01.10.2021
Söfnun og flutningur á dýrahræjum í Dalabyggð – útboð
Dalabyggð óskar eftir tilboðum í söfnun og flutning á dýrahræjum í sveitarfélaginu. Um er að ræða hræ af búfénaði sem sótt eru reglulega til þeirra aðila í sveitarfélaginu sem eru með skráðan bústofn. Fyrirhugað er að gera þriggja (3) ára samning við einn verktaka um framkvæmd verksins frá 01.01.2022. Nánari upplýsingar um verkið og tilboðsgerð má nálgast á skrifstofum Dalabyggðar
Skoða betur






