Dalaveitur, lagning ljósleiðara 2018

DalabyggðFréttir

Dalaveitur ehf. óska eftir tilboðum í lagningu ljósleiðara í dreifbýli Dalabyggðar. Leggja skal ljósleiðaralagnir, ganga frá þeim inn fyrir vegg á tengistöðum og ganga frá yfirborði og brunnum. Verkið skiptist í þrjá hluta og geta bjóðendur boðið í eina, tvær eða þrjár leiðir. Helstu magntölur: Leið 4: Plæging stofn- og heimtauga 55 km Leið 5: Plæging stofn- og heimtauga 56 …

Til þeirra sem sinna ferðamönnum í Dalabyggð

DalabyggðFréttir

Dalabyggð vekur athygli á að flest fyrirtæki í ferðaþjónustu eru annað hvort rekin með tilteknum leyfum eða opinberri skráningu. Þannig eru ferðaskrifstofur (sem skipuleggja ferðir lengra en yfir daginn) og ferðaskipuleggjendur (sem skipuleggja dagsferðir eða styttri) háðir leyfi frá Ferðamálastofu. Gistileyfi þarf fyrir gistiþjónustu í atvinnuskyni, en einnig er heimagisting leyfileg, en skráningarskyld.  Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur eftirlit á landsvísu …

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 159. fundur

DalabyggðFréttir

159. fundur sveitarstjórnar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 20. mars 2018 og hefst kl. 18:00. Dagskrá Almenn mál 1. Ársreikningur 2017 Almenn mál – umsagnir og vísanir 2. Áfangastaðaáætlun DMP 3. Ólafsdalur 2 – lögbýlisskráning 4. Sameining almannavarnanefnda á Vesturlandi 5. Brunavarnaáætlun 6. Aðalskipulag 2017-2029 7. Sameiginleg lögreglusamþykkt fyrir sveitarfélögin á Vesturlandi 8. Byggðaáætlun 2018 – 2024 9. Mál frá Alþingi til umsagnar …

Garðyrkjufélag Dalabyggðar

DalabyggðFréttir

Miðvikudaginn 14. mars kl 20 efnir Garðyrkjufélag Dalabyggðar til fræðslukvölds í fundarsal stjórnsýsluhússin við Miðbraut 11 í Búðardal. Kristinn H. Þorsteinsson fræðslustjóri Garðyrkjufélags Íslands mun í erindi fjalla um göngustígagerð. Af því loknu mun Sigurbjörn Einarsson jarðvegslíffræðingur fjalla um mikilvægi svepprótar, sambýlisform sveppa og trjáróta fyrir vöxt og viðgang trjáa. Hann mun einnig lýsa hvernig bæta megi lifun trjáplantna eftir útplöntun með því …

Breyting á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 20. febrúar 2018 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016, í samræmi við 36 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögur að breytingum á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 varðandi íbúðarsvæði í Búðardal, stækkun verslunar- og þjónustusvæðis í Búðardal og frístundasvæði í landi Hlíðar í Hörðudal. Tillögurnar liggja frammi frá 8. mars 2018 á skrifstofu Dalabyggðar, …

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Ólafsdal

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 20. febrúar 2018 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi í Ólafsdal í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst meðal annars í ákveðnum áherslubreytingum frá gildistöku þess. Til að mynda er nýr byggingarreitur fyrir vélaskemmu, víkkun heimilda á núverandi byggingareitum og nýr kafli um verndun menningarlandslags. Tillögurnar liggja frammi frá 8. …

Kótilettukvöld Lions

DalabyggðFréttir

Kótilettukvöld Lionsklúbbs Búðardals verður í Dalabúð laugardagskvöldið 10. mars. Húsið opnar kl. 19:30, en borðhald hefst kl. 20:00. Lambakótilettur með tilheyrandi og veglegir happdrættisvinningar. Miði á skemmtunina gildir sem happdrættismiði og einnig verður hægt að kaupa aukamiða fyrir happdrættið á 1.000 kr.  Hljómsveitin B4 leikur fyrir dansi að borðhaldi og skemmtun lokinni. Allir sem að skemmtuninni koma gefa vinnu sína …

Fréttatilkynning frá Óbyggðanefnd

DalabyggðFréttir

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur, fyrir hönd íslenska ríkisins, afhent óbyggðanefnd kröfur ríkisins um þjóðlendur á svonefndu svæði 9B, það er Snæfellsnesi ásamt fyrrum Kolbeinsstaðahreppi og fyrrum Skógarstrandarhreppi. Á svæði 9B eru eftirtalin sveitarfélög: Snæfellsbær, Grundarfjarðarbær, Eyja- og Miklaholtshreppur, Helgafellssveit, Stykkishólmsbær, hluti Borgarbyggðar (fyrrum Kolbeinsstaðahreppur) og hluti Dalabyggðar (fyrrum Skógarstrandarhreppur). Óbyggðanefnd, sem er úrskurðarnefnd á stjórnsýslustigi, kynnir nú þessar kröfur, í samræmi …

Umsögn sveitarstjórnar til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins

DalabyggðFréttir

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 20. febrúar sl. var fjallað um bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins dags. 14. febrúar þar sem óskað er umsagnar sveitarstjórnar um kvörtun Bjarna Ásgeirssonar sem barst ráðuneytinu með bréfi dags. 6. febrúar 2018. Sveitarstjóra var falið að gera drög að umsögn og samþykkt var tillaga um að bréf ráðuneytisins og umsögn Dalabyggðar verði birt á vef Dalabyggðar. Það …

Bókavörður Héraðsbókasafns Dalasýslu

DalabyggðFréttir

Dalabyggð auglýsir starf bókavarðar Héraðsbókasafns Dalasýslu laust til umsóknar. Leitað er að bókasafns- og upplýsingafræðingi en til greina kemur að ráða ófaglærðan starfsmann. Starfshlutfall er 50%. Helstu verkefni Bókavörður sér um innkaup bóka, skráir í tölvukerfi, afgreiðir bækur og önnur gögn, raðar í hillur, merkir og plastar bækur, leiðbeinir viðskiptavinum um safnkost og aðstoðar við millisafnalán. Hæfniskröfur Menntun sem nýtist í …