Hér má sjá hluta af styrkþegum og fulltrúum styrkþega á Úthlutunarhátíðinni

Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands

DalabyggðFréttir

Uppbyggingarsjóður Vesturlands auglýsti eftir umsóknum í sjóðinn í október s.l. Alls bárust 142 umsóknir. Úthlutunarnefnd sjóðsins ákvað að úthluta samtals kr. 43.585.000 til 98 verkefna að þessu sinni. Úthlutunarhátíð sjóðsins var svo haldin í Félagsheimilinu Fannahlíð í Hvalfjarðarsveit föstudaginn 7. febrúar s.l. og má segja að Dalamenn hafi ekki látið sitt eftir liggja í frumlegum verkefnum. Það voru 14 verkefni …

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 187. fundur

DalabyggðFréttir

187. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 13. febrúar 2020 og hefst kl. 16.   Dagskrá Almenn mál 1. Kynning á nýrri vefsíðu 2. Undirbúningur íþróttamannvirkja í Dalabyggð 3. Skógrækt á jörðinni Hóli – umsókn 4. Sorphreinsun – útboð 2020 – 2022 5. Heinaberg á Skarðströnd – umsókn um byggingaráform 6. Umsókn um lögbýli á Selárdal 7. Áskorun, varðandi umsóknir um …

Heilsugæsla – febrúar

DalabyggðFréttir

Í febrúar koma sjúkraþjálfarar, augnlæknir og krabbameinsleit hjá konum á heilsugæslustöðinni í Búðardal.   Netsjúkraþjálfun Sjúkraþjálfarar frá Netsjúkraþjálfun verða með viðtöl og skoðanir mánudaginn 17. febrúar. Vegna tímabókana er best að senda tölvupóst á netfangið; netsjukrathjalfun@netsjukrathjalfun.is, en einnig má hafa samband við heilsugæsluna.   Augnlæknir Guðrún J. Guðmundsdóttir augnlæknir verður með móttöku fimmtudaginn 20. febrúar. Tímapantanir hjá augnlækni eru í síma …

Álagning fasteignagjalda – seinkun

DalabyggðFréttir

Vegna tæknilegra vandamála mun álagningu fasteignagjalda seinka um tvo daga. Áætlað er að álagningarseðlar fasteignagjalda verði tilbúnir föstudaginn 7. febrúar.   Eindagi til að nýta 3% staðgreiðsluafslátt seinkar sem því nemur og verður til þriðjudagsins 18. febrúar.

Dagur kvenfélagskonunnar

DalabyggðFréttir

1. febrúar er Dagur kvenfélagskonunnar. Dagurinn, sem er stofndagur Kvenfélagasambands Íslands, (1930) var formlega gerður að degi kvenfélagskonunnar árið 2010 til að vekja athygli á miklu og óeigingjörnu starfi kvenfélagskvenna í 140 ár. Það var enda löngu tímabært að kvenfélagskonur fengju sinn eigin dag á dagatalinu. Við óskum kvennfélagskonum til hamingju með daginn! Kvenfélagasamband Íslands (KÍ) var stofnað 1. febrúar …

Sveitarstjórn Dalabyggðar 186. fundur

DalabyggðFréttir

186. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, 30. janúar 2020 og hefst kl. 20. Dagskrá Almenn mál 1. Fjárhagsáætlun 2020-2023 2. Fjárhagsáætlun 2020 – Viðauki I   29.01.2020 Kristján Sturluson, sveitarstjóri.

Lífshlaupið 2020

DalabyggðFréttir

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir …

Laust starf: Hjúkrunarframkvæmdarstjóri Silfurtúni

DalabyggðFréttir

Dalabyggð óskar að ráða drífandi einstakling í starf hjúkrunarframkvæmdastjóra Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns í Búðardal.   Leitað er að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi með faglega sýn. Á Silfurtúni eru 10 hjúkrunarrými og 2 dvalarrými. Þar starfa um 15 starfsmenn. Um 100% starfshlutfall er að ræða.   Helstu viðfangsefni og ábyrgð • Fagleg ábyrgð og forysta um hjúkrun og þjónustu við …

Hornabú

DalabyggðFréttir

Á þorranum verður örsýning úr gullakistu Byggðasafns Dalamanna á Héraðsbókasafni Dalasýslu. Bókasafnið er opið á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 12:30-17:30.