Þriðjudaginn 4. júlí var nýsamþykkt forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð afhent Sigurði Inga Jóhannssyni, innviðaráðherra og Bergþóru Þorkelsdóttur, vegamálastjóra. Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri hitti vegamálastjóra í höfuðstöðvum Vegagerðarinnar í Suðurhrauni og afhenti henni forgangsröðunina. Pálmi Þór Sævarsson, umdæmisstjóri Vestursvæðis var með þeim í gegnum fjarfundabúnað. „Vegagerðin fagnar því þegar hugmyndir manna í héraði eru settar fram á vandaðan og frambærilegan hátt …
Laus störf við Auðarskóla
Auðarskóli leitar að metnaðarfullum, jákvæðum og skapandi starfsmönnum með þekkingu og áhuga á skólastarfi! Auðarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli og er staðsettur í Búðardal sem er eini þéttbýliskjarni sveitarfélagsins. Á næsta skólaári verða 75 nemendur í 1.-10. bekk grunnskólans og um 22 börn í leikskólanum. Helmingur nemenda grunnskólans stundar einnig tónlistarnám. Einkunnarorð skólans eru: Ábyrgð-Ánægja-Árangur. Starfsandinn í skólanum er …
Auglýst eftir húsnæði fyrir fólk á flótta
Auglýst er eftir mögulegu húsnæði í Dalabyggð fyrir fólk á flótta. Æskilegra er að húsnæðið sé til afnota til lengri tíma og þarf það að uppfylla skilyrði til fastrar búsetu og lögheimilisskráningar. Þeir sem hafa mögulegt húsnæði á lausu hafi samband við Jóhönnu Maríu, verkefnastjóra með því að senda póst á johanna@dalir.is
Útboð: Rekstur mötuneytis Auðarskóla
Dalabyggð óskar eftir tilboðum í rekstur mötuneytis fyrir Auðarskóla, samrekinn grunn- og leikskóla í sveitarfélaginu. Verkið snýst um innkaup aðfanga, framleiðslu, framreiðslu á tilteknum tíma, samantekt og frágang að máltíðum loknum. Meginmarkmið með rekstri mötuneytis Auðarskóla er að við matseðlagerð, hráefnisval, matreiðslu og framreiðslu sé haft að leiðarljósi að maturinn sé hollur og næringarríkur, sé lystugur og henti börnunum. Vettvangsskoðun …
Tækifæri til verðmætasköpunar
Dalabyggð – boð til samtals Hlédís Sveinsdóttir og Björn Bjarnason unnu að gerð tillagna að baki fyrstu landbúnaðarstefnunni sem Alþingi samþykkti nú 1. júní 2023. Þau vinna nú að tækifæragreiningu fyrir samstarfsverkefni SSV, SSNV og Vestfjarðastofu. Um er að ræða verkefni til að efla byggð á landsvæðum sem eiga mest undir sauðfjárrækt. Markmið verkefnisins er að hvetja til nýsköpunar og …
Sveitarstjórn staðfestir forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð
Atvinnumálanefnd Dalabyggðar vann skýrslu um forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð vorið 2023. Skýrslan var tekin til umræðu á fundi sveitarstjórnar og staðfest á 235. fundi sveitarstjórnar þann 15. júní 2023. Markmiðið með gerð forgangsröðunar er að setja fram raunhæfa áætlun um vegaframkvæmdir í Dalabyggð. Vissulega væri hægt að hafa mun fleiri tillögur en hér eru lagðar fram en skýrslunni er ætlað …
Vantar starfsmann við heimaþjónustu
Starfsmann vantar hjá félagsþjónustu Dalabyggðar við heimaþjónustu á einu heimili. Í félagslegri heimaþjónustu er veitt aðstoð við þrif, heimilisstörf og/eða félagslegur stuðningur til að gera viðkomandi kleift að búa á eigin heimili við sem eðlilegastar aðstæður. Umsækjandi þarf að vera stundvís, áreiðanlegur, heiðarlegur og hafa góða samskiptahæfileika. Öll eldri en 17 ára (með bílpróf) hvött til að sækja um. Frekari …
Minnum á sumarbingó bókasafnsins 2023
Héraðsbókasafn Dalasýslu verður lokað frá 30. júní til og með 9. ágúst nk. vegna sumarleyfa. Síðasti opnunardagur fyrir sumarlokun er fimmtudagurinn 29. júní og viljum við því minna á sumarbingó bókasafnsins. Bingóið er lestrarátak Dalabyggðar yfir sumartímann fyrir börn á aldrinum 5-12 ára, hægt er að nálgast bingóspjöld á bókasafninu. Markmið með lestrarátaki yfir sumartímann er að hvert barn lesi …
Gleðilega þjóðhátíð – pistill sveitarstjóra
Ágætu íbúar Dalabyggðar og aðrir velunnarar Dalanna. Um leið og ég óska okkur öllum gleðilegrar hátíðar í tilefni 17. júní þá langar mig til að stikla á stóru varðandi það sem helst hefur verið á döfinni á vettvangi Dalabyggðar síðustu daga og vikur og einnig að koma inn á það sem er í farvegi á næstunni og byggi þessa mola …
Sveitarstjórn staðfestir Jafnréttis- og framkvæmdaáætlun Dalabyggðar
Í lögum er kveðið á um að sveitarfélög skipi jafnréttisnefndir og geri jafnréttisáætlanir með framkvæmdaáætlun. Jafnframt kemur þar fram að heimilt sé að fela annarri nefnd þennan málaflokk. Í Dalabyggð er það félagsmálanefnd sem fer með störf jafnréttisnefndar sbr. A-hluta 48. gr. samþykkta um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar 391/2018. Á 235. fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar kom til umræðu Jafnréttis- og framkvæmdaáætlun Dalabyggðar …