Rafmagnsleysi á Saurbæjarlínu 07.03.2022

DalabyggðFréttir

Rafmagnslaust verður á Fellströnd, Skarðsströnd og í Saurbæ 07.03.2022 frá kl 13:00 til kl 15:00 vegna vinnu við dreifikerfi Rarik. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof

Laus störf í stuðningsþjónustu (liðveislu)

DalabyggðFréttir

Félagsþjónustan auglýsir eftir einstaklingum til að starfa sem liðveitendur. Við leitum að einstaklingum sem náð hafa 18 ára aldri, óháð kyni. Um er að ræða hlutastarf, oftast seinnipart dags og er því tilvalið sem aukastarf með námi eða öðru starfi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi. Félagsleg liðveisla er veitt fötluðum börnum frá 6 ára aldri, sem og fullorðnu fötluðu fólki. Félagsleg …

Leitað eftir stuðningsfjölskyldum

DalabyggðFréttir

Félagsþjónustan leitar eftir fjölskyldum sem eru tilbúnar að gerast stuðningsfjölskyldur. Hlutverk stuðningsfjölskyldna felst í því að taka barn/börn inn á heimilið í stuttan tíma, að jafnaði eina helgi í mánuði. Um er að ræða börn með fötlun eða börn sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Við leitum að einstaklingum sem eru færir um að skapa öruggar aðstæður með hlýju og …

Laust starf: Skólastjóri Auðarskóla

DalabyggðFréttir

Laust er til umsóknar embætti skólastjóra Auðarskóla í Dalabyggð sem er sameinaður leik-, grunn- og tónlistarskóli. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst næstkomandi. Helstu viðfangsefni og ábyrgð Stýrir og ber faglega ábyrgð á daglegri starfsemi skólans í samræmi við gildandi stefnu Ábyrgð á daglegum rekstri og yfirumsjón með fjármálum og rekstrarlegum skuldbindingum skólans Forysta í mótun og …

Opið fyrir umsóknir í menningarmálaverkefnasjóð

DalabyggðFréttir

Menningarmálanefnd Dalabyggðar auglýsir eftir umsóknum í menningarmálaverkefnasjóð. Hlutverk sjóðsins er að styðja við menningarmál í Dalabyggð og er það gert með því að veita styrki eftir því sem menningarmálanefnd Dalabyggðar telur þjóna markmiðum sjóðsins. Umsækjendur í sjóðinn geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir með lögheimili í Dalabyggð. Til úthlutunar árið 2022 eru 200.000 kr.- Umsóknarfrestur er til og með …

Verkefnastjóri Brothættra byggða í Dalabyggð

DalabyggðFréttir

Hefur þú brennandi áhuga á uppbyggingu samfélaga? Við auglýsum eftir verkefnisstjóra til að leiða verkefni brothættra byggða í Dalabyggð. Verkefnið er fjölbreytt og tengist byggðaþróun í víðum skilningi. Verkefnið er hluti af verkefnum Brothættra byggða og er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Dalabyggðar. Um fullt starf er að ræða með starfsstöð í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal og þarf …

Sorphreinsun frestað

DalabyggðFréttir

Sorphreinsun sem áætluð var í vikunni verður því miður frestað vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Við bendum íbúum á að hægt er að fara með flokkað sorp á Endurvinnslustöðin í Búðardal sem er staðsett að Vesturbraut 22, 370 Búðardal og er opin: þriðjudagar 14 – 18 fimmtudagar 14 – 18 laugardagar 10 – 14 Á endurvinnslustöðinni er tekið á móti eftirfarandi flokkum …

Fyrirtækjakönnun landshlutanna 2022

DalabyggðFréttir

Við hvetjum bæði fyrirtæki og einstaklinga í rekstri til að vera með í fyrirtækjakönnun landshlutanna 2022 . Afstaða þín skiptir máli. Fyrirtækjakönnun landshlutanna er á vegum allra landshlutasamtaka á landsbyggðinni, atvinnuþróunarfélaga og Byggðastofnunar. Hún er ætluð öllum, stórum og smáum rekstraraðilum/fyrirtækjum sem eru í framleiðslu eða bjóða þjónustu. Markmiðið er að kanna hver staða þeirra er til að geta stutt …

Laust starf: Sumarafleysing – matráður á Fellsenda

DalabyggðFréttir

Óskað er eftir matráði í sumarafleysingar í eldhús Fellsenda. Í starfinu felst m.a. matreiðsla, bakstur og frágangur. Allar nánari upplýsingar um starfið gefur Heiðrún Sandra Grettisdóttir á netfanginu eldhus@fellsendi.is eða í síma 772-0860.

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 214. fundur

DalabyggðFréttir

FUNDARBOÐ 214. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, fimmtudaginn 10. febrúar 2022 og hefst kl. 16:30 Dagskrá: Almenn mál 1.   2012016 – Svæðisáætlun úrgangsmála á Vesturlandi   2.   1911028 – Undirbúningur íþróttamannvirkja í Dalabyggð   3.   2112001 – Breytt skipulag barnaverndar   4.   2201042 – Fjárhagsáætlun 2022 – Viðauki II   5.   2003004 – Sameining sveitarfélaga – …