Sveitarstjórn Dalabyggðar – 168. fundur

DalabyggðFréttir

168. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 26. nóvember 2018 og hefst kl. 16.   Dagskrá Almenn mál 1. Fjárhagsáætlun 2019 – 2022, önnur umræða. Breytingatilögur byggðarráðs við fjárhagsáætlun lagðar fram. Úr fundargerð 213. fundar byggðarráðs 20. nóvember 2018: Fjárhagsáætlun 2019 – 2022 Tillaga um álagningarhlutfall útsvars og fasteignagjalda samþykkt og verður lögð fyrir sveitarstjórn. Breytingartillögur við …

Sveitarstjórnarfundi frestað

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórnarfundi sem var boðaður 22. nóvember er frestað til mánudagsins 26. nóvember. Þau mistök urðu að þegar sveitarstjórnarfundur sem vera átti í dag, 22. nóvember, var boðaður með tilskyldum fyrirvara, láðist að setja auglýsingu um fundinn inn á heimasíðu Dalabyggðar. Vegna þessa verður fundi sveitarstjórnar frestað um fjóra sólarhringa til þess að auglýsing um hann nái að birtast með nægum fyrirvara. …

Davíðsmótið

DalabyggðFréttir

Davíðsmótinu í bridge sem vera átti laugardaginn 1. desember hefur verið frestað framyfir áramót.

Sýsluskrifstofan lokuð

DalabyggðFréttir

Vegna veikinda er sýsluskrifstofan í Búðardal lokuð í dag, fimmtudaginn 15. nóvember 2018.

Strandir 1918 og Stefán frá Hvítadal

DalabyggðFréttir

Sunnudaginn 11. nóvember verður sögusýningin Strandir 1918 opnuð í Sævangi kl. 15:00. Samhliða verður haldin sögustund þar sem fjallað verður um bókmenntir og menningarlíf á Ströndum 1918. Sérstök áhersla verður lögð á ljóð og æfi Stefáns frá Hvítadal, en nú eru einmitt 100 ár síðan fyrsta ljóðabók hans kom út. Elfar Logi Hannesson frá Kómedíuleikhúsinu mætir á svæðið með nýja …

Um ýmsar trissur aðrar

DalabyggðFréttir

Fjórir höfundar á ferð, lesa úr verkum sínum í fjósinu á Erpsstöðum, laugardaginn 10. nóvember kl 16. Fjósaskáldin frómu eru Auður Ava Ólafsdóttir Ungfrú Ísland, Bergsveinn Birgisson Lifandilífslækur, Bjarni M Bjarnason, Læknishúsið og Sigurbjörg Þrastardóttir Hryggdýr. Höfundarnir munu vera með eintök til sölu og árita ef vel viðrar. Gott að hafa lausan pening meðferðis, eða eitthvað af þessum nýmóðins greiðsluöppum …

Eldri borgarar kaffi

DalabyggðFréttir

Börnin í leikskóladeild Auðarskóla bjóða eldri borgurum til samverustundar ásamt kaffi og með´í mánudaginn 12. nóvember kl. 9.30 – 11:00 .

Tillaga um deiliskipulag í landi Óss á Skógaströnd

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórn Dalabyggðar staðfesti  á fundi sínum þann 18. október 2018 fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar Dalabyggðar um að auglýsa tillögu á deiliskipulagi frístundarbyggðar í landi Óss á Skógarströnd samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagssvæðið er á jörðinni Ósi á Skógarströnd þar sem skilgreint er svæði fyrir frístundarbyggð (F1) í aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016. Svæðið er um 39 ha að stærð og …

Íbúafundur um sölu Lauga

DalabyggðFréttir

Íbúafundur um stöðu og framtíð Lauga var haldinn þriðjudagskvöldið 6. nóvember í Dalabúð. Salurinn í Dalabúð var þéttsetinn en á fundinn mættu á annað hundrað manns. Sveitarstjórnarmenn tóku fyrst til máls hver af öðrum. Góð þátttaka var síðan meðal fundagesta í umræðum. Auk sveitarstjórnarfulltrúa tóku 22 til máls til máls af báðum kynjum og á öllum aldri og lögðu fram …