Dreifing sorpíláta í deifbýli gengur vel

DalabyggðFréttir

Dreifing á sorpílátum í dreifbýli hófst í dag og gengur með ágætum. Áætlað er að dreifingu ljúki í dag sunnan Búðardals. Á morgun verður ílátum dreift vestan Búðardals og allar líkur á að því ljúki sama dag. Ef íbúar hafa spurningar eða athugasemdir við dreifingu íláta þurfa þær að skila sér til skrifstofu Dalabyggðar, dalir@dalir.is eða kristjan@dalir.is

Fjárhagsaðstoð frá Rauða krossinum – umsókn

DalabyggðFréttir

Rauði krossinn Búðardals- og Reykhóladeild, í samvinnu við Stéttafélag Vesturlands: Styrkur fyrir efnaminna fólk sem þarf aðstoð til að halda jólin. Umsóknir þurfa að berast fyrir lok dagsins á morgun og munum við afhenda gjafakort frá Arion banka seinni part miðvikudags. Umsókn til útfyllingar – smellið HÉR.

Rafmagnslaust á Saurbæjarlínu 22.12.2020

DalabyggðFréttir

Rafmagnslaust verður á Saurbæjarlínu, frá Glerárskógum að Fellströnd, Saurbæ og Skarðsstönd 22.12.2020 frá kl 13:00 til kl 15:00 vegna vinnu í aðveitustöð. Beðist er velvirðingar á að til straumleysis komi svo nálægt jólum vegna þessa mikilvæga verkefnis. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof

Brennu og flugeldasýningu er aflýst

DalabyggðFréttir

  Vegna sóttvarnarráðstafanna verða hvorki áramótabrenna né flugeldasýning á gamlárskvöld. Flugeldasýningunni er frestað þangað til á Jörvagleði í apríl. Núgildandi reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar má nálgast hér: Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar

Eldklár

DalabyggðFréttir

Eldklár er fræðsluátak á vegum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um brunavarnir. Þar eru birt stutt fræðslumyndbönd, gátlistar og annað hagnýtt efni til að efla brunavarnir. Átakið má kynna sér á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Brunavarnir sem þurfa að vera til staðar á hverju heimili eru reykskynjarar, slökkvitæki og eldvarnarteppi. Einnig er mikilvægt að búa til flóttaáætlanir og allir þekki að minnsta …

Jólakúlujól 2020

DalabyggðFréttir

Það er ljóst að fyrir marga verða jólin í ár frábrugðinn því sem við erum vön, líkt og með annað á þessu ári. Samt sem áður höfum við ýmsa möguleika á því að gleðjast saman, þó ekki fleiri en 10 saman, því samkvæmt þeim reglum sem við fylgjum til 12. janúar þá mega ekki fleiri vera í hverri jólakúlu. Börn …

Laust starf: Heimaþjónusta í Dalabyggð

DalabyggðFréttir

  Starfsmann vantar hjá félagsþjónustu Dalabyggðar við heimaþjónustu. Í félagslegri heimaþjónustu er veitt aðstoð við þrif, heimilisstörf og/eða félagslegur stuðningur til að gera viðkomandi kleift að búa á eigin heimili við sem eðlilegastar aðstæður. Umsækjandi þarf að vera stundvís, áreiðanlegur, heiðarlegur og hafa góða samskiptahæfileika. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Karlar jafnt sem konur eru …