27.11.2013Jólaljósunum frestað Fyrirhugaðri jólatréssamkomu sem átti að vera við Dalabúð í dag 27. nóvember er frestað vegna veðurs. Nánar auglýst síðar.Skoða betur
26.11.2013Jólamarkaður í Króksfjarðarnesi Hinn árlegi jólamarkaður í Kaupfélaginu í Króksfjarðarnesi verður haldinn laugardaginn 30. nóvember og sunnudaginn 1. desember kl. 13 – 18 báða dagana. Á boðstólum verða handunnir munir, kerti, greni, bækur og margt fleira. Kvenfélagið Katla selur kaffi og kökur. Söluaðilar eru handverksfélagið ASSA, Krabbameinsfélag Breiðfirðinga, Vinafélag Barmahlíðar, Björgunarsveitin Heimamenn, Nemendafélag Reykhólaskóla, Kvenfélagið Katla og Lionsdeildin á Reykhólum. Á laugardaginn verðurSkoða betur
25.11.2013Jólatré við Dalabúð Miðvikudaginn 27. nóvember kl. 17:30 verður kveikt á ljósum jólatrésins við Dalabúð, sama stað og í fyrra. Búist er við komu jólasveina á svæðið. Að venju verður dansað og sungið. Boðið verður uppá heitt súkkulaði með rjóma og piparkökur.Skoða betur
23.11.2013Sæll dagur Það er ekki á hverjum degi sem Dalamenn gefa út ljóðabækur. Björn Stefán Guðmundsson frá Reynikeldu hefur nú gefið út sína fyrstu ljóðabók, Sæll dagur. Björn þarf ekki að kynna fyrir nokkrum Dalamanni, enda kennt mörgum Dalamanninum í farskóla á Skarðsströnd, í Búðardal, á Laugum og í forföllum í Tjarnarlundi. Fyrir áhugasama unnendur ljóða og Bjössa þá fæst bókin íSkoða betur
22.11.2013Sveitarstjórn Dalabyggðar – 106. fundur 106. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 26. nóvember 2013 og hefst kl. 18. Dagskrá Almenn mál 1.Ólafsdalsfélagið – skýrsla og umsókn fyrir árið 2014. 2.Áskorun Stéttarfélags Vesturlands – Stöndum saman gegn verðbólgu. Almenn mál – umsagnir og vísanir 3.Drög að verndaráætlun Breiðafjarðar. Fundargerðir til staðfestingar 4.Menningar- og ferðamálanefnd Dalabyggðar – 42 5.Menningar- og ferðamálanefnd DalabyggðarSkoða betur
20.11.2013Nemendafélag Auðarskóla safnar fyrir UNICEF Tveir drengir í unglingadeild Auðarskóla fengu þá hugmynd fyrir nokkrum vikum að safna fyrir UNICEF. Hefur nemendafélagið verið að skipuleggja það upp á síðkastið, en þar sem mikil þörf er á aðstoð er komið að því að skella sér af stað í söfnunina. Dalamenn og fleiri hafa verið mjög duglegir að styrkja félagsstarf Auðarskóla þegar þau safna fyrir skemmtunum ogSkoða betur
14.11.2013Sýsluskrifstofa lokuð Skrifstofa Sýslumannsins í Búðardal er lokuð föstudaginn 15. nóvember vegna námskeiða.Skoða betur
14.11.2013Karlakórinn Kári Karlakórinn Kári heldur tónleika í Dalabúð laugardaginn 23. nóvember kl. 16. Karlakórinn Kári var stofnaður í ársbyrjun 2008 og samanstendur af 30félögum úr Stykkishólmi, Grundarfirði og Snæfellsbæ. Kórstjórnandi frá upphafi hefur verið Hólmfríður Friðjónsdóttir. Á efnisskrá tónleikanna verða hefðbundin karlakóralög. Auk þess mun einn kórfélaganna, Lárus Ástmar Hannesson, syngja einsöng. Aðgangseyrir er 1.500 kr.Skoða betur
14.11.2013Sykurmælingar Lionsklúbburinn í Búðardal ætlar í tengslum við alþjóðlega sykursýkisdaginn að bjóða íbúum Dalabyggðar og Reykhólahrepps upp á ókeypis sykurmælingu laugardaginn 16. nóvember í Samkaupum kl. 14-16 Þórður Ingólfsson læknir og Gróa Dal hjúkrunarfræðingur munu sjá um mælinguna. Sykursýki er falinn vágestur sem margir einstaklingar ganga með án nokkurrar vitneskju. En það getur haft í för með sér alvarlegan heilsubrest verðiSkoða betur
13.11.2013Árni Magnússon 1663-1730 Í dag, 13. nóvember, eru 350 ár liðin frá fæðingu Dalamannsins Árna Magnússonar handritasafnara. Árni Magnússon var fæddur á Kvennabrekku 13. nóvember 1663. Foreldrar hans voru sr. Magnús Jónsson og Guðrún Ketilsdóttir. Ungur var hann sendur í fóstur til móðurforeldra sinna, Ketils Jörundssonar prófasts og Guðlaugar Pálsdóttur í Hvammi. Fyrstu menntun sína hlaut Árni hjá Katli afa sínum, sem varSkoða betur
06.11.2013Rúllupylsukeppnin Sauðfjársetur á Ströndum og Slow food samtökin á Íslandi halda Íslandsmeistaramót í rúllupylsugerð í Sauðfjársetrinu á Ströndum laugardaginn 23. nóvember kl. 13. Þetta verður í annað skiptið sem keppnin er haldin. Árið 2012 var keppnin haldin í Króksfjarðarnesi. Þá fengu Strandamennirnir Matthías Lýðsson og Hafdís Sturlaugsdóttir í Húsavík, fyrstu verðlaun fyrir léttreykta rúllupylsu.Rúllupylsuuppskriftir þekkjast úr fornum og nýjum uppskriftarbókum enSkoða betur
05.11.2013Norræni skjaladagurinn 2013 Héraðsskjalasafn Dalasýslu verður með sýningu í tilefni norræna skjaladagsins laugardaginn 9. nóvember kl. 13-17 í Byggðasafni Dalamanna á Laugum í Sælingsdal. Yfirskrift skjaladagsins að þessu sinni er „Fjársjóðir úr fórum skjalasafnanna“. Í héraðsskjalasafninu eru eintómir fjársjóðir og gersemar og því úr vöndu að ráða. Fyrir valinu varð nýjasta viðbót safnsins, vísnasafn Einars á Laugum. Í lok október var safninu afhentSkoða betur