Öskudagsfjör fyrir börn í 1. – 10. bekk

DalabyggðFréttir

  Skátafélagið Stígandi og Foreldrafélag Auðarskóla standa fyrir viðburði fyrir hressa krakka í Búðardal á öskudag. Við byrjum klukkan 12.30 í Dalabúð þar sem við skiptum krökkunum í sömu hópa og þau starfa í í skólanum. Tvær til þrjár smiðjur verða í boði í Dalabúð þar sem í boði verður andlitsmálning, hljóðfæragerð og skrúðgönguskreytingar. Hver hópur fer svo í skrúðgöngu …

112 dagurinn 2021

DalabyggðFréttir

Hinn árlegi 112 dagur er í dag 11. febrúar. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið 112 og starfsemi aðilanna sem tengjast því, efla vitund fólks um mikilvægi þessarar starfsemi og hvernig hún nýtist almenningi. Sjónum er að þessu sinni beint að öryggi og velferð barna og ungmenna, enda fjölgaði tilkynningum til barnaverndarnefnda grífurlega á síðasta ári. Dagurinn markar upphaf vitundarvakningar …

Sérstakur íþrótta- og tómstundastyrkur

DalabyggðFréttir

Á þitt barn rétt á 45.000 kr. í sérstakan íþrótta- og tómstundastyrk? Kannaðu málið með því að smella HÉR. Meðal aðgerða stjórnvalda vegna Covid-19 er styrkur sem hægt er að sækja um til sveitarfélaga vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna. Styrkurinn er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2005–2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða …

Álagning fasteignagjalda, staðgreiðsluafsláttur og reikningsupplýsingar

DalabyggðFréttir

Álagningu fasteignagjalda (fasteignaskattur, lóðarleiga, vatnsgjald, sorpgjald, fráveita og rotþróargjald) er lokið og hafa álagningarseðlar verið birtir á Ísland.is. Fyrir þá sem greiða upp fasteignagjöldin fyrir 15. febrúar er 3% staðgreiðsluafsláttur. Álagningarseðlar verða ekki sendir á pappír. Athugið að upphæðir má sjá í íbúagátt en greiðsluseðlar birtast inni á „Mínar síður“ á Ísland.is. Þeir sem óska eftir að fá álagningarseðilinn sendan …

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 202. fundur

DalabyggðFréttir

  FUNDARBOÐ 202. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn á fjarfundi, 11. febrúar 2021 og hefst kl. 16:00   Dagskrá: Almenn mál 1. 2008010 – Skógrækt á jörðinni Ásgarði í Hvammssveit 2. 2012019 – Umsókn um framkvæmdaleyfi – skógrækt, Selárdalur 3. 1806012 – Kosning í stjórnir og samstarfsnefndir skv. B-hluta 48. gr. samþykkta Dalabyggðar 4. 2011012 – Menningarmálanefnd – erindisbréf 5. …

Álagning fasteignagjalda

DalabyggðFréttir

Álagningu fasteignagjalda (fasteignaskattur, lóðarleiga, vatnsgjald, sorpgjald, fráveita og rotþróargjald) er lokið og hafa álagningarseðlar verið birtir á Ísland.is. Fyrir þá sem greiða upp fasteignagjöldin fyrir 15. febrúar er 3% staðgreiðsluafsláttur. Álagningarseðlar verða ekki sendir á pappír heldur aðeins birtir á Ísland.is. Þeir sem óska eftir að fá álagningarseðilinn sendan í tölvupósti eða útprentaðan geta sent beiðni um slíkt á dalir@dalir.is …

Laust starf: Félagsleg heimaþjónusta

DalabyggðFréttir

Starfsmann vantar hjá félagsþjónustu Dalabyggðar við heimaþjónustu. Í félagslegri heimaþjónustu er veitt aðstoð við þrif, heimilisstörf og/eða félagslegur stuðningur til að gera viðkomandi kleift að búa á eigin heimili við sem eðlilegastar aðstæður. Umsækjandi þarf að vera stundvís, áreiðanlegur, heiðarlegur og hafa góða samskiptahæfileika. Karlar jafnt sem konur eru hvattar til að sækja um. Frekari upplýsingar gefur Sigríður í síma …

Trjágróður við lóðamörk

DalabyggðFréttir

Trjágróður sem vex út fyrir lóðamörk getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir vegfarendur. Húseigendur skulu gæta þess að gróður haldist innan lóðamarka og valdi ekki truflun á umferð gangandi, hjólandi og akandi vegfarenda. Þegar trjágróður vex út yfir lóðamörk er sveitarfélaginu heimilt að fjarlægja gróður við götur, gangstíga eða opin svæði sem veldur truflunum eða óprýði, á kostnað lóðarhafa …

Háls-, nef og eyrnalæknir

DalabyggðFréttir

  Þórir Bergmundsson háls-, nef og eyrnalæknir verður með móttöku á Heilsugæslustöðinni í Búðardal mánudaginn 15. febrúar nk. Tímapantanir eru á opnunartíma frá kl. 9:00 til kl. 15:00 í síma 432 1450    

Atvinnuráðgjafi SSV til viðtals 4. febrúar – úrræði fyrirtækja vegna COVID-19

DalabyggðFréttir

  Fimmtudaginn 4. febrúar n.k. verður Ólafur Sveinsson, atvinnuráðgjafi SSV til viðtals í stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar frá kl. 13:00 til 15:00. Við viljum hvetja atvinnurekendur í Dalabyggð sérstaklega til að nýta sér viðveru atvinnuráðgjafa þennan dag til að fara yfir úrræði stjórnvalda til handa fyrirtækjum vegna COVID-19 og fá ráðgjöf þar um. Atvinnuráðgjafar SSV hafa verið að setja sig inn í …