Lengd opnun á Héraðsbókasafni fyrir jólin

DalabyggðFréttir

Þriðjudaginn 22. desember verður Héraðsbókasafn Dalamanna opið frá kl 12:00 – 19:00 Miðvikudaginn 23. desember verður opið frá 12:00-17:00 Mikið af nýjum bókum eru komnar og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Lánstími nýrra bóka eru tvær vikur. Með jólakveðju, Hugrún Otkatla, héraðsbókavörður.

Tómstundabæklingur vorönn 2010

DalabyggðFréttir

Nú er komið að því að útbúa “Tómstundabækling” fyrir vorönn 2010 í Dalabyggð. Þeir sem vilja auglýsa í bæklingnum, námskeið og/eða atburð geta sent mér auglýsingu eða haft samband við mig. Ég óska eindregið eftir því að allir sem verða með námskeið eða atburði sendi inn svo að við séum með framboðið á einum stað. SKILAFRESTUR 21. DESEMBER. Bæklingurinn fer …

Dalamaður vinnur alþjóðlega ljósmyndasamkeppni

DalabyggðFréttir

Bragi J. Ingibergsson, hefur verið valinn stafrænn ljósmyndari ársins (e. Digital Camera Photographer of the Year) í keppni sem breska dagblaðið Telegraph styður. Hann hlaut viðurkenninguna fyrir ljósmynd sem hann tók af tveimur hestum í Hafnarfirði. Sjá nánar hér

Jólatrésala í Daníelslundi

DalabyggðFréttir

Slysavarnadeild Þverárþings og Björgunarsveitin Heiðar í samvinnu við Skógræktarfélag Borgarfjarðar verða með jólatrésölu í Daníelslundi laugardaginn 19.des og sunnudaginn 20.des kl 11-16. Björgunarsveitarmenn verða á staðnum til aðstoðar fólki við að velja sitt eigið jólatré í skóginum og fella það. Björgunarsveitin sér um að pakka trjánum í net.

Jólatónleikar Auðarskóla

DalabyggðFréttir

Jólatónleikum Auðarskóla sem fyrirhugaðir voru laugardaginn 12. desember 2009 hefur verið aflýst af óviðráðanlegum ástæðum. Skólastjóri

Fjárhagsáætlun lögð fram

DalabyggðFréttir

Fyrri umræða fjárhagsáætlunar Dalabyggðar var í sveitarstjórn 8. desember sl. Samþykkt var að vísa áætluninni til annarrar umræðu sem stefnt er að fari fram þann 17. desember nk. Helstu niðurstöðurÁætlunin er lögð fram til fyrri umræðu með um 9 m.kr. afgangi þegar aðalsjóður og B-hluta fyrirtæki eru lögð saman í samstæðureikningi. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir fjármagnsliði er jákvæð um 38,9 m.kr. …

Sveitarstjórn Dalabyggðar

DalabyggðFréttir

50. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 8. desember 2009 í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal og hefst kl. 16:00 Dagskrá:1. Skýrsla sveitarstjóra.2. Fundargerð sveitarstjórnar frá 19. nóvember 2009. 3. Fundargerð byggðarráðs frá 26. nóvember og 1. desember 2009. 4. Fundargerð fræðslunefndar frá 25. nóvember 2009. 5. Fundargerð umhverfisnefndar frá 1. desember 2009. 6. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 25. nóvember 2009. …