Föstudaginn 21.febrúar n.k. verður fundur í Stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar, í fundarsal á 2.hæð, kl.13 um verkefnið „Hringvegur 2“ sem snýst um nýja og metnaðarfulla ferðamannaleið sem opnar í haust. Verkefnastjórar frá Markaðsstofu Vesturlands verða með okkur svo þetta er einnig kjörið tækifæri til að ná tali af þeim. Hvetjum ferðaþjóna, þjónustuaðila við ferðaþjónustu og fyrirtæki til að líta við. Kaffi …
Rúlluplast
Stefnt er að söfnun á rúlluplasti á lögbýlum í næstu viku. Nánari tímasetningar koma eftir helgi.
Óvissustig vegna kórónaveiru
Á heimasíðu Embættis landlæknis hafa verið settar inn leiðbeiningar til almennings vegna Kórónaveirunnar. Við hvetjum almenning til að kynna sér leiðbeiningarnar. Faraldur kórónaveiru (2019-nCoV) breiðist hratt út en enn sem komið er hafa langflest tilfellin greinst í Kína. Staðfest er að veiran smitast milli manna og að hún getur valdið alvarlegum veikindum. Í ljósi þessa hefur embætti ríkislögreglustjóra lýst yfir óvissustigi …
Félagsstarf eldri borgara – breytingar á dagskrá
Dagskrá eldri borgara er vera átti fimmtudaginn 13. febrúar verður frestað til fimmtudagsins 20. febrúar og verður þá á Silfurtúni.
Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands
Uppbyggingarsjóður Vesturlands auglýsti eftir umsóknum í sjóðinn í október s.l. Alls bárust 142 umsóknir. Úthlutunarnefnd sjóðsins ákvað að úthluta samtals kr. 43.585.000 til 98 verkefna að þessu sinni. Úthlutunarhátíð sjóðsins var svo haldin í Félagsheimilinu Fannahlíð í Hvalfjarðarsveit föstudaginn 7. febrúar s.l. og má segja að Dalamenn hafi ekki látið sitt eftir liggja í frumlegum verkefnum. Það voru 14 verkefni …
Sveitarstjórn Dalabyggðar – 187. fundur
187. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 13. febrúar 2020 og hefst kl. 16. Dagskrá Almenn mál 1. Kynning á nýrri vefsíðu 2. Undirbúningur íþróttamannvirkja í Dalabyggð 3. Skógrækt á jörðinni Hóli – umsókn 4. Sorphreinsun – útboð 2020 – 2022 5. Heinaberg á Skarðströnd – umsókn um byggingaráform 6. Umsókn um lögbýli á Selárdal 7. Áskorun, varðandi umsóknir um …
Heilsugæsla – febrúar
Í febrúar koma sjúkraþjálfarar, augnlæknir og krabbameinsleit hjá konum á heilsugæslustöðinni í Búðardal. Netsjúkraþjálfun Sjúkraþjálfarar frá Netsjúkraþjálfun verða með viðtöl og skoðanir mánudaginn 17. febrúar. Vegna tímabókana er best að senda tölvupóst á netfangið; netsjukrathjalfun@netsjukrathjalfun.is, en einnig má hafa samband við heilsugæsluna. Augnlæknir Guðrún J. Guðmundsdóttir augnlæknir verður með móttöku fimmtudaginn 20. febrúar. Tímapantanir hjá augnlækni eru í síma …
Álagning fasteignagjalda – seinkun
Vegna tæknilegra vandamála mun álagningu fasteignagjalda seinka um tvo daga. Áætlað er að álagningarseðlar fasteignagjalda verði tilbúnir föstudaginn 7. febrúar. Eindagi til að nýta 3% staðgreiðsluafslátt seinkar sem því nemur og verður til þriðjudagsins 18. febrúar.
Dagur kvenfélagskonunnar
1. febrúar er Dagur kvenfélagskonunnar. Dagurinn, sem er stofndagur Kvenfélagasambands Íslands, (1930) var formlega gerður að degi kvenfélagskonunnar árið 2010 til að vekja athygli á miklu og óeigingjörnu starfi kvenfélagskvenna í 140 ár. Það var enda löngu tímabært að kvenfélagskonur fengju sinn eigin dag á dagatalinu. Við óskum kvennfélagskonum til hamingju með daginn! Kvenfélagasamband Íslands (KÍ) var stofnað 1. febrúar …
Sveitarstjórn Dalabyggðar 186. fundur
186. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 30. janúar 2020 og hefst kl. 20. Dagskrá Almenn mál 1. Fjárhagsáætlun 2020-2023 2. Fjárhagsáætlun 2020 – Viðauki I 29.01.2020 Kristján Sturluson, sveitarstjóri.