kl. 10 til 18. Fyrri lotan er frá föstudeginum 18. janúar til mánudagsins 21. janúar. Seinni lotan er síðan frá föstudeginum 25. janúar til mánudagsins 28. janúar. Námskeiðið kostar kr. 80.000 og það gefur rétt til próftökuSkoða betur
04.01.2013Maltkviss í Tjarnarlundi Spurningakeppninni Maltkviss sem vera átti í Tjarnarlundi, en varð að fresta vegna rafmagnaleysis verður þess í stað haldin laugardagskvöldið 5. janúar kl. 20. Um er að ræða fjölskylduvænar spurningar þar sem tveir til þrír verða saman í liði, fer eilítið eftir aldursamsetningu liðsins. Verðið er 500 kr fyrir hvert lið. Stjórnandi verður Sveinn Ragnarsson á Svarfhóli í Geiradal. Verðlaun ogSkoða betur
04.01.2013Flugeldasýning á þrettándanum Flugeldasýningin er vera átti á gamla fótboltavellinum í Búðardal á gamlárskvöld verður sunnudaginn 6. janúar kl. 17. Björgunarsveitin Ósk verður með flugeldasölu í björgunarsveitarhúsinu við Vesturbraut föstudaginn 4. janúar kl. 12-19 og sunnudaginn 6. janúar kl. 12-16:30. Flugeldasalan er öflugasta tekjuleið björgunarsveitarinnar. Þeim sem ekki hafa áhuga á flugeldum, en langar að styrkja björgunarsveitina geta þess í stað greitt innSkoða betur
02.01.2013Félagsvist í Tjarnarlundi Félagsvist Umf. Stjörnunnar er halda átti milli jóla og nýárs en fresta varð vegna rafmagnsleysis verður í kvöld, miðvikudaginn 2. janúar. Félagsvistin hefst kl. 20, en húsið opnar kl. 19.30. Verð er 700 kr og sjoppa á staðnum. Gott að hafa í huga að enginn posi er og því rétt að mæta með reiðufé. Í myndasafni er nú að finnaSkoða betur
31.12.2012Brenna og flugeldasýning Vegna mikilla anna hjá Björgunarsveitinni Ósk verður flugeldasýningu kvöldsins frestað fram á þrettándann. En brennan verður á sínum stað og allir velkomnir. Brenna og flugeldasýning í Saurbænum verður við Þverfell, enda þurfa íbúar þar að vinna upp ljósleysi síðastliðna daga.Skoða betur
28.12.2012Tómstundabæklingur vor 2013 Verið er að vinna í tómstundabækling Dalabyggðar fyrir vorið 2013. Bæklingurinn er gefinn út af Dalabyggð og eru allir þeir sem standa fyrir tómstundastarfi, námskeiðum og eða viðburðum hvattir til að senda inn upplýsingar. Gildir það bæði fyrir börn og fullorðna. Þær upplýsingar sem þurfa að koma fram eru: 1. Heiti námskeiðs/atburðar2. Stutt lýsing á námskeiði/atburði3. Heiti kennara/þjálfara4. Staðsetning5. TímabilSkoða betur