Ungmenni 15-17 ára sem eru í framhaldsskólum eiga rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi. Stuðningurinn er ætlaður foreldrum/forsjáraðilum ungmenna sem leigja herbergi á heimavist, á námsgörðum, eða leiguherbergi á almennum markaði og njóta ekki vegna aldurs réttar til húsnæðisbóta. Samkvæmt reglum skal umsókn berast fyrir 15. þess mánaðar sem greitt er fyrir og ekki greitt aftur í tímann. Umsókn gildir fyrir hverja …
Íbúafundur – DalaAuður
Íbúafundur í Búðardal í verkefninu DalaAuður undir merkjum Brothættra byggða Íbúafundur verður haldinn í Dalabúð þriðjudaginn 23. ágúst klukkan 18:00 – 20:30. Fundurinn er haldinn í tengslum við byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir en verkefnið í Dalabyggð fékk nafnið DalaAuður á íbúaþingi í vor. Á íbúafundi verður kynnt tillaga að verkefnisáætlun fyrir DalaAuð, þar sem sett hafa verið fram markmið sem snúa …
Aðalfundur Undra
Aðalfundur Íþróttafélagsins Undra verður haldinn í Dalabúð mánudaginn 29. ágúst kl. 20:00. Dagskrá fundar: Yfirlit ársins Fjármál Kynning á vetrardagskrá Önnur mál Allir eru velkomnir. Stjórn Íþróttafélagsins Undra
Rafmagnslaust í Sælingsdal
Rafmagnslaust verður frá Árbæ í Hvammssveit og inn í Sælingsdal föstudaginn 19. ágúst 2022 frá kl 00:00 til kl 04:00 vegna vinnu við dreifikerfi Rarik. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK á Vesturlandi í síma 528 9000 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof
Hundahald í Dalabyggð
Um hundahald í Dalabyggð gildir samþykkt um hundahald í Dalabyggð nr. 26/2003. Samþykktina má finna HÉR. Alla hunda í Búðardal skal skrá á skrifstofu Dalabyggðar og greiða skráningargjald, eftir það er greitt árgjald. Í skráningargjaldi er innifalin örmerking, skráning, merking, ábyrgðartrygging, hundahreinsun og árgjald það ár. Í árgjaldi er innifalin ábyrgðartrygging og hundahreinsun. Hundahreinsun í dreifbýli fer fram samhliða öðrum …
Rafmagnslaust í Suðurdölum
Rafmagnslaust verður í Suðurdölum frá Álfheimum að Fellsenda miðvikudaginn 3. ágúst. Fyrst frá kl. 11:00 til kl. 11:20 og svo aftur frá kl. 17:00 til kl. 17:20 vegna vinnu við dreifikerfi RARIK. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9000 og kort af svæðinu má sjá …
Laugar í Sælingsdal
Dalabyggð og óstofnað eignarhaldsfélag hafa gert með sér kaupleigusamning vegna fasteigna sveitarfélagsins að Laugum í Sælingsdal. Eignarhaldsfélagið tekur eignirnar á leigu til 15. janúar 2025 og hefur eftir það kauprétt á þeim fyrir kr. 270.000.000. Tilboð þessa efnis var samþykkt á fundi byggðarráðs Dalabyggðar í morgun.
Bókabingó – Lestrarátak í Dalabyggð sumarið 2022
Markmið með lestrarátaki yfir sumartímann er að hvert barn lesi í sumar, viðhaldi leshraða, lesskilningi og njóti lestursins. Lestur ýtir undir betri og fjölbreyttari orðaforða, styður við þroska barna og eykur þekkingu þeirra á svo margan hátt. Skólar og bókasöfn standa reglulega fyrir lestrarátaki en yfir sumartímann er hætt við að lestur detti niður eða gleymist í fríi og ferðalögum. …
Sumarlokun skrifstofu Dalabyggðar 2022
Skrifstofa Dalabyggðar verður lokuð dagana 1. – 5. ágúst nk. vegna sumarleyfa og verður opnuð að nýju mánudaginn 8. ágúst. Á þessum tíma er hægt að senda tölvupóst á dalir@dalir.is sem verður svarað við fyrsta tækifæri. Skrifstofan er opin frá kl.09:00 – 13:00 dagana 26. – 29. júlí nk. áður en sumarlokun tekur gildi.
Sveitarstjórn Dalabyggðar – 223. fundur
223. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, mánudaginn 25. júlí 2022 og hefst kl. 19:00. Gert er ráð fyrir að fundurinn verði lokaður og verður tillaga um það tekin fyrir í upphafi fundar. Dagskrá: Almenn mál 2206024 – Laugar í Sælingsdal – tilboð 21.07.2022 Kristján Sturluson, starfandi sveitarstjóri.