Ferðataskan

DalabyggðFréttir

Hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands verður boðið upp á námskeiðið “Ferðataskan” dagana 24. maí til 26. maí í Búðardal. Leiðbeinendur eru Hansína B. Einarsdóttir og Einar Margeir Kristinsson. Fullt verð er 34.000 en við aðstoðum við að sækja um styrki í starfsmenntasjóði. Ef miðað er við 75% styrk úr starfsmenntasjóði er námskeiðsgjaldið 8.500 kr. Skráningar eru hjá Símenntunarmiðstöðinni í síma 437 2390 …

Vinnuskóli Dalabyggðar 2011

DalabyggðFréttir

Vinnuskóli Dalabyggðar verður rekinn í sumar með sama sniði og undanfarin ár, vinnan hefst mánudaginn 6. júní kl. 8:00. Vinnuskólinn er fyrir unglinga fædda árin 1995 til 1998. Umsóknareyðublöð eru á www.dalir.is og á skrifstofu Dalabyggðar. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 31. maí. Sveitarstjóri

Dalamaður bæjarlistamaður Akureyrar

DalabyggðFréttir

Óskum við Eyþóri Inga Jónssyni frá Sælingsdalstungu til hamingju með titilinn bæjarlistamaður Akureyrar 2010-2011 og áframhaldandi velfarnaðar í starfi. Eyþór Ingi Jónsson er organisti við Akureyrarkirkju og kórstjóri. Frétt á vef Akureyrarbæjar

Sveitarstjórn Dalabyggðar

DalabyggðFréttir

73. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn fimmtudaginn 5. maí 2011 og hefst kl. 17:00 í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal. Dagskrá 1. Skýrsla sveitarstjóra. 2. Fundargerð sveitarstjórnar frá 7. apríl 2011. Fundargerðir til staðfestingar 3. Fundargerð byggðarráðs frá 3. maí 2011. 4. Fundargerðir til kynningar 5. Fundargerð skólanefndar Fjölbrautarskóla Vesturlands frá 5. apríl 2011 6. Fundargerð 5. aðalfundar Menningarráðs Vesturlands frá 18. …

Harmonikudagurinn

DalabyggðFréttir

Harmonikudagurinn er laugardaginn 7. maí og af því tilefni verða harmonikutónleikar í Dalabúð kl. 16. Harmonikunemendur spila undir stjórn Halldórs Þ. Þórðarsonar kennara síns. Og harmonikuhljómsveit Nikkólínu mun spila fjörug lög. Aðgangseyrir er 1.000 kr og eru veitingar innifaldar; kaffi, djús og kökur. Athugið að enginn posi er á staðnum.

Bæjarhreinsun Stíganda

DalabyggðFréttir

Skátafélagið Stígandi verður með árlega bæjarhreinsun í Búðardal fimmtudaginn 5. maí. Mæting er við Dalabúð kl. 15:30 með hanska. Öllum er velkomnið að leggja skátunum lið og eru íbúar hvattir til að snyrta í kringum hús sín.

Silfurtún – matráður

DalabyggðFréttir

Matráður óskast að Dvalarheimilinu Silfurtúni í Búðardal. Um er að ræða afleysingar í sumar og síðan 70% stöðugildi eftir 20. júlí. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á eldhússtörfum og einhverja reynslu. Þarf helst að geta byrjað 1. maí n.k. Upplýsingar gefur Ingibjörg Kristjánsdóttir í síma 434 1218

Félagsþjónusta viðvera

DalabyggðFréttir

Félagsþjónustan verður með viðveru mánudaginn 2. maí í stað þriðjudagsins 3. maí. Hægt er að hafa samband við starfsmenn félagsþjónustunnar í síma 433 7100 á milli kl. 9 og 15 aðra virka daga, fá upplýsingar og ráð eða ákveða aðra stund og annan tíma, allt eftir aðstæðum. Skrifstofa félagsmálastjóra Borgarbyggðar er á Borgarbraut 14 í Borgarnesi. Sími 433 7100 og …

Helgihald í dymbilviku og um páska

DalabyggðFréttir

21. apríl – skírdagur Kvennabrekkukirkja Ferming og skírn kl. 14. Prestur er sr. Halldór Reynisson. Fellsendi, hjúkrunarheimili Helgistund kl. 16. Lesið úr passíusálmunum. Prestur er sr. Halldór Reynisson. Snóksdalskirkja Helgistund kl. 20. Lesið úr passíusálmunum. Prestur er sr. Halldór Reynisson. 24. apríl – páskadagur Hjarðarholtskirkja Hátíðarguðþjónusta kl. 11. Prestur er sr. Halldór Reynisson. Silfurtún, dvalar- og hjúkrunarheimili Helgistund kl. 13:30. …

Með táning í tölvunni

DalabyggðFréttir

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir gamanleikinn Með táning í tölvunni á miðvikudaginn kemur, þann 20. apríl kl 20 í Félagsheimilinu á Hólmavík. Höfundur verksins er Ray Cooney en leikstjóri er Arnar S. Jónsson. Um er að ræða nútímalegt verk sem hefur allt til að bera sem prýðir góðan gamanleik. Sjö leikarar fara með hlutverk og eru nokkrir þeirra að stíga í fyrsta …