Þátttaka í söguröltum safnanna á Ströndum og í Dölum hefur verið til fyrirmyndar í sumar. Nú er komið að níunda og næstsíðasta sögurölti sumarsins og er það á dagskrá miðvikudaginn 21. ágúst kl. 19:30. Gengið verður frá hlaðinu á Skriðnesenni í Bitrufirði og út með sjónum að Kýrhamri. Vegalengdin frá bænum út að hamrinum er 2 km, eftir auðgengnum …
Vettvangsferð vegna rammaáætlunar
Verkefnisstjórn 4. áfanga rammaáætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða ásamt fulltrúum faghópa kom í til vettvangsferðar um Dalabyggð og Reykhólahrepp til að kynna sér áform um virkjun vindorku vindmyllugarða í Sólheimum og á Hróðnýjarstöðum í Dalabyggð og Garpsdal í Reykhólahrepp. Fulltrúar Dalabyggðar voru Kristján Sturluson sveitarstjóri, Eyjólfur Ingvi Bjarnason oddviti, Ragnheiður Pálsdóttir varaoddviti, Skúli Guðbjörnsson formaður byggðaráðs, Hörður Hjartarson …
Tónleikar: Óskar Guðjónsson og Ife Tolentino
Óskar Guðjónsson og Ife Tolentino halda tónleika á Hótel Eddu Laugum laugardaginn 17. ágúst kl. 20:30. Á dagskrá verður meðal annars brasilísk tónlist, djass og rokk. Miðaverð er 2.000 kr. Athugið að ekki er posi í miðasölunni.
Íslandsmeistaramótið í hrútadómum 2019
Íslandsmeistaramótið í hrútadómum verður haldið sunnudaginn 19. ágúst og hefst kl. 14 í Sævangi við Steingrímsfjörð. Hrútadómarnir fara þannig fram að ráðunautur fer fyrir dómnefnd sem metur fjóra hrúta með nútíma tækjum og tólum og raðar þeim í gæðaröð. Síðan reyna keppendur sig við matið á hrútunum með hendur og hyggjuvit að vopni og reyna að komast að sömu …
Ólafsdalshátíð 2019
Árleg Ólafsdalshátíð verður laugardaginn 17. ágúst. Aðgangur er ókeypis, en seldir happdrættisvinningar og lífrænt grænmeti til styrktar starfsemi Ólafsdalsfélagsins. Dagskrá Kl. 11. Gönguferðir. Hægt er að velja á milli göngu að víkingaraldarskála undir leiðsögn Birnu Lárusdóttur eða göngu upp í Skálina undir leiðsögn Þorsteins Garðarssonar og Helgu I. Guðmundsdótur. Mæting í göngurnar er kl. 10:45. Kl. 12. Sala …
Sögurölt – Hundadal
Miðvikudaginn 14. ágúst verður sögurölt í Hundadal í Miðdölum. Mæting er á hlaðinu á Neðri-Hundadal kl. 19:30. Sigursteinn bóndi þar mun leiða röltið og segja sögur tengdar Hundadal og Suðurdölum frá landnámi til okkar dags. Söguröltin eru samstarfsverkefni Byggðasafns Dalamanna og Sauðfjárseturs á Ströndum. Sögurölt í Hundadal er það áttunda af tíu í sumar og það síðasta sem ráðgert …
Hitaveita – bilun
Vegna bilunar í aðalæð verður heitavatnslaust í Búðardal, á Saurum og í Ási í kvöld, þriðjudaginn 6. ágúst, frá kl. 20-24. Nánari upplýsingar veitir svæðisvakt RARIK á Vesturlandi í síma 528 9390.
Kynningarfundum um heilbrigðisstefnu til ársins 2030
Kynningarfundum um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 í heilbrigðisumdæmi Vesturlands verður haldinn fimmtudaginn 15. ágúst kl. 17-19 í fundarsal Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi. Stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Þetta eru mikilvæg tímamót fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mun kynna heilbrigðisstefnuna. Á fundinum verður fjallað um hvað felst í stefnunni, …
Dagverðarneskirkja
Árleg messa í Dagverðarneskirkju verður sunnudaginn 11. ágúst kl. 14. Kaffi verður á Staðarfelli að messu lokinni.
Sögurölt – Broddanes
Hin sívinsælu og vikulegu Sögurölt halda áfram, en það eru söfnin Sauðfjársetur á Ströndum og Byggðasafn Dalamanna sem hafa samvinnu um þau í sumar. Miðvikudaginn 31. júlí kl. 19:30, er stefnan tekin á Sögurölt á Broddanesi við sunnanverðan Kollafjörð á Ströndum. Gangan verður auðveld og við allra hæfi og margvíslegur fróðleikur í boði. Mæting er við afleggjarann heim …