Verkefnið Brothættar byggðir hefur verið fest í sessi sem aðgerð í stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024.
Dalabyggð hóf göngu sína í verkefninu Brothættar byggðir á fyrri hluta árs 2022 undir heitinu DalaAuður. Áætlað er að verkefnið vari til loka árs 2025 hvað aðkomu Byggðastofnunar varðar.
DalaAuður er samstarfsverkefni Dalabyggðar, Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi og Byggðastofnunar og er undir hatti brothættra byggða.
Nánari upplýsingar fást hjá Lindu Guðmundsdóttur verkefnisstjóra DalaAuðar í gegnum netfangið: linda@ssv.is
Vefsvæði DalaAuðar hjá Byggðastofnun
Byggðaþróunarverkefnum eins og DalaAuði er ætlað að veita byggðalögum innspýtingu, með því að hvetja til nýsköpunar og frumkvæðis íbúa í félagslegum verkefnum. Liður í því er að veita styrki úr frumkvæðissjóði.
Opnað verður fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóð DalaAuðs í annað sinn þann 1. mars 2023.
Hér má sjá úthlutanir 2022: DalaAuður 2022
Hvað er Frumkvæðissjóður?
- Frumkvæðissjóðir Brothættra byggða eru styrktarsjóðir fyrir frumkvæðisverkefni á þeim svæðum sem taka þátt. Frumkvæðissjóður DalaAuðs styrkir því verkefni sem styðja ýmis konar uppbyggingu í Dalabyggð.
- Veittir eru verkefnastyrkir og stuðningur til þróunarverkefna og annarra samfélagseflandi verkefna.
- Athugið að ekki er krafist mótframlags frá umsækjanda. Það styrkir umsókn ef verkefnið laðar fram fjármuni og krafta aðstandenda verkefnisins og samstarfsaðila. Samstarf aðila sem að jafnaði starfa ekki saman styrkir umsóknina.
Vefsvæði Frumkvæðissjóðs DalaAuðar hjá SSV
Hvernig verkefni eru styrkhæf?
Styrkhæf verkefni eru rannsóknar-, þróunar- og nýsköpunarverkefni þar sem markvisst er stefnt að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Einnig er heimilt að styrkja stofnfjárfestingu í hvers konar verkefnum að því gefnu að þau raski ekki samkeppni á viðkomandi þjónustusóknarsvæði. Enn fremur samfélagseflandi verkefni önnur en þau sem teljast til lögbundinna og/eða hefðbundinna verkefna ríkis eða sveitarfélaga.
Verkefni þurfa að styðja við markmið og framtíðarsýn DalaAuðs. (tengill á verkefnisáætlun í vinnslu). Meginmarkmiðin eru fjögur:
- Samkeppnishæfir innviðir
- Skapandi og sjálfbært atvinnulíf
- Auðugt mannlíf
- Öflug grunnþjónusta
Umsækjendum er bent á að kynna sér vel eftirfarandi þætti:
1. Verklags- og úthlutunarreglur til frumkvæðisverkefna brothættra byggða
2. Úthlutunarreglur DalaAuðs
Hvernig er umsóknarferlið?
Hvar sæki ég um ?
- Umsóknir skulu berast til verkefnisstjóra DalaAuðs í gegnum netfangið: linda@ssv.is
- Umsóknareyðublað má finna hér
- Umsóknarfrestur er til 30. september 2022
Linda Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri DalaAuðs, býður upp á viðtalstíma og ráðgjöf varðandi umsóknarskrif eða hugmyndavinnu. Hægt er að hafa samband við hana í gegnum netfangið: linda@ssv.is eða í síma: 4304700.
Hver metur umsóknina mína?
Verkefnisstjórn fer yfir umsóknir og úthlutar úr frumkvæðissjóði.
Verkefnisstjórn DalaAuðs:
- Björn Bjarki Þorsteinsson – fulltrúi Dalabyggðar
- Bjarnheiður Jóhannsdóttir – fulltrúi íbúa
- Þorgrímur Einar Guðbjartsson – fulltrúi íbúa
- Páll S. Brynjarsson – fulltrúi SSV
- Ólafur Sveinsson – fulltrúi SSV
- Kristján Þ. Halldórsson – fulltrúi Byggðasstofnunar
- Helga Harðardóttir – fulltrúi Byggðastofnunar og formaður stjórnar
Hvernig er ferlið ef verkefnið mitt hlýtur styrk?
- Gerður er skriflegur samningur við styrkþega innan við þremur mánuðum eftir úthlutun.
- Greiðslur styrkja inntar af hendi skv. samningi.
- Verkefni skal að jafnaði lokið ári eftir undirritun samnings.
- Framvindu og/eða lokaskýrslu skal skilað skv. samningi og eru forsendur fyrir lokagreiðslu styrks.
Athugið að ef verkefni er ekki unnið í samræmi við samning ber styrkhafa að endurgreiða styrkinn að fullu eða hluta eftir atvikum.