Augnlæknir

DalabyggðFréttir

Guðrún J. Guðmundsdóttir augnlæknir verður með móttöku á heilsugæslustöðinni á Reykhólum fimmtudaginn 16. ágúst og í Búðardal föstudaginn 17. ágúst. Tímapantanir eru í síma 432 1450.

Sveitarstjórn Dalabyggðar 164. fundur

DalabyggðFréttir

164. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal fimmtudaginn 9. ágúst 2018 og hefst kl. 16. Dagskrá Almenn mál – umsagnir og vísanir 1. Ráðning sveitarstjóra 2. Kosning í nefndir skv. A-hluta 48 gr. samþykkta Dalabyggðar 3. Kosning í verkefnabundnar nefndir skv. C-hluta samþykkta Dalabyggðar 4. Stofngjald ljósleiðara – eignir Dalabyggðar 5. Lántaka vegna framkvæmda Dalaveitna ehf. 6. Íþróttamannvirki …

Sögurölt um Fagradalsfjöru

DalabyggðFréttir

Fimmtudagskvöldið 9. ágúst kl. 19:30 verður rölt um Fagradalsfjöru á Skarðsströnd og í Saurbæ. Þar verða sagðar sögur og lífið í fjörunni skoðað með dyggri aðstoð bænda í dalnum fagra. Í Fagradalsfjöru er margt að skoða, söl, skeljar, æðarfugl, naust, þang, máfa, krækling, sauðfé, kuml, marhálm, skarfa, seli, dys, hrúðurkarla, haferni, orrustuvelli og svo ótalmargt annað. Sannkallaður ævintýraheimur og aldrei …

Ólafsdalshátíð

DalabyggðFréttir

Árleg Ólafsdalshátíð verður haldin laugardaginn 11. ágúst. Ókeypis aðgangur er á hátíðina en gestir hvattir til að kaupa miða í Ólafsdalshappdrættinu. Dagskrá Gönguferð að víkingaaldarskálanum í Ólafsdal og öðrum minjum. Leiðsögumaður: Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur. Mæting er kl. 10:45 og gangan hefst kl. 11. Sala á miðum í Ólafsdalshappdrættinu hefst kl.12:00. Miðaverð er 500 kr. Ólafsdalsmarkaður og sýningar í skólahúsinu hefjast kl. 12. Meðal …

Sögurölt um Tröllatungu

DalabyggðFréttir

Þriðjudagskvöldið 31. júlí kl. 19:30 halda sögurölt um Dali og Strandir áfram. Nú verður gengið í nágrenni bæjarins Tröllatungu í Tungusveit á Ströndum og hefst gangan á hlaðinu á bænum. Um er að ræða auðvelda og þægilega göngu, við allra hæfi.   Fyrir ókunnuga er bent á að beygt er fram að Tröllatungu við bæinn Húsavík við Steingrímsfjörð. Húsavík stendur …

Háls-, nef og eyrnalæknir

DalabyggðFréttir

Þórir Bergmundsson, háls-, nef og eyrnalæknir verður með móttöku á Heilsugæslustöðinni í Búðardal miðvikudaginn 8. ágúst næstkomandi. Tímapantanir eru í síma  432 1450

Nýr sveitarstjóri Dalabyggðar

DalabyggðFréttir

Kristján Sturluson sérfræðingur í dómsmálaráðuneytinu hefur verið ráðinn sveitarstjóri Dalabyggðar. Þetta var samþykkt á fundi byggðarráðs Dalabyggðar í dag. Kristján hefur langa reynslu af stjórnunarstörfum. Hann var sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Hafnarfjarðarbæjar frá 2013 til 2016, gegndi starfi framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi um átta ára skeið og þar áður var hann framkvæmdastjóri mannauðs- og umhverfismála hjá Norðuráli á Grundartanga. Hann hefur …

Sturluhátíð 29. júlí 2018

DalabyggðFréttir

Sturla Þórðarson sagnaritarinn mikli var fæddur 29. júlí 1214. Sunnudaginn 29. júlí 2018 verður haldin Sturluhátíð í Tjarnarlundi í Dalabyggð. Samkoman hefst klukkan 14. Að þessu sinni er atburðurinn tengdur fullveldinu. Það er vegna þess að fornritin íslensku voru í senn menningararfur og undirstaða sjálfstæðisbaráttunnar, baráttunnar fyrir fullveldi þjóðarinnar. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur ávarp við upphaf Sturluhátíðarinnar, en Ragnheiður Pálsdóttir …

Reykhóladagar 2018

DalabyggðFréttir

Árlegir Reykhóladagar verða haldnir helgina 27. – 29. júlí með viðeigandi dagskrá. Á dagskrá er meðal annars bátabíó, landbúnaðarleikar, unglingapartý, þarabolti, uppistand, dráttarvélakeppni, vöfflukaffi, karnival, veltibíll, kvöldvaka, hæfileikakeppni, barnaball og dansleikur.   Reykhóladagar – fb Reykhólavefurinn