DalaAuður – Brothættar byggðir

Dalabyggð hóf göngu sína í verkefninu Brothættar byggðir á fyrri hluta árs 2022 undir heitinu DalaAuður. DalaAuður er samstarfsverkefni Dalabyggðar, Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi og Byggðastofnunar og er undir hatti brothættra byggða. Verkefnið er til loka árs 2026.

Verkefnisstjórn DalaAuðs er skipuð fulltrúum samstarfsaðila sem að verkefninu koma:

  • Björn Bjarki Þorsteinsson – fulltrúi Dalabyggðar
  • Bjarnheiður Jóhannsdóttir – fulltrúi íbúa
  • Jón Egill Jóhannsson – fulltrúi íbúa
  • Páll S. Brynjarsson – fulltrúi SSV
  • Ólafur Sveinsson – fulltrúi SSV
  • Kristján Þ. Halldórsson – fulltrúi Byggðastofnunar
  • Helga Harðardóttir – fulltrúi Byggðastofnunar

Byggðaþróunarverkefnum eins og DalaAuði er ætlað að veita byggðalögum innspýtingu, með því að hvetja til nýsköpunar og frumkvæðis íbúa í félagslegum verkefnum. Liður í því er að veita styrki úr frumkvæðissjóði. Samtals hefur 82.950.000 kr upphæð verið veitt til 133 verkefna frá því verkefnið hófst.

Mikil áhersla er lögð á að íbúar móti stefnu verkefnisins og setji fram markmið með hag samfélagsins í huga. Árlega eru haldnir íbúafundir þar sem þessar áherslur eru endurskoðaðar og mótaðar, nýjar hugmyndir ræddar og þær svo teknar saman í verkefnisáætlun sem samstarfsaðilar vinna eftir.

Það er óhætt að segja að verkefnið hefur leitt af sér marga sprota og ýtt undir samstöðu í sveitarfélaginu. Fyrir þau sem vilja kynna sér verkefnið betur er hægt að sjá yfirlit yfir styrkt verkefni, núgildandi verkefnisáætlun DalaAuðs og ársskýrslur síðustu ára, á vef Byggðastofnunar.

Vefsvæði DalaAuðar hjá Byggðastofnun

Verkefnisstjóri DalaAuðs er Linda Guðmundsdóttir og er hún með aðsetur í Auðarstofu, nýsköpunarsetri Dalabyggðar að Miðbraut 11, Búðardal. Verkefnisstjóri fylgir eftir verkefnisáætlun, heldur utan um ýmis byggðaþróunarverkefni og aðstoðar bæði umsækjendur og styrkþega Frumkvæðissjóðs DalaAuðs. Hana má nálgast í gegnum netfangið linda@ssv.is

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei