04.07.2013Sumarlokun Hárstofunnar Hárstofan verður lokuð vegna sumarleyfa frá fimmtudeginum 4. júlí til og með þriðudagsins 16. júlí.Skoða betur
01.07.2013Rotþróahreinsun Hreinsun rotþróa fer fram á næstu dögum. Gert er ráð fyrir að rotþrær séu almennt hreinsaðar á þriggja ára fresti og hefur sveitarfélagið séð um hreinsun frá árinu 2009. Hafi einhverjir orðið útundan við hreinsun áranna 2010-2012 eða að þörf er fyrir aukalosun, skulu viðkomandi hafa samband við Viðar í síma 894 0013 eða á netfangið vidar@dalir.is hið fyrsta. VakinSkoða betur
01.07.2013Vegagirðingar Vegfarendur um Dalabyggð hafa haft samband við skrifstofu Dalabyggðar vegna lausagöngu sauðfjár. Til að draga úr slysahættu af völdum saufjár eru bændur og landeigendur í Dalabyggð hvattir til að huga að girðingum meðfram vegum.Skoða betur
25.06.2013Kjör oddvita og varaoddvita Á fundi sveitarstjórnar 18. júní sl. var Jóhannes H. Hauksson kjörinn oddviti síðasta ár kjörtímabilsins.Eyþór J. Gíslason var kjörinn varaoddviti. Í byggðarráð voru kjörnar Ingveldur Guðmundsdóttir, Guðrún Jóhannsdóttir og Halla Steinólfsdóttir. Til vara Guðrún Ingþórsdóttir, Eyþór Gíslason og Daði Einarsson. Byggðarráð skiptir með sér verkum á næsta fundi.Skoða betur
25.06.2013Sýslumaðurinn í Búðardal Vegna sumarleyfa verður skrifstofa Sýslumannsins í Búðardal opin kl. 8:30 – 12:30 frá og með 1. – 12. júlí 2013. Sýslumaðurinn í BúðardalSkoða betur
19.06.2013Gengið um Reykhólasveit Dagana 21. – 24. júní verður útivistarhelgin Gengið um sveit í Reykhólahreppi haldin í þriðja skipti. Um er að ræða lengri og skemmri göngur undir leiðsögn, sem ættu að hæfa öllum aldurshópum. Takmarkaður fjöldi er í löngu gönguna (kjötsúpugönguna) og mælt með því að fólk skrái sig í hana sem allra fyrst. Bætt hefur við leiðsögumanni í hana til aðSkoða betur
18.06.2013Hrossaræktarsamband Dalamanna Hrossaræktarsamband Dalamanna hefur tekið stóðhestinn Hersi frá Lambanesi IS2009138736 á leigu í sumar. Hersir frá Lambanesi IS2009138736 er undan Forseta frá Vorsabæ 2 og Eldingu frá Lambanesi. Hersir þykir efnilegur foli og hefur nú þegar náð einkunninni 9 fyrir tölt, fjögurra vetra gamall. Nánari upplýsingar um einkunnir og ættir er að finna á WorlFengur.com Hersir verður staðsettur í Ljárskógagirðingunni ogSkoða betur
18.06.2013Auðar- og helgiganga í minningu Auðar djúpúðgu Helgiganga í minningu Auðar djúpúðgu verður farin laugardaginn 22. júní í Dölum, þar sem hún nam land fyrir rúmum 1100 árum. Auður djúpúðga Ketilsdóttir var eina konan í hópi landnámsfólks sem fór fyrir eigin leiðangri til Íslands og ein fárra þeirra sem Landnámabók segir að hafi verið kristinnar trúar. Gangan hefst með helgistund við Krosshólaborg í Dölum kl. 14. GöngufólkiSkoða betur
13.06.2013Umsjónarmaður dreifnáms óskast í Búðardal Menntaskóli Borgarfjarðar óskar eftir að ráða starfsmann í 80% starf til að hafa umsjón með dreifnámi við framhaldsskóladeild í Búðardal. Í starfinu felst m.a. dagleg umsjón með nemendum, eftirlit með skólasókn, aðstoð við nemendur í kennslustundum, samskipti við kennara MB, umsjón með námsaðstöðu og tækjabúnaði og umsjón með námslotum í Borgarnesi.Hæfni í mannlegum samskiptum, menntun sem nýtist í starfi ogSkoða betur
13.06.201317. júní hátíðarhöld Hefðbundin hátíðarhöld verða í Búðardal og í Saurbænum á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Þjóðhátíðardaginn 17. júní verður safnast saman við Silfurtún kl. 14:00 Börnin fá þar fána og blöðrur. Skrúðganga verður að Dalabúð. Hefðbundin hátíðardagskrá: ávarp fjallkonunnar, hátíðarræða og hoppukastalar fyrir börnin. Miðdegiskaffi verður í Dalakoti. Raggi Bjarna ásamt nokkrum Dalamönnum verða í Dalabúð kl 17:00 og taka góða sveiflu ogSkoða betur
13.06.2013Sveitarstjórn Dalabyggðar 102. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 18. júní 2013 og hefst kl. 18. Dagskrá Almenn mál 1. Kjör oddvita og varaoddvita2.Skipun í nefndir og ráð3.Siðareglur4.Lánssamningur 20135.Húsnæði fyrir grasrótar- og félagssamtök Almenn mál – umsagnir og vísanir 6.Umsókn um leyfi á veitinga- og gistirekstri7.Umsókn um leyfi fyrir heimagistingu8.Framkvæmdir við Auðarskóla, þakkarbréf Fundargerðir til staðfestingar 9. FélagsmálanefndSkoða betur
12.06.2013Dagur hinna villtu blóma Dagur hinna villtu blóma ber í ár upp á sunnudaginn 16. júní. Komin er hefð fyrir blómagöngu þennan dag í Dölum og að þessu sinni verður farið frá skólahúsinu í Ólafsdal kl. 14 og gengið niður að tóvinnuhúsinu og aftur að skólahúsinu. Frítt er í gönguna og allt áhugafólk um villt blóm velkomið með í för. Klæðnaður í samræmi viðSkoða betur