Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Lokahóf UDN”
04.09.2019

Lokahóf UDN

Lokahóf UDN verður haldið fimmtudaginn 5. september í grunnskólanum á Reykhólum. Skemmtunin stendur frá kl. 18 til kl. 20. Verðlaunaafhendingar, grill og leikir.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Lánasérfræðingar Byggðastofnunar”
04.09.2019

Lánasérfræðingar Byggðastofnunar

Lánasérfræðingar Byggðastofnunar bjóða uppá viðtalstíma á Vesturlandi dagana 9.-11. september.   Áhugasamir geta aflað sér upplýsinga og bókað viðtal hjá Guðbjörgu á netfanginu gudbjorg@byggdastofnun.is eða í síma 455 5400 fyrir hádegi á virkum dögum.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Ljósleiðaravæðing – Dalaveitur”
30.08.2019

Ljósleiðaravæðing – Dalaveitur

Nú styttist í að Dalaveitur ljúki ljósleiðaravæðingu í dreifbýli Dalabyggðar. Plæging ljósleiðarastrengs úr Saurbæ um Skarðsströnd í átt að Klofningi hófst í júlí og er verktakinn nú í grennd við Skarð. Plægt verður yfir á Fellsströnd í haust þar sem Stóra-Tunga er endastaður. Að því loknu verða tækin færð inn í Saurbæ til að plægja streng inn Gilsfjörð í Ólafsdal
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Viðvera atvinnuráðgjafa”
30.08.2019

Viðvera atvinnuráðgjafa

Ólafur Sveinsson atvinnuráðgjafi SSV verður með viðveru í stjórnsýsluhúsinu fyrsta þriðjudag hvers mánaðar kl. 13-15  frá september 2019 til maí 2020. Tímapantanir eru í síma 892 3208.   Viðvera atvinnuráðgjafa í Dölunum Þriðjudaginn 3. september 2019 kl. 13-15. Þriðjudaginn 1. október 2019 kl. 13-15. Þriðjudaginn 5. nóvember 2019 kl. 13-15. Þriðjudaginn 3. desember 2019 kl. 13-15. Þriðjudaginn 7. janúar 2020 kl. 13-15.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Nýir straumar – tækifæri dreifðra byggða”
30.08.2019

Nýir straumar – tækifæri dreifðra byggða

Fimmtudaginn 5. september kl. 9-13:30 verður haldin ráðstefna um fjórðu iðnbyltinguna samtímis á sex stöðum á landinu, í Borgarnesi, Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Reyðarfirði og Selfossi.   Málstofan fer fram samtímis með sömu dagskrá á sex stöðum á landinu en jafnframt verður hún send út á internetinu. Hægt verður að taka þátt með því að mæta á einhvern þessara 6 staða
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Bókasafn – opnunartími”
29.08.2019

Bókasafn – opnunartími

Frá og með 1. september verður Héraðsbókasafn Dalasýslu opið á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 12:30-17:30.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Járngerðarhátíð á Eiríksstöðum”
26.08.2019

Járngerðarhátíð á Eiríksstöðum

Járngerðarhátíð verður á Eiríksstöðum frá föstudeginum 30. ágúst til sunnudagsins 1. september kl. 11 – 17 með fjölbreyttri dagskrá. Þar á eftir verður síðan dagskrá í Árbliki kl. 17:30-19:30.   Föstudaginn 30. ágúst mun Margrét Hrönn Hallmundsdóttir fjalla um fornleifarannsóknir sínar tengdar járngerð á Íslandi. Þá mun Ólöf Bjarnadóttir fjalla um rannsóknir sínar á heiðni. Þessir fyrirlestrar verða á íslensku, en samantekt
Skoða betur
26.08.2019

Sögurölt – Gilsfjarðarbrekka

Tíunda og síðasta sögurölt sumarsins verður í Gilsfjarðarbrekku miðvikudaginn 28. ágúst kl. 19:30. Mæting er á túninu móts við afleggjarann að bænum og gengið verður niður í fjöruna. Í fjörunni verður sagt frá daglegu lífi í Gilsfjarðarbrekku, frá ábúendum, Steinadalsheiði, hrakningum og draugum.   Vegalengdin er mjög stutt og þeim sem finnst of stutt gengið er bent á að hægt
Skoða betur
20.08.2019

Sögurölt – Kýrhamar

Þátttaka í söguröltum safnanna á Ströndum og í Dölum hefur verið til fyrirmyndar í sumar. Nú er komið að níunda og næstsíðasta sögurölti sumarsins og er það á dagskrá miðvikudaginn 21. ágúst kl. 19:30. Gengið verður frá hlaðinu á Skriðnesenni í Bitrufirði og út með sjónum að Kýrhamri.   Vegalengdin frá bænum út að hamrinum er 2 km, eftir auðgengnum
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Vettvangsferð vegna rammaáætlunar”
20.08.2019

Vettvangsferð vegna rammaáætlunar

Verkefnisstjórn 4. áfanga rammaáætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða ásamt fulltrúum faghópa kom í til vettvangsferðar um Dalabyggð og Reykhólahrepp til að kynna sér áform um virkjun vindorku vindmyllugarða í Sólheimum og á Hróðnýjarstöðum í Dalabyggð og Garpsdal í Reykhólahrepp.   Fulltrúar Dalabyggðar voru Kristján Sturluson sveitarstjóri, Eyjólfur Ingvi Bjarnason oddviti, Ragnheiður Pálsdóttir varaoddviti, Skúli Guðbjörnsson formaður byggðaráðs, Hörður Hjartarson
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Tónleikar: Óskar Guðjónsson og Ife Tolentino”
14.08.2019

Tónleikar: Óskar Guðjónsson og Ife Tolentino

Óskar Guðjónsson og Ife Tolentino halda tónleika á Hótel Eddu Laugum laugardaginn 17. ágúst kl. 20:30. Á dagskrá verður meðal annars brasilísk tónlist, djass og rokk. Miðaverð er 2.000 kr. Athugið að ekki er posi í miðasölunni.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Íslandsmeistaramótið í hrútadómum 2019”
12.08.2019

Íslandsmeistaramótið í hrútadómum 2019

Íslandsmeistaramótið í hrútadómum verður haldið sunnudaginn 19. ágúst og hefst kl. 14 í Sævangi við Steingrímsfjörð.   Hrútadómarnir fara þannig fram að ráðunautur fer fyrir dómnefnd  sem metur fjóra hrúta með nútíma tækjum og tólum og raðar þeim í gæðaröð. Síðan reyna keppendur sig við matið á hrútunum með hendur og hyggjuvit að vopni og reyna að komast að sömu
Skoða betur
Fréttir.