Áramótabrennur og flugeldasýning
Árleg brenna og flugeldasýning í Búðardal verður á sjávarkambinum neðan við Búðarbraut og skotsvæði á gömlu bryggjunni. Kveikt verður í brennunni kl. 21 og sýningunni skotið upp nokkru síðar. Varðeldur verður í landi Bjarnastaða í Staðarhólsdal, Saurbæ. Kveikt verður í um miðnætti. Þurfi að koma til breytinga á brennustæðum og tímasetningum verður það auglýst á vef Dalabyggðar, www.dalir.is.
Félagsvist í Tjarnarlundi
Að venju verður stokkað upp í jóla-félagsvist í Tjarnarlundi laugardaginn 28. desember kl 20. Verð er 1.000 kr og veitingar innifaldar.
Síðustu opnunardagar Byggðasafnsins
Síðustu opnunardagar Byggðasafns Dalamanna í kjallaranum á Laugum verða föstudaginn 27. desember og sunnudaginn 29. desember kl. 13-17. Frítt verður inn á safnið, húslestur og heitt á könnunni. Þurfi að koma til breytinga á opnunartímum vegna veðurs verður það auglýst á heimasíðu Dalabyggðar. Á nýju ári verður síðan hafist handa við að pakka safnkostinum niður. Skipulögð söfnun muna í Dölum fyrir væntanlegt Byggðasafn Dalamanna …
Helgihald um jólahátíðina
Um hátíðirnar verða guðsþjónustur í Breiðabólsstaðarkirkju, Kvennabrekkukirkju, Hjarðarholtskirkju, Hvammskirkju og Staðarhólskirkju. Annar dagur jóla, fimmtudagurinn 26. desember Guðsþjónusta í Breiðabólsstaðarkirkju kl. 14. Hátíðarguðsþjónusta í Staðarhólskirkju kl. 14. Hátíðarguðsþjónusta í Hvammskirkju kl. 20. Þriðji dagur jóla, föstudagurinn 27. desember Kertamessa í Kvennabrekkukirkju kl. 20. Fimmti dagur jóla, sunnudagurinn 29. desember Hátíðarguðsþjónusta í Reykhólakirkju kl. 14. Hátíðarguðsþjónusta í Hjarðarholtskirkju kl. …
Rafmagnstruflanir
Raforkunotendur í Dalabyggð mega búast má við rafmagnstruflunum í nótt frá miðnætti til kl. 6 í fyrramálið vegna vinnu í tengivirki Landsnets í Hrútatungu. Svæðisvakt RARIK á Vesturlandi er í síma 528 9390. Kort af svæði sem talið er vera um að ræða má sjá á heimasíðu Rarik.
Rafmagnslaust
Rafmagnslaust er í Saurbæ, Skarðsströnd, Fellsströnd og hluta Hvammssveitar vegna bilunar á byggðalínu. Unnið er að viðgerð. Nánari upplýsingar veitir svæðisvakt Rarik á Vesturlandi í síma 528 9390 og á heimasíðu Rarik.
Hugsanleg rafmagnsskömmtun
Rafmagnsnotendur í Búðardal, Laxárdal og Suður-Dölum eru beðnir um að fara sparlega með rafmagn svo komast megi hjá skömmtun. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390 og á heimasíðu RARIK.
Jólasveinahittingur
Skyrgámur og Bjúgnakrækir boða til jólasveinahittings föstudaginn 13. desember kl. 16-17 í KM. Nokkrir jólasveinar ætla að koma saman í KM og taka stöðuna á ýmsum atriðum. Til dæmis yfirfara óþekktarlistann, bjóða upp á myndatökur og losa sig við góðgæti.



