Félag eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi stendur fyrir fjölbreyttu félagsstarfi. Á mánudögum og föstudögum er gengið kl. 10:30 og endað í kaffispjalli á Silfurtúni. Á fimmtudögum er breytileg dagskrá. Október 10. október. RK húsið. Létt kynning og kaffi á dagskrá vetrarins kl. 13:30. 17. október. RK húsið. Bingó kl. 13:30. 24. október. RK húsið. Félagsvist kl. 13:30. 31. október. …
Framtíð Breiðafjarðar
Fræðslu- og umræðuþing á vegum Breiðafjarðarnefndar og Umhverfis- auðlindaráðuneytis um framtíð Breiðafjarðar verður í Tjarnarlundi miðvikudaginn 23. október kl. 11-16. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir, en skráning þó nauðsynleg á netfangið breidafjordur @nsv.is. Dagskrá 11:00 Setning. Erla Friðriksdóttir formaður Breiðafjarðarnefndar. 11:10 Ávarp umhverfisráðherra. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra. 11:25 Sérstaða Breiðafjarðar. Róbert Arnar Stefánsson. Náttúrustofa Vesturlands. 11:55 Breiðafjörður sem Ramsarsvæði. Trausti Baldursson. …
Rafmagnstruflanir á Skógarströnd og í Suðurdölum
Vegna undirbúnings fyrir vinnu Landsnets í þessari viku gæti komið til rafmagnstruflana á Snæfellsnesi, Kolbeinsstaðahrepp, Eyja og Miklaholtshreppi, Skógarströnd og Suðurdölum í dag milli kl. 17 og 18. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390.
Kór eldriborgara
Söngæfing kórs eldri borgara verður í Tjarnarlundi sunnudaginn 6. október kl. 20. Meðal annars verður rædd hugmynd um að kórar eldri borgara syngi saman í Eldborgarsal Hörpunnar 1. desember næstkomandi.
Landsæfing björgunarsveita 2019
Laugardaginn 5. október n.k. verður landsæfing björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar haldin í Snæfellsbæ. Svæðisstjórn á svæði 5 og fulltrúar björgunarsveitanna á Snæfellsnesi og í Dölum bera hitann og þungan af undirbúningi og framkvæmd æfingarinnar. Leitað hefur verið lengi eftir aðstoð slysavarnadeildanna á svæðinu, líkt og gerist þegar útköll verða. Gert er ráð fyrir um 300 þátttakendum víðs vegar að af …
Bólusetning gegn árlegri inflúensu
Bólusetning gegn árlegri inflúensu er hafin á heilsugæslustöðvunum í Búðardal og á Reykhólum. Bóluefnið inniheldur vörn gegn inflúensu A(H1N1), A(H3N2) og inflúensu B. Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar: – Allir einstaklingar 60 ára og eldri. – Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og …
Rafmagnslaust á Fellsströnd
Rafmagnslaust verður á Fellsstrandarlínu frá Hellu að Klofningi mánudaginn 16. september kl. 13 – 16 vegna spennaskipta. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390.
Rafmagnslaust á Skarðsströnd
Rafmagnslaust verður á Skarðsströnd vegna spennaskipta og línuvinnu kl. 13-16 frá og með 10. september til 12. september. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar. Nánari upplýsingar veitir svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390.
Heilsugæsla – september 2019
Í september koma á heilsugæslustöðina augnlæknir og háls-, nef og eyrnalæknir. Þá verður boðið upp á krabbameinsleit hjá konum og þjónustu heyrnarfræðinga HTÍ. Háls-, nef og eyrnalæknir Þórir Bergmundsson, háls-, nef og eyrnalæknir verður með móttöku þriðjudaginn 10. september. Tímapantanir eru í síma 432 1450. Krabbameinsleit hjá konum Krabbameinsleit hjá konum fer fram í Búðardal þriðjudaginn 17. og …
Lokahóf UDN
Lokahóf UDN verður haldið fimmtudaginn 5. september í grunnskólanum á Reykhólum. Skemmtunin stendur frá kl. 18 til kl. 20. Verðlaunaafhendingar, grill og leikir.