Fréttir.

16.08.2012

Fyrirlestur að Nýp

Fyrirlestur verður að Nýp á Skarðsströnd sunnudaginn 19. ágúst kl 14. Þar mun dr. Einar G. Pétursson mun fjalla um Guðbrand Vigfússon (1827-1889) frá Litla-Galtardal á Fellsströnd. Guðbrandur Vigfússon (1827-1889) var málfræðingur og textafræðingur. Hann var einn af fremstu norrænufræðingum 19. aldar og starfaði lengst í Oxford á Englandi. Erindið verður um Guðbrand, ættir hans, uppvöxt, námsferil og ritsstörf. Guðbrandur
Skoða betur
16.08.2012

Harmonikkutónar í Árbliki

Samband íslenskra harmonikuunnenda heldur útileguhátíð í Árbliki helgina 17.-19. ágúst þar sem verða dansleikir og tónleikar. Fyrri dansleikurinn verður á föstudagskvöld kl. 21:30 og þeir síðari á laugardagskvöld á sama tíma. Þar verður spiluð fjölbreytt harmonikkutónlist með úrvals harmonikkuleikurum. Á laugardag verða tónleikar kl. 14 og kaffisala að tónleikum loknum. Allir eru velkomnir á dansleikina og tónleikana.
Skoða betur
13.08.2012

Sölvafjara og sushi

Laugardaginn 18. ágúst verður námskeiðið „Sölvafjara og sushi“ í Tjarnarlundi kl. 15. Leiðbeinendur verða Rúnar Marvinsson kokkur og Dominique Pledel frá Slowfood Reykjavík. Þar þarf að skrá heiti námskeiðs, nafn, kennitölu, heimilisfang, síma og netfang. Námskeiðsgjald er 8.700 kr. Nánari upplýsingar um öll námskeiðin eru á heimasíðu Ólafsdalsfélagsins og í síma 896 1930
Skoða betur
06.08.2012

Svavar Knútur á Laugum

Svavar Knútur Kristinsson verður með tónleika á Laugum í Sælingsdal fimmtudaginn 9. ágúst, kl. 21. Á tónleikunum mun Svavar leika úrval frumsaminna laga úr eigin safni og syngja um lífið og tilveruna. Matreiðslumaður hótelsins mun bjóða upp á uppáhaldsrétt Svavars, bjúgu frá Stað í Reykhólasveit með nýjum íslenskum kartöflum og uppstúf. Einnig verða sérvaldir ostar úr héraði á boðstólum. Salurinn
Skoða betur
04.08.2012

Ólafsdalshátíð

Árleg Ólafsdalshátíð verður haldin sunnudaginn 12. ágúst kl. 13.00 – 17:30. Aðgangur er ókeypis. Gestum er bent á að netsamband er stopult í Ólafsdal og því skynsamlegt að hafa með sér lausafé til að versla eða taka þátt í happdrætti. Dagskrá 10:30 Undanfari hátíðar. Gönguferð í Skálina. Gengið upp í skálina í Ólafsdal og spáð í örnefni, byggingar og staðhætti
Skoða betur
29.07.2012

Tómas R og Ómar að Laugum

Kontrabassaleikarinn Tómas R. Einarsson og gítarleikarinn Ómar Guðjónsson spila á tónleikum á Hótel Eddu, Laugum í Sælingsdal fimmtudagskvöldið 2. ágúst kl. 21.00. Þeir félagar munu leika fjölbreytta tónlist, þar á meðal latíntónlist og sveifludjass. Gestum stendur til boða að gæða sér á saltfiskrétti úr uppskriftasafni Tómasar R. meðan á tónleikunum stendur. Dalamaðurinn og kontrabassaleikarinn Tómas R. Einarsson hefur gefið út
Skoða betur
26.07.2012

Námskeið Ólafsdalsfélagsins

Á vegum Ólafsdalsfélagsins eru fyrirhuguð einn fyrirlestur og fjögur námskeið í ágúst og september. Á sjálfan Ólafsdalsdaginn, sunnudaginn 12. ágúst, verður kynning á verkefninu „Eyðibýli og tóm hús á Íslandi“ í Ólafsdal kl. 17. Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir. Hægt er að fylgjast með verkefninu á Facebook. Laugardaginn 18. ágúst verður námskeiðið „Sölvafjara og sushi“ í Tjarnarlundi kl. 15. Leiðbeinendur
Skoða betur
26.07.2012

Bitrufjörður – Ólafsdalur

Laugardaginn 28. júlí verður farin skemmtileg og fræðandi gönguferð á vegum Ólafsdalsfélagsins frá Snartartungu í Bitrufirði yfir í Ólafsdal í Gilsfirði. Lagt verður af stað með rútu(m) frá Ólafsdal stundvíslega kl. 8. Ekið yfir Steinadalsheiði og að Snartartungu í Bitrufirði. Gönguferðir hefst við Snartartungu um kl. 9.40. Þaðan verður gengið upp Norðdal (aflíðandi) upp á Hvarfdalshraun. Matarhlé verður um kl.
Skoða betur
24.07.2012

Íbúð til leigu

Íbúðin að Sunnubraut 1a í Búðardal er laus til leigu. Íbúðin er félagsleg íbúð, fjögur herbergi og 102,5 m2. Rafrænt umsóknareyðublað og reglur um úthlutun leiguíbúða eru á vef Dalabyggðar. Umsóknarfrestur er til 31. júlí. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Dalabyggðar, í síma 430 4700 eða á netfanginu dalir@dalir.is Sveitarstjóri Dalabyggðar
Skoða betur
24.07.2012

Reykhóladagar

Reykhóladagar 2012 byrja á fimmtudagskvöldið og standa yfir fram á sunnudag. Dagskráin er fjölbreytt að vanda. Ratleikur, kvikmyndasýningar, Reykjanesmaraþon, hæfileikakeppni, spurningakeppni, þarabolti, dráttarvélakeppni, kvöldskemmtun, dansleikur og ýmislegt fleira. Dagskrá Reykhóladaga
Skoða betur
23.07.2012

Delizie Italiane á Laugum

Tríóið Delizie Italiane heldur tónleika á Hótel Eddu að Laugum í Sælingsdal miðvikudaginn 25. júlí kl. 20. Aðgangur er ókeypis. Delizie Italiane er tríó sem var stofnað í kringum áhuga tónlistarmannanna á víni, matargerð og suðrænni menningu. Tónlistin er ljúf og þægileg. Á meðan á tónleikunum stendur býður Hótel Edda upp á mat úr smiðju tríósins frá Napóli á hóflegu
Skoða betur
18.07.2012

Saga Breiðafjarðar

Fyrirlestri dr. Sverris Jakobssonar um sögu Breiðafjarðar er vera átti laugardaginn 21. júlí að Nýp á Skarðsströnd er frestað. Ný dagsetning verður auglýst bráðlega.
Skoða betur
Fréttir.