15.04.2014Næringarfræðingur Ólöf Helga Jónsdóttir, næringarfræðingur, verður með stofu á heilsgæsunni í Búðardal föstudaginn 25. apríl næst komandi. Tímapantanir eru í síma 432 1450.Skoða betur
14.04.2014Bergsveinn og Geirmundur í Tjarnarlundi Bergsveinn Birgisson mun verða með erindi á vegum Þaulseturs miðvikudaginn 16. apríl kl. 20 í Tjarnarlundi í Saurbæ um landnámsmanninn Geirmund heljarskinn og bók sína Den svarte vikingen. Geirmundur heljarskinn var konungssonur frá Rogalandi, fór í víking til Írlands og Bjarmalands (N-Rússland) og endaði ævina á Skarðsströndinni. Áralangar rannsóknir liggja að baki bókarinnar og gengur sagnfræði bókarinnar að hluta þvertSkoða betur
14.04.2014Páskagleðin Móðir/faðir hvar er barnið þitt? Hugleiðing í aðdraganda páskanna. Íslenskar kannanir sýna að börn og unglingar/ungmenni vilja verja meiri tíma með foreldrum sínum en þau gera. Samverustundir fjölskyldna eru dýrmætar og hvetja unga fólkið til heilbrigðara lífernis. Verum samstíga um að gera páskana að hátíð þar sem fjölskyldan skemmtir sér saman. Með því sjáum við til þess að börnin okkarSkoða betur
11.04.2014Sveitarstjórn Dalabyggðar – 111. fundur 111. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 15. apríl 2014 og hefst kl. 18. Dagskrá Gera má ráð fyrir að tillaga verði gerð að því að fundargerð 49. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar verði tekin á dagsskrá en fundurinn hefur verið boðaður 14. apríl. Almenn mál 1. Samorka – Boð um aðild að samtökunum 2. Veiðifélag LaxárSkoða betur
10.04.2014Leifsbúð opnar Í tilefni af opnun Leifsbúðar laugardaginn 12. apríl verður opið hús kl. 16-18. Léttar veitingar verða í boði og lifandi tónlist.Skoða betur
09.04.2014Hleðsla slökkvitækja Lionsklúbbur Búðardals í samvinnu við slökkviliðið gengst fyrir hleðslu á slökkvitækjum. Tekið verður á móti slökkvitækjum í slökkvistöðinni, Miðbraut 9 eftirtalda daga: miðvikudaginn 9. apríl kl. 17-19 fimmtudaginn 10. apríl kl. 17-19 föstudaginn 11. apríl kl. 17-19 laugardaginn 12. apríl kl. 10-19 Nánari upplýsingar fyrirkomulag og kostnað eru í dreifibréfi.Skoða betur
07.04.2014Vetrarleikar Glaðs Vetrarleikar Glaðs fara fram á reiðvellinum í Búðardal laugardaginn 12. apríl klukkan 12. Keppt verður í barna-, unglinga-, ungmenna- og opnum flokki. Keppnisgreinar eru fjórgangur, fimmgangur, tölt og 100 metra skeið. Nánari upplýsingar um mótið og skráningu er að finna á heimasíðu Glaðs. Hestamannafélagið GlaðurSkoða betur
07.04.2014Breytingar á sorphirðu í Dalabyggð Sveitarstjórn hefur ákveðið, að höfðu samráði við Gámaþjónustu Vesturlands ehf. að almenn sorphirða frá heimilum verði á 14 daga fresti frá 1. apríl. Sorphirðing verður annan hvern þriðjudag. Samhliða þessu verða gerðar breytingar á flokkunarstöðinni við Vesturbraut (gámavellinum) þannig að íbúar geta komið með flokkað sorp á öllum tímum sólarhrings og losað í svokallaða flokkunarkrá. Með því að flokka sorpSkoða betur
04.04.2014Söfnun sjúkraflutningaaðila Sjúkraflutningsmenn í Búðardal hafa nú hafið söfnun fyrir sjálfvirku hjartahnoðtæki til að hafa í sjúkrabíl í Búðardal. Starfsmenn sjúkraflutninga Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi hafa staðið fyrir sambærilegri söfnun undanfarnar vikur með góðum árangri. Tæki af þessari gerð hefur hlotið nafnið Lúkas, en þar er verið að vísa í að með notkun þess jafngildir það viðbótarmanni við endurlífgun. Tækið sér algjörlegaSkoða betur
03.04.2014Bókasafn innheimta Árgjald Héraðsbókasafns fyrir árið 2014 verður óbreytt frá fyrra ári, það er 1.000 kr. Hægt er að greiða árgjaldið á bókasafninu hjá bókaverði eða inn á reikning 0312-26-001818, kt. 510694-2019 og merkja það viðkomandi og bókasafni. Eindagi árgjalds er 1. maí og eftir það verður greiðsluseðlar sendir út að viðbættum kostnaði. Héraðsbókasafn Dalasýslu er opið á þriðjudögum og fimmtudögum kl.Skoða betur
03.04.2014Hundahald í Búðardal Minnt er á að hundahald í Búðardal sætir nokkrum takmörkunum samanber samþykkt um hundahald í Dalabyggð. Takmarkanirnar eru m.a. eftirfarandi – eiganda er skylt að skrá hund sinn á skrifstofu Dalabyggðar. – eiganda er skylt að kaupa ábyrgðartryggingu hjá viðurkenndu tryggingarfélagi. – óheimilt er með öllu að láta hunda ganga lausa, en heimilt er að hafa þá í taumi útiSkoða betur
02.04.2014Sjálfboðavinnuverkefni Til sjálfboðavinnuverkefna í Dalabyggð eru til ráðstöfunar samkvæmt fjárhagsáætlun2014 allt að 1 milljón króna. Framlögin skulu nýtt til efniskaupa og vélavinnu. Reglur um sjálfboðavinnuverkefni og umsóknareyðublöð eru á vef Dalabyggðar. Umsóknarfrestur er til 2. maí 2014. Byggðarráð afgreiðir umsóknir. Almenn skilyrði fyrir úthlutun framlaga eru að umsækjandi eigi lögheimili í Dalabyggð, sé ekki í vanskilum við sveitarfélagið og að umsókninniSkoða betur