Fréttir.

29.04.2016

Opið íþróttamót Glaðs

Hestaíþróttamót Glaðs fer fram á reiðvellinum í Búðardal laugardaginn 30. apríl og hefst keppni stundvíslega klukkan 10. Mótið er opið félögum í hestamannafélögum í Landssambandi hestamannafélaga (LH). Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Glaðs.
Skoða betur
28.04.2016

Deiliskipulagstillaga að Laugum í Sælingsdal

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 15. mars 2016 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir Lauga í Sælingsdal skv. 41. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 123/2010. Laugar í Sælingsdal er fornfrægur sögustaður sem hefur upp á að bjóða fjölbreytt náttúrufar og landslag til náttúruskoðunar og útivistar. Jarðhiti er nýttur til húshitunar og auk þess til ánægju og heilsuræktar. Nýleg sundlaug er
Skoða betur
27.04.2016

1. maí samkoma

1. maí samkoma verður í Búðardal í boði SDS og Stéttarfélags Vesturlands í Dalabúð kl. 14:30 Kynnir: Kristín G. Ólafsdóttir SDS Ræðumaður: Garðar Hilmarsson formaður St. Reykjavíkur Skemmtiatriði: Trúbadorarnir; Halldór Ólafsson (Lolli) og Valgeir Guðjónsson Stuðmaður með meiru. Kaffiveitingar Starfsmannafélaga Dala- og Snæfellsnessýslu Stéttarfélag Vesturlands
Skoða betur
26.04.2016

Gjöf til Dalabyggðar

Dalabyggð hefur borist gjöf frá fjölskyldu Skúla Hlíðkvist Jóhannssonar en þar er um að ræða 40 ljósmyndir af gömlu byggðinni undir Fjósabökkum í Búðardal. Sveitarstjórn færir fjölskyldu Skúla bestu þakkir fyrir gjöfina.
Skoða betur
26.04.2016

Héraðsbókasafn

Af óviðráðanlegum ástæðum verður Héraðsbókasafnið lokað í dag, þriðjudaginn 26. apríl. Næsti opnunardagur er fimmtudaginn 28. apríl.
Skoða betur
25.04.2016

Kvennabrekkusókn

Aðalsafnaðarfundur Kvennabrekkusóknar verður haldinn að Fellsenda 1 kl. 21 föstudaginn 29. apríl. Venjuleg aðalfundarstörf. Allir eru velkomnir.
Skoða betur
25.04.2016

Skrifstofa Dalabyggðar lokuð

Af óviðráðanlegum ástæðum er skrifstofa Dalabyggðar er lokuð frá kl. 12 í dag, mánudaginn 25. apríl.
Skoða betur
20.04.2016

Samkaup – atvinna

Samkaup í Búðardal óskar eftir að ráða fólk á almennar vaktir, uppvask og þrif, áfyllingar, grillvaktir, vaktstjórn og í afleysingar í sumar frá 1. júní til 31. ágúst. Upplýsingar gefur Ingvar í síma 861 5462.
Skoða betur
19.04.2016

Svæðisskipulag – súpufundur í Tjarnarlundi

Kæru íbúar Strandabyggðar, Reykhólahrepps og Dalabyggðar. Nefnd um gerð svæðisskipulags fyrir sveitarfélögin þarf á aðstoð ykkar að halda. Nefndin hefur það hlutverk að móta stefnu um þróun svæðisins til framtíðar. Sú stefna þarf að eiga fótfestu í ykkar reynslu og sýn á svæðið, auðlindir þess og tækifæri. Þess vegna boðar nefndin til opins súpufundar í Tjarnarlundi í Saurbæ, þriðjudaginn 26.
Skoða betur
16.04.2016

Manntöl og manntalsvefur

Laugardaginn 23. apríl mun Benedikt Jónsson flytja erindi um manntöl og manntalsvefinn á Byggðasafni Dalamanna á Laugum í Sælingsdal. Benedikt Jónsson er ættaður frá Hömrum í Haukadal, var kennari við Laugaskóla og starfar núna á Þjóðskjalasafni Íslands. Sögustundin hefst kl. 15. Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir fullorðna og kaffi á könnunni. Frítt er fyrir börn yngri en 18 ára.
Skoða betur
15.04.2016

Sveitarstjórn Dalabyggðar 136. fundur

136. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal 19. apríl 2016 og hefst kl. 18. Dagskrá Almenn mál 1. Ársreikningur 2015 2. Leigusamningur Leifsbúð Almenn mál – umsagnir og vísanir 3. Umsögn um rekstrarleyfi Brekkuhvammur 1 4. Umsögn um endurnýjun rekstrarleyfis Stóra-Vatnshorn 5. Frumvörp til umsagnar 6. Félag sauðfjárbænda – Ályktun frá aðalfundi 2016 7. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða –
Skoða betur
15.04.2016

Davíðsmótið 2016

Davíðsmótið í tvímenning í bridge verður haldið í Tjarnarlundi í Saurbæ laugardaginn 23. apríl kl 13. Keppnisstjóri verður Þórður Ingólfsson. Þeir sem hafa áhuga að vera með hafi samband við Guðmund í síma 434 1521 eða á netfangið kjarlak@simnet.is. Þátttökugjald er 3.000 kr á par. Kaffiveitingar.
Skoða betur
Fréttir.