28.12.2021
Flugeldasýningu og brennu aflýst
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu og gildandi reglugerðar verður ekki af flugeldasýningu og áramótabrennu í ár. Við beinum því til íbúa sem hyggjast skjóta sjálfir upp flugeldum að safnast ekki saman í hópa, halda fjarlægð við þá sem ekki eru jólakúlunni þeirra og viðhafa grímunotkun þar sem því verður ekki við komið. Klárum árið saman eftir settum reglum og tilmælum.
Skoða betur








