English below Vegna aukinna smitvarna hjá lögreglunni á Vesturlandi hefur afgreiðslum lögreglunnar á Vesturlandi verið lokað frá og með 25.mars 2020. Ef ná þarf sambandi við skrifstofur lögreglunnar á Vesturlandi má hafa samband í síma 444-0300 á tímabilinu 09-12 og 13-15 alla virka daga eða senda póst á netfangið vesturland@logreglan.is Ef ná þarf sambandi við lögreglu á að hafa samband …
Auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar
Auglýsing um takmörkun á samkomum hefur verið birt í Stjórnartíðindum. Samkvæmt auglýsingu tekur takmörkun á samkomum gildi 24. mars 2020 kl. 00:01, sbr. 2. gr. auglýsingar. Það er Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra sem undirritar auglýsinguna. Auglýsinguna má lesa á vef Stjórnartíðinda eða með því að smella HÉR.
Viðbragðsáætlun í landbúnaði vegna COVID-19
Nú þegar COVID-19 veiran herjar á landið er nauðsynlegt fyrir bændur að hafa á búum sínum viðbragðsáætlun sem tekur til þátta sem mikilvægir eru til að tryggja órofinn búrekstur komi til veikinda. Gera þarf ráð fyrir að afleysingamaður geti gengið inn í dagleg störf án þekkingar á viðkomandi búi eða með aðstoð bónda. Þá skiptir viðbragsáætlun hvers bús höfuðmáli. Ráðgjafarmiðstöð …
Frá skólastjóra Auðarskóla
Nú er frysta vikan í samgöngubanni að klárast. Skólastarfið í Auðarskóla hefur gengið vonum fram og hefur skipulagið sem við lögðum upp gegnið vel. Í raun gátum við boðið uppá meira en við héldum þar sem leikskólinn hefur verið opinn fyrir alla og hefur ekki þurft að tvískipta Trölakletti. Við gerum ráðfyrir að næsta vika verði eftir sama skipulagi. En …
Samkomubann og börn
For the announcement in English, click here. Meðfylgjandi eru skilaboð frá Samhæfingarmiðstöð almannavarna: Skólar, leikskólar og íþróttafélög hafa skipulagt vandlega fyrirkomulag næstu daga og vikur til að fara eftir fyrirmælum heilbrigðisráðherra um takmarkanir á skólastarfi og samkomum. Það er mikilvægt að forráðamenn barna dragi á sama tíma úr fjölda einstaklinga í tengslaneti barna sinna utan skólatíma til að vinna ekki …
Félagsmiðstöð og íþróttaæfingar lagðar niður vegna COVID-19
Tekin hefur verið ákvörðun um að leggja niður íþróttaæfingar og félagsmiðstöðina á meðan samkomubann er í gildi. Samkomubannið tók gildi mánudaginn 16. mars kl. 00:01 og mun standa til og með mánudeginum 13. apríl kl. 00:01 eða samanlagt í fjórar vikur. Ef bannið tekur breytingum verður það tilkynnt hérna á síðunni.
Héraðsbókasafn Dalasýslu – vegna COVID-19
Til íbúa Dalabyggðar. Nú þegar viðbrögð og varnir vegna COVID-19 veirunnar ráða för þá vill bókavörður minna fólk á að halda í heiðri þær leiðbeiningar sem gefnar hafa verið út um hvernig við best getum forðast smit. Þvo hendur, hnerra í olnboga, spritta sig og halda tveggja metra fjarlægð frá næsta manni. Bókavörður vill einnig biðja fólk að hafa heimsóknir …
Breytt fyrirkomulag þjónustu hjá skrifstofu Dalabyggðar
Í ljósi þess að neyðarstigi hefur verið lýst yfir í landinu vegna COVID-19 veirunnar mun fyrirkomulag á þjónustu hjá skrifstofu Dalabyggðar breytast frá og með fimmtudeginum 19.mars Aðgangur að vinnuaðstöðu starfsmanna á skrifstofu sveitarfélagsins verður lokaður og því verður ekki hægt að mæta beint á skrifstofur starfsmanna sveitarfélagsins. Eru gestir beðnir að virða tilmæli um að koma ekki inn á …
Skólastarf hafið að nýju
Í morgun mættu nemendur og starfsmenn í Auðarskóla. Mjög vel hefur gengið að fara etir því skipulagi sem búið var að kynna. Það er mikil ró yfir nemendum og skólastarfið gengið vel í breyttri mynd. Bæði nemendur og starfsmenn hafa staðið sig eins og hetjur til að láta allt ganga. Höldum áfram svona! Kær kveðja Hlöðver Ingi Gunnarsson Skólastjóri Auðarskóla
Viðbragðsáætlun Dalabyggðar vegna heimsfaraldurs af völdum COVID-19
Almannavarnir hafa lýst yfir neyðarstigi vegna COVID-19 veirunnar. Dalabyggð fylgist vel með þróun mála og er ítrekað unnið að því að endurmeta viðbrögð við stöðunni. Sveitarfélagið hefur birt helstu fréttir og leiðbeiningar hérna á heimasíðunni og setur nú fram samþykkta viðbragðsáætlun sveitarfélagsins. Áætlunin verður uppfærð reglulega. Meginreglan er sú að fylgja eftir öllum tilmælum yfirvalda, eins og almannavarna, sóttvarnarlæknis og …