Fréttir.

10.04.2013

Sjálfboðavinnuverkefni

Sveitarstjórn hefur samþykkt reglur um styrki til sjálfboðavinnuverkefna. Til ráðstöfunar eru allt að 1.500.000 kr. á árinu 2013. Íbúar eru hvattir til að nýta sér þetta til að hrinda í framkvæmd brýnum umhverfisverkefnum í næsta nágrenni sínu. Reglur og umsóknareyðublöð eru á vef Dalabyggðar. Umsóknarfrestur er til 31. maí 2013.
Skoða betur
09.04.2013

Héraðsbókasafn

Héraðsbókasafnið verður lokað fimmtudaginn 11. apríl vegna vorfundar FINA.
Skoða betur
05.04.2013

Sambandsþing UDN

92. sambandsþing UDN fer fram í Leifsbúð í Búðardal mánudaginn 8. apríl kl. 19. Áhugasamir boðnir velkomnir á fundinn.
Skoða betur
05.04.2013

Ferðamálafélag Dala og Reykhólahrepps

Aðalfundur undangenginna ára verður haldinn í Þurranesi í Saurbæ mánudaginn 8. apríl kl. 17. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf miðað við aðstæður. Kosningar. Súpa seld á vægu verði. Allir eru velkomnir á fundinn og í félagið.
Skoða betur
05.04.2013

Kjörskrá

Kjörskrá Dalabyggðar vegna Alþingiskosninga laugardaginn 27. apríl liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagins. Skrifstofan er opin alla virka daga kl. 10-14. Einnig er hægt að fara inn á kosningavef Innanríkisráðuneytisins og kanna upplýsingar um skráningu á kjörstað. Kjörskrár miðast við skráð lögheimili í sveitarfélagi eins og það er samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár fimm vikum fyrir kjördag, eða 23. mars 2013. Kosningavefur Innanríkisráðuneytisins
Skoða betur
04.04.2013

Eldri félagar Karlakórs Reykavíkur

Laugardaginn 6. apríl munu Eldri félagar í Karlakór Reykjavíkur fylla Dalabúð af karlakórssöng. Tónleikarnir hefjast kl. 16 og er frítt inn á tónleikana. Gömul og góð íslensk lög verða í öndvegi undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Friðrik er hugsanlega eini kórstjórinn í heiminum sem stjórnar þremur kynslóðum karla; Drengjakór Reykjavíkur, Karlakór Reykjavíkur og Eldri félögum í Karlakór Reykjavíkur. Til sölu
Skoða betur
03.04.2013

Sorphirða í Búðardal

Nokkuð hefur verið kvartað yfir sorphirðu í Búðardal siðustu vikurnar. Íbúar sem hafa athugasemdir og/eða ábendingar fram að færa varðandi sorphirðu eru hvattir til að hafa samband við Viðar Þór og koma þeim þannig á framfæri. Netfang Viðars er vidar@dalir.is eða sími 894 0013.
Skoða betur
03.04.2013

Störf hjá Hótel Eddu Laugum

Hótel Edda verður rekin á Laugum í Sælingsdal í sumar. Ráðningar standa nú yfir og því tímabært fyrir áhugasama að sækja um. Á Laugum er rekið sumarhótel með 45 herbergjum, veitingastað, fundarherbergi, tjaldstæði og hjólaleigu. Sumarið 2013 verður opið 7. júní – 27. ágúst og hótelstjóri verður Gunnar B. Rafnsson. Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Hótel Eddu. Hótel Edda –
Skoða betur
03.04.2013

Framhaldsskóladeild / dreifnám

Kynningarfundur um framhaldsskóladeild / dreifnám í Dalabyggð verður haldinn í Auðarskóla miðvikudaginn 10. apríl kl. 17. Dagskrá 1. Vinnuhópur Dalabyggðar um framhaldsskóladeild kynnir stöðu málsins. 2. Kolfinna Jóhannesdóttir skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar fer yfir mögulega starfsemi deildarinnar. 3. Umræður og fyrirspurnir Fundurinn er opin öllum íbúum Dalabyggðar og öðrum áhugasömum.
Skoða betur
03.04.2013

Daladeild Garðyrkjufélags Íslands

Allir eru velkomnir á stofnfund Daladeildar Garðyrkjufélags Íslands er haldinn verður í Leifsbúð miðvikudaginn 10. apríl kl. 20 í Leifsbúð. Dagskrá 1. Kynning á tilgangi félagsins/deildarinnar 2. Nafn félagsins/deildarinnar 3. Lög félagsins/deildarinnar 4. Kosningar a. Formaður til eins árs b. Gjaldkeri til eins árs c. Ritari til eins árs d. 2 meðstjórnendur til eins árs e. 2 skoðunarmenn og einn
Skoða betur
02.04.2013

Vetrarleikar Glaðs

Vetrarleikar Glaðs verða laugardaginn 6. apríl kl. 11 á reiðvellinum í Búðardal. Keppt er í fjórgangi, fimmgangi og tölti í barna-, unglinga-, ungmenna- og opnum flokki. Þá er og keppt í 100 m skeiði. Skráningargjald er 1.000 kr og síðasti dagur til skráningar er fimmtudagurinn 4. apríl. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Glaðs. Glaður
Skoða betur
02.04.2013

Vorfagnaður á Borðeyri

Þorrablót ungmennafélagsins Hörpu og kvenfélagsins Iðunnar verður að vorfagnaði og verður hann haldinn laugardaginn 13. apríl 2013 í skólahúsinu á Borðeyri. Húsið opnar kl. 20, en viðburðurinn hefst kl. 20:30. Veislumatur verður á borðum og hljómsveitin Kopar leikur fyrir dansi. Hinn snjalli Einar Georg flytur annál ársins og ýmsir stíga á stokk með söng og glens. Pantanir eru í símum
Skoða betur
Fréttir.