18.02.2013
Þorrablóti á Borðeyri frestað
Þorrablót ungmennafélagsins Hörpu og kvenfélagsins Iðunnar verður haldið laugardaginn 2. mars 2013 í skólahúsinu á Borðeyri. Húsið opnar kl. 20, en blótið hefst kl. 20:30. Gæðakokkar í Borgarnesi reiða fram þorramat og sömuleiðis hljómsveitina Kopar sem leikur fyrir dansi. Einar Georg flytur annál ársins og ýmsir stíga á stokk með söng og glens. Pantanir í símum 451 0090 (Kristín G.)
Skoða betur