Fréttir.

26.07.2012

Bitrufjörður – Ólafsdalur

Laugardaginn 28. júlí verður farin skemmtileg og fræðandi gönguferð á vegum Ólafsdalsfélagsins frá Snartartungu í Bitrufirði yfir í Ólafsdal í Gilsfirði. Lagt verður af stað með rútu(m) frá Ólafsdal stundvíslega kl. 8. Ekið yfir Steinadalsheiði og að Snartartungu í Bitrufirði. Gönguferðir hefst við Snartartungu um kl. 9.40. Þaðan verður gengið upp Norðdal (aflíðandi) upp á Hvarfdalshraun. Matarhlé verður um kl.
Skoða betur
24.07.2012

Íbúð til leigu

Íbúðin að Sunnubraut 1a í Búðardal er laus til leigu. Íbúðin er félagsleg íbúð, fjögur herbergi og 102,5 m2. Rafrænt umsóknareyðublað og reglur um úthlutun leiguíbúða eru á vef Dalabyggðar. Umsóknarfrestur er til 31. júlí. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Dalabyggðar, í síma 430 4700 eða á netfanginu dalir@dalir.is Sveitarstjóri Dalabyggðar
Skoða betur
24.07.2012

Reykhóladagar

Reykhóladagar 2012 byrja á fimmtudagskvöldið og standa yfir fram á sunnudag. Dagskráin er fjölbreytt að vanda. Ratleikur, kvikmyndasýningar, Reykjanesmaraþon, hæfileikakeppni, spurningakeppni, þarabolti, dráttarvélakeppni, kvöldskemmtun, dansleikur og ýmislegt fleira. Dagskrá Reykhóladaga
Skoða betur
23.07.2012

Delizie Italiane á Laugum

Tríóið Delizie Italiane heldur tónleika á Hótel Eddu að Laugum í Sælingsdal miðvikudaginn 25. júlí kl. 20. Aðgangur er ókeypis. Delizie Italiane er tríó sem var stofnað í kringum áhuga tónlistarmannanna á víni, matargerð og suðrænni menningu. Tónlistin er ljúf og þægileg. Á meðan á tónleikunum stendur býður Hótel Edda upp á mat úr smiðju tríósins frá Napóli á hóflegu
Skoða betur
18.07.2012

Saga Breiðafjarðar

Fyrirlestri dr. Sverris Jakobssonar um sögu Breiðafjarðar er vera átti laugardaginn 21. júlí að Nýp á Skarðsströnd er frestað. Ný dagsetning verður auglýst bráðlega.
Skoða betur
17.07.2012

Lausar stöður við Auðarskóla

Lausar eru tvær stöður við Auðarskóla í leikskóla og grunnskóla. Starfsmaður leikskóla Laus er 100 % staða leikskólakennara/leiðbeinanda í leikskóla Auðarskóla. Starfsmaðurinn starfar með börnum í leik og starfi undir stjórn deildarstjóra og framfylgir námskrá leikskólans. Viðkomandi þarf að hafa góða samstarfshæfni, vera sveigjanlegur í starfi og með jákvæð lífsviðhorf. Ef umsækjandi er ekki með uppeldismenntun er æskilegt að hann
Skoða betur
14.07.2012

Umsækjendur um Dalaprestakall

Fjórir umsækjendur eru um embætti sóknarprests í Dalaprestakalli. Frestur til að sækja um rann út þann 3. júlí síðastliðinn. Embættið veitist frá 1. ágúst 2012. Umsækjendur eru Cand. theol. Anna Eiríksdóttir, Cand. theol. Jóhanna Magnúsdóttir, Cand. theol. Salvar Geir Guðgeirsson og séra Torfi K. Stefánsson Hjaltalín. Biskup Íslands skipar í embættið að fenginni niðurstöðu valnefndar. Valnefnd skipa níu manns úr
Skoða betur
14.07.2012

Tannlæknaþjónusta í Búðardal

Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson tannlæknir hefur tekið við rekstri tannlæknastofunnar í Búðardal. Vilhjálmur mun koma til starfa 26. júlí næstkomandi, en hann mun einnig sinna tannlæknaþjónustu á Hólmavík. Vilhjálmur er með stofu í Kópavogi. Tímapantanir í Búðardal verða áfram í síma 434 1445 og 695 7742.
Skoða betur
11.07.2012

Leikhópurinn Lotta á Ólafsdalshátíð!

Leikhópurinn Lotta mun sýna nýtt leikrit um Stígvélaða köttinn á Ólafsdalshátíð, sunnudaginn 12. ágúst 2012 Þetta er sjötta sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu. Síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Leikgerðina um Stígvélaða köttinn gerði Anna Bergljót Thorarensen. Þetta er annað leikritið sem hún
Skoða betur
08.07.2012

Söfnun á rúlluplasti

Áætlað er að safna rúlluplasti hjá bændum 9.-10. júlí, mánudag og þriðjudag. Plastið skal haft á aðgengilegum stað fyrir sorpverktaka. Baggabönd og net skal setja sér í glæra plastpoka. Óheimilt er að setja rúlluplast í sorpgáma á grenndarstöðvum sveitarfélagsins. Söfnunin er lögbýliseigendum að kostnaðarlausu, en sækja þarf um það til sveitarfélagsins fyrir 20. janúar 2012. Hægt er að sækja um
Skoða betur
04.07.2012

Bæjarhátíð í Búðardal

Dagskrá bæjarhátíðarinnar er nú tilbúin. Skipulögð dagskrá er frá kl. 15 föstudaginn til kl. 3 á sunnudagsmorgunn. Föstudagur 6. júlí Kl. 15. Listasmiðja í Auðarskóla fyrir krakka. Kl. 17. Blindrabolti á sparkvellinum. Kl. 19 – 21. Kjötsúpa í boði á heimilum í Búðardal. Kl. 21:30. Kvöldvaka við Leifsbúð. Laugardagurinn 7. júlí Kl. 12. Vestfjarðavíkingurinn. Uxaganga við Leifsbúð. Kl. 13. Félag
Skoða betur
29.06.2012

Kjörfundur

Kjörfundur í Dalabyggð vegna kosninga til embættis forseta Íslands verður haldinn laugardaginn 30. júní 2012 kl. 10-20 í Héraðsbókasafni Dalasýslu, Miðbraut 11, Búðardal. Kjósendum ber að framvísa persónuskilríkjum á kjörstað. Nánari upplýsingar um kosningarnar er að finna á kosningavef innanríkisráðuneytisins. Sérstök athygli er vakin á því að kjörfundi lýkur kl. 20. Kjörstjórn Dalabyggðar
Skoða betur
Fréttir.