Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Laust starf: Umsjónarmaður Vinnuskóla Dalabyggðar sumarið 2026”
15.04.2026

Laust starf: Umsjónarmaður Vinnuskóla Dalabyggðar sumarið 2026

Á sumrin er Vinnuskóli Dalabyggðar starftækur og allajafna vinsæll sem fyrsta starf ungmenna í sveitarfélaginu. Starf í skólanum gefur möguleika á því að njóta útiveru og eiga þátt í að prýða þorpið í samstarfi við ungt fólk. Auglýst er eftir umsjónarmanni fyrir sumarið 2026 í ca. 80% starfshlutfall. Umsjónarmaður ber m.a. ábyrgð á að leiðbeina, útskýra og kenna. Helstu verkefni
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sveitarstjórn Dalabyggðar fundarboð á fund nr. 268”
14.04.2026

Sveitarstjórn Dalabyggðar fundarboð á fund nr. 268

268. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, fimmtudaginn 16. apríl 2026 og hefst kl. 16:00 Dagskrá: Almenn mál 1. 2602030 – Ársreikningur Dalabyggðar 2025 2. 2602016 – Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki I 3. 2602018 – Laun og launakjör kjörinna fulltrúa 4. 2604001 – Breyting á aðalskipulag, Árblik í Suðurdölum Fundargerðir til kynningar 5. 2603003F – Byggðarráð Dalabyggðar –
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Dalakonur kveða”
13.04.2026

Dalakonur kveða

Dalakonur kveða er ný sýning Héraðsskjalasafns Dalasýslu og Byggðasafns Dalamanna í anddyri stjórnsýsluhússins í Búðardal. Þar er sýnishorn af kveðskap kvenna sem hafa átt heima í Dölunum. Á Héraðsbókasafni Dalasýslu eru ljóðabækur kvenna áberandi og hvatt til ljóðalesturs. Einar Kristjánsson fyrsti héraðsskjalavörður Héraðsskjalasafns Dalasýslu átti þó nokkurt vísnasafn og er það varðveitt á Héraðsskjalasafni Dalasýslu. Síðan hefur bæst við kveðskapur
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Refa og minkaveiði 2026 – 2029”
13.04.2026

Refa og minkaveiði 2026 – 2029

Dalabyggð auglýsir eftir áhugasömum veiðimönnum til að sinna refa- og minkaveiðum í Dalabyggð árin 2026 til 2029. Veiðimenn skulu vera með gilt veiðikort, staðkunnátta og reynsla af refa- og minkaveiðum er æskileg. Núverandi veiðimenn sveitarfélagsins eru hvattir til að sækja aftur um og halda áfram sínu góða starfi. Refaveiðinni er skipt upp í 13 svæði eins og verið hefur undanfarin
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Kjörskrá Dalabyggðar”
13.04.2026

Kjörskrá Dalabyggðar

Kjörskrá Dalabyggðar vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá mánudeginum 13. apríl til föstudagsins 15. maí. Miðað er við skráningu lögheimilis og ríkisfangs í þjóðskrá 32 dögum fyrir kjördag, sem var 8. apríl síðastliðinn. Á kjörskrá eru 534 kjósendur, 281 karl (52,6%) og 253 konur (47,4%). Þá geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sveitarstjórnarkosningar 2026”
10.04.2026

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Enginn framboðslisti var lagður fyrir kjörstjórn Dalabyggðar innan lögbundins frests og verða því óbundnar kosningar (persónukjör) í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí 2026. Allir kjósendur sveitarfélagins eru í kjöri, nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrirfram skorast undan því. Þeir sem hafa að skorast undan kjöri samkvæmt 49. gr. kosningalaga nr. 112/2021 eru Eyjólfur Ingvi
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Viltu vera memm? (10-18 ára)”
08.04.2026

Viltu vera memm? (10-18 ára)

Langar þig að hafa áhrif og skapa eitthvað skemmtilegt? Við leitum að hressum og hugmyndaríkum krökkum á áldrinum 10-18 ára til að sitja í stýrihóp barnamenningarhátíðarinnar Barnó – BEST MEST VEST sem fer fram í október. Í stýrihópnum færðu að taka þátt í að móta hátíðina, koma með hugmyndir og hafa áhrif á listræna stefnu hennar. Þetta er einstakt tækifæri
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Söfnun á rúlluplasti – breytingar”
08.04.2026

Söfnun á rúlluplasti – breytingar

Heyrúlluplast sem safnað er í sveitarfélaginu er verðmæt afurð sem fer í endurvinnslufarveg. Til að tryggja hreinleika plastsins og vegna breytinga á tækjum við söfnun þurfa sumir bændur að gera breytingar á frágangi plastsins. Eftir næstu rúlluplast söfnun, sem er vikuna 13. – 17. apríl, verða breytingar á söfnuninni: Gámar verða ekki losaðir. Allt plast verður að vera baggað –
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Ærnar renna eina slóð”
06.04.2026

Ærnar renna eina slóð

Sögustund með Bjarna Guðmundssyni fyrrverandi prófessor á Hvanneyri verður í Tjarnarlundi sunnudaginn 19. apríl kl. 14:00. Bjarni kemur til með að segja í máli og myndum frá verkefni um kindagötur/fjárstíga sem hann hefur unnið að um nokkurt skeið með hjálp heimildarmanna víða um land. Þar verða þessar merku menningarminjar sauðfjárræktar skoðaðar frá ýmsum sjónarhornum. Fjárgötur geta verið eldfornar, en á
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Útboð á hreinsun rotþróa í Dalabyggð”
01.04.2026

Útboð á hreinsun rotþróa í Dalabyggð

Nánari upplýsingar má finna á Auglýst útboð | Consensa
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Rausnarleg gjöf frá Slysavarnadeild Dalasýslu”
31.03.2026

Rausnarleg gjöf frá Slysavarnadeild Dalasýslu

Þriðjudaginn 31. mars komu fulltrúar Slysavarnadeildar Dalasýslu færandi hendi í íþróttamiðstöðina í Búðardal og afhentu Dalabyggð, 86 armkúta í ýmsum stærðum ásamt myndarlegum fjárstyrk til kaupa á slysavarna- og öryggisbúnaði fyrir miðstöðina. Uppbygging íþróttamiðstöðvarinnar hefur hlotið ómetanlegan stuðning frá samfélaginu í Dölum, eins og hér kemur glöggt fram, og er þessi gjöf dæmi um þann samhug og vilja samfélagsins til
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Helgihald í Dalaprestakalli um páska”
31.03.2026

Helgihald í Dalaprestakalli um páska

...
Skoða betur
Fréttir.