06.07.2010
47 umsóknir um stöðu sveitarstjóra Dalabyggðar
Fjörutíu og sjö umsóknir bárust um stöðu sveitarstjóra Dalabyggðar. Starfið var auglýst laust til umsóknar og rann umsóknarfrestur út 30. júní sl. Níu konur sækjast eftir starfinu og þrjátíu og átta karlar. Farið hefur verið yfir umsóknirnar og ákveðið hvaða umsækjendur verða kallaðir í viðtöl, en þau munu fara fram á næstu dögum. Hagvangur annast ráðningarferlið í samstarfi við sveitarstjórn.
Skoða betur