Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Sveitarstjórnarfundur – tæknilegir örðugleikar”
18.01.2024

Sveitarstjórnarfundur – tæknilegir örðugleikar

Vegna tæknilegra örðugleika er ekki unnt að senda beint út frá sveitarstjórnarfundi sem hófst nú kl.16:00.  Fundurinn er opinn og íbúum frjálst að mæta og hlusta á fundinn sem fram fer í fundarsal á 2. hæð Stjórnsýsluhúss Dalabyggðar.  Annars mun upptaka af fundinum koma inn á YouTube-rás sveitarfélagsins „Dalabyggð TV“ að fundinum loknum. 
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Íbúafundur með starfshópi ráðherra – FRESTAД
18.01.2024

Íbúafundur með starfshópi ráðherra – FRESTAÐ

ATH! ATH! ATH! Vegna ófyrirséðra aðstæðna er fundi með starfshópi frestað og mun ný tímasetning verða auglýst síðar
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Samráð um Menntastefnu Dalabyggðar – opið fyrir tillögur að úrbótum”
18.01.2024

Samráð um Menntastefnu Dalabyggðar – opið fyrir tillögur að úrbótum

Kynning á drögum menntastefnu Dalabyggðar fyrir íbúa Dalabyggðar fór fram miðvikudaginn 17. janúar. Menntastefnu Dalabyggðar er ætlað að veita leiðsögn og innblástur öllum þeim sem koma að skólastarfi, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfi í sveitarfélaginu. Opnað hefur verið fyrir tillögur að úrbótum á menntastefnunni. Á slóð sem fylgir frétt þessari er hægt að skrá tillögur og athugasemdir inn í skjal. Um
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sýning Byggðasafnsins á bókasafninu”
18.01.2024

Sýning Byggðasafnsins á bókasafninu

Við vekjum athygli á að Byggðasafn Dalamanna hefur sett upp nýja sýningu á bókasafninu. Um er að ræða kistla og kassa í eigu safnsins. OPNUNARTÍMAR HÉRAÐSBÓKASAFNS DALASÝSLU Þriðjudagar kl. 12:30-17:30 Fimmtudagar kl. 12:30-17:30
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sveitarstjórn Dalabyggðar – 242. fundur”
15.01.2024

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 242. fundur

FUNDARBOÐ 242. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, fimmtudaginn 18. janúar 2024 og hefst kl. 16:00 Dagskrá: Almenn mál 1. 2305010 – Löggæsla í Dalabyggð 2. 2204013 – Íþróttamannvirkja í Búðardal 3. 2310012 – Gjaldskrár – uppfærsla fyrir 2024 4. 2312010 – Umsagnarb. tækifærisleyfi. Þorrablót Laxdæla 27. janúar 2023 5. 2401023 – Samvinnuverkefni vegna aðgengis elli- og
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Yfir 9 milljónir úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands í Dalina”
15.01.2024

Yfir 9 milljónir úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands í Dalina

Föstudaginn 12. janúar veitti Uppbyggingarsjóður Vesturlands styrki til 75 verkefna . Heildarupphæð styrkja nam 46.400.000 króna. Þetta er tíunda árið sem sjóðurinn úthlutar styrkjum til annars vegar menningarverkefna og hins vegar atvinnu- og nýsköpunarverkefna en sjóðurinn er hluti af Sóknaráætlun Vesturlands. Alls bárust 126 umsóknir, veittir voru styrkir til 75 verkefna en í heildina var sótt um samanlagt um rúmlega
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Menningarmálaverkefnasjóður – umsóknarfrestur rennur út í dag”
15.01.2024

Menningarmálaverkefnasjóður – umsóknarfrestur rennur út í dag

Menningarmálanefnd Dalabyggðar auglýsir eftir umsóknum í menningarmálaverkefnasjóð. Til úthlutunar 2024 verða 1.000.000 kr.- Hlutverk sjóðsins er að styðja við menningarmál í Dalabyggð og er það gert með því að veita styrki eftir því sem menningarmálanefnd Dalabyggðar telur þjóna markmiðum sjóðsins. Umsækjendur í sjóðinn geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir með lögheimili í Dalabyggð. Umsóknarfrestur er til og með 15.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Fjarfundur vegna nýrrar menntastefnu Dalabyggðar 2023-2028”
10.01.2024

Fjarfundur vegna nýrrar menntastefnu Dalabyggðar 2023-2028

Miðvikudaginn 17. janúar nk. kl. 17 verður Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson ráðgjafi hjá Ásgarði skólaþjónustu með fjarfund á Teams fyrir íbúa Dalabyggðar til að kynna drög að nýrri menntastefnu Dalabyggðar fyrir árin 2023-2028.   Menntastefnu Dalabyggðar er ætlað að veita leiðsögn og innblástur öllum þeim sem koma að skólastarfi, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfi í sveitarfélaginu. Það er sveitarfélaginu mjög mikilvægt að
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sérstakur húsnæðisstuðningur ungmenna 15 – 17 ára”
08.01.2024

Sérstakur húsnæðisstuðningur ungmenna 15 – 17 ára

Ungmenni 15-17 ára sem eru í framhaldsskólum eiga rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi. Stuðningurinn er ætlaður foreldrum/forsjáraðilum ungmenna sem leigja herbergi á heimavist, á námsgörðum, eða leiguherbergi á almennum markaði og njóta ekki réttar til húsnæðisbóta vegna aldurs. Samkvæmt reglum skal umsókn berast fyrir 15. þess mánaðar sem greitt er fyrir og ekki greitt aftur í tímann. Umsókn gildir fyrir hverja
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Laust starf: Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðinni Gildrunni”
04.01.2024

Laust starf: Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðinni Gildrunni

Óskað er eftir einstaklingi 20 ára eða eldri í skemmtilegt og skapandi starf með börnum og ungmennum í félagsmiðstöðinni Gildrunni fyrir skólaárið vorönn 2024. Gildran er félagasmiðstöð barna og ungmenna í Dalabyggð. Áhersla er lögð á lýðræðisþáttöku barna og unglinga og að ná til þeirra unglinga sem þarfnast félagslegs stuðnings. Unnið er í opnu starfi, skipulagðri dagskrá, tímabundnum verkefnum og
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Breyting á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2020-2032”
04.01.2024

Breyting á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2020-2032

Óveruleg breyting – skólphreinsistöð í Búðardal Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti 18. ágúst 2023 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2020-2032 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.   Breytingin felst í tilfærslu iðnaðarsvæðis I-6, sem er 0,1 ha reitur fyrir skólphreinsistöð á Búðardal, til norðurs. Lögun og stærð I-6 breytist lítilsháttar og verður 0,16 ha eftir breytingu. Greinargerð með rökstuðningi
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Bókasafnið opið fimmtudaginn 28. desember”
27.12.2023

Bókasafnið opið fimmtudaginn 28. desember

Vert er að minnast á það að einungis er opið einn dag á milli jóla og nýárs, þ.e. fimmtudaginn 28. desember. Ýmsar bækur hafa bæst við nú í desember, má þar nefna Orri óstöðvandi , Íslensku dýrin okkar og Jólabókaklúbburinn. Að ógleymdri bókinni Kynlegt stríð eftir sagnfræðinginn og Dalakonuna Báru Baldursdóttur. Jólasýningarnar í Stjórnsýsluhúsinu eru enn uppi og um að
Skoða betur
Fréttir.