Fréttir.

08.05.2013

Hætt við fiskþurrkun í Búðardal – upplýsingafundi aflýst

JHS Trading ehf hefur tilkynnt sveitarstjórn að fyrirtækið hafi horfið frá áformum um að koma upp fiskþurrkun í Búðardal. Áhugafólk um framtíð Búðardals hefur aflýst upplýsingafundi er átti að fara fram í Dalabúð í dag 8. maí. Í tölvubréfi JHS Trading kemur m.a. fram að eigandi hitaveitunnar Rarik, geri kröfur um að fyrirtækið leggi fram ábyrgðir vegna framkvæmda sem Rarik
Skoða betur
08.05.2013

Dagur aldraðra á Silfurtúni

Fimmtudagurinn 9. maí er uppstigningardagur og er hann jafnframt sérstaklega helgaður öldruðum í kirkjunni. Af því tilefni verður messa á Silfurtúni kl. 13:30. Kaffi verður í boði Kvenfélagsins Þorgerðar Egilsdóttur. Sama dag sýna íbúar Silfurtúns sýnis handverk vetrarins. Allir eru velkomnir á Silfurtún á degi aldraðra.
Skoða betur
06.05.2013

Fundur um sláturhúsið í Búðardal

Áhugafólk um framtíð Búðardals hefur boðað til upplýsingafundar í Dalabúð miðvikudaginn 8. maí kl. 20:30 um starfsemi sambærilega þeirri sem fyrirhuguð er í sláturhúsinu í Búðardal. Mikil umræða hefur verið um sölu sláturhússins undanfarnar vikur og fyrir liggja drög að starfsleyfi JHS Trading ehf. fyrir hausaverkun í húsinu. Á fundinum verður sambærileg starfsemi kynnt og einnig munu þau fyrirtæki sem
Skoða betur
02.05.2013

Tillaga að starfsleyfi

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefur auglýst tillögu að nýju starfsleyfi fyrir fiskþurkkun JHS Trading ehf. að Ægisbraut 2-4 í Búðardal. Samanber ákvæði reglugerðar nr. 785/1999 um atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun. Tillagan mun liggja frammi á skrifstofu Dalabyggðar og á vef Dalabyggðar frá 2. maí til 31. maí þar sem hægt verður að skoða hana og koma með
Skoða betur
02.05.2013

Innritun í nám við framhaldsskóladeild MB í Búðardal

Nemendur sem hafa hug á að innritast í nám við framhaldsskóladeild MB í Búðardal þurfa að hafa samband við skrifstofu skólans í síma 433 7700. Þetta gildir bæði um nemendur í 10. bekk grunnskóla sem ekki hafa nýtt sér forinnritun og eldri nemendur sem hafa áhuga á að hefja nám að nýju. Nemendur í 10. bekk sem hafa skráð sig
Skoða betur
02.05.2013

Kór eldri borgara í Borgarnesi

Kór eldri borgara í Borgarnesi kemur í heimsókn á morgun, föstudaginn 3. maí til Félags eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólasveit í Dalabúð kl. 14. Allir velkomnir.
Skoða betur
28.04.2013

Staðarhólsbók rímna

Í dag hófst formlega verkefnið Handritin alla leið heim þegar Sigurður Þórólfsson í Innri-Fagradal, fyrir hönd Dalamanna og Vestlendinga, tók á móti eftirgerð af Staðarhólsbók rímna úr höndum Kjartans Sveinssonar, fóstru handritsins. Í tilefni af 350 ára afmæli Árna Magnússonar stendur Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum að sex litlum sýningum víðs vegar um land á sumri komanda. Á hverri
Skoða betur
28.04.2013

Davíðsmótið

Davíðsmótið í bridge var haldið í Tjarnarlundi 27. apríl. Þátt tóku 17 pör víða að. Mótið unnu Sturlaugur Eyjólfsson og Birna Lárusdóttir á Efri-Brunná. Í öðru sæti voru Hermann Karlsson á Klifmýri og Guðmundur Gunnarsson á Kjarlaksvöllum. Í þriðja sæti voru Bergljót Aðalsteinsdóttir og Björgvin Kjartansson.
Skoða betur
27.04.2013

Söfnun á rúlluplasti

Bændur í Dalabyggð eru minntir á söfnun á rúlluplasti mánudaginn 29. apríl og þriðjudaginn 30. apríl. Plastið skal haft á aðgengilegum stað og snyrtilega frágengið fyrir sorpverktaka. Baggabönd og net skal setja sér í glæra plastpoka. Óheimilt er að setja rúlluplast og net í sorpgáma á grenndarstöðvum sveitarfélagsins. Opin brennsla úrgangs er óheimil þ.m.t. rúlluplasts skv. lögum nr. 55/2003, um
Skoða betur
27.04.2013

Alþingiskosningar 27. apríl 2013

Kjörfundur í Dalabyggð vegna Alþingiskosninga fer fram á Héraðsbókasafni Dalasýslu, Miðbraut 11 í Búðardal laugardaginn 27. apríl 2013. Kjörfundur hefst klukkan 10:00. Kjörfundi verður slitið kl. 20:00. Kjósendur eru minntir á að hafa með sér skilríki. Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Dalabyggðar á opnunartíma skrifstofunnar kl. 10-14 fram á kjördag. Kjörstjórn Dalabyggðar Kosningavefur Innanríkisráðuneytisins
Skoða betur
23.04.2013

Dagur bókarinnar

Í dag 23. apríl er alþjóðlegur dagur bóka og höfundarréttar haldinn hátíðlegur. Dagurinn á rætur sínar að rekja til Katalóníu, þar sem messa heilags Georgs er einnig haldin í dag. Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) átti frumkvæðið að því gera þennan dag að alþjóðadegi bóka. Svo vill til að hann er einnig fæðingar- eða dánardagur nokkurra þekktra rithöfunda, til dæmis létust
Skoða betur
23.04.2013

Íþrótta- og tómstundastefna Dalabyggðar

Fræðslunefnd hefur endurskoðað íþrótta- og tómstundastefnu Dalabyggðar frá 2011. Endurskoðuð stefna var samþykkt á fundi fræðslunefndar 4. apríl og staðfest af sveitarstjórn 16. apríl. Íþrótta- og tómstundastefna Dalabyggðar
Skoða betur
Fréttir.