Fræðslunefnd Dalabyggðar vill kanna áhuga á námsaðstöðu í sveitarfélaginu. Þessi könnun er hugsuð fyrir fullorðna einstaklinga (frá 18 ára aldri) sem búa í Dalabyggð. Verið er að skoða áhuga á uppsetningu námsaðstöðu innan Dalabyggðar og mögulegt fyrirkomulag. Upplýsingar þessar verða einungis notaðar innan skrifstofu og einstaka nefnda sveitarfélagsins og fara ekki í almenna dreifingu. Svör úr könnuninni verður ekki hægt …
Laust starf: Skólastjóri Auðarskóla
Laust er til umsóknar embætti skólastjóra Auðarskóla í sveitarfélaginu Dalabyggð. Skólastjóri ber faglega ábyrgð á starfsemi skólans og hefur forystu um að skapa skólaumhverfi sem stuðlar að og eflir áhuga nemenda á námi og að þeir nái sem bestum árangri á öllum sviðum skólastarfsins. Stefnt er að ráðningu í stöðuna frá og með 1. nóvember næstkomandi eða eftir samkomulagi. Helstu …
Íþrótta- og tómstundastefna til umsagnar
Fræðslunefnd Dalabyggðar hefur unnið tillögu að íþrótta- og tómstundastefnu. Óskað er eftir umsögnum og ábendingum sem sendist á netfangið dalir@dalir.is ekki síðar en 21. september nk. Tillöguna má nálgast hér: Íþrótta og tómstundastefna – Drög til umsagnar
Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára
Unglingar 15-17 ára sem eru í framhaldsskólum eiga rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi. Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning og umsóknareyðublöð má finna hér: Reglur – Eyðublað Umsóknir berist til skrifstofu Dalabyggðar eða á netfangið dalir@dalir.is. Fylla þarf út umsóknareyðublað, senda með afrit af húsaleigusamningi og staðfestingu á skólavist. Umsókn skal berast fyrir 15. þess mánaðar sem …
Nýtt fyrirkomulag í sorphirðu
Nú stendur yfir útboð á sorphirðu í Dalabyggð. Í útboðinu felst meðal annars að á næsta ári verður tekið upp nýtt sorphirðukerfi í Dalabyggð, svokallað þriggja tunnu kerfi sem á að tryggja skilvirkari flokkun. Í þéttbýli munu verða settar upp tvær sorptunnur til viðbótar þeim sem fyrir eru. Í dreifbýli verða settar upp þrjár tunnur við hvert heimili og lögbýli. …
Búðarbraut lokuð fyrir umferð
Vegna bilunar á vatnsveitu er Búðarbraut lokuð fyrir umferð fyrir miðju, á meðan unnið er að viðgerð. Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki í kvöld.
Skátafélagið Stígandi – haust 2020
Skátastarf í Dalabyggð hefst að nýju eftir sumarfrí í fyrstu viku septembermánaðar. Drekaskátar = börn fædd 2011 – 2012 (3. og 4. bekkur) hafa fundi á þriðjudögum klukkan 16.00 – 17.30 og byrja 1. september. Aukafundir og viðburðir verða auglýstir sér. Þátttökugjald er 12.000 krónur. Fálkaskátar = börn fædd 2008 – 2010 (5. – 7. Bekkur) og Dróttskátar = ungmenni …
Söfnun og flutningur á dýrahræjum í Dalabyggð
Sveitarfélagið Dalabyggð óskar eftir tilboðum í söfnun og flutning á dýrahræjum til förgunar frá þeim sem eru með skráð búfé í Dalabyggð. Fyrirhugað er að gera þriggja (3) ára samning við einn aðila um framkvæmd verksins. Nánari upplýsingar, gögn og annað varðandi tilboðsgerð má nálgast á skrifstofum Dalabyggðar kl. 9:00-13:00 á virkum dögum eða með því að senda fyrirspurn á …
Styrkir til gerðar viðskiptaáætlana
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) auglýsa eftir umsóknum frá frumkvöðlum og starfandi fyrirtækjum um styrki til að vinna viðskiptaáætlun um nýsköpunarverkefni. Veittir verða fimm styrkir að fjárhæð 500.000kr.- hver til kaupa á ráðgjöf við að vinna fullmótaða viðskiptaáætlun. Sjá nánar á vef SSV eða með því að smella HÉR.
Göngur og réttir í Dalabyggð 2020
Við viljum byrja á að árétta atriði í nýútgefnum leiðbeiningum um göngur og réttir vegna COVID-19: Vegna fjöldatakmarkana er mælst til þess að gestir komi ekki til réttarstarfa. Því verður fylgt strangt eftir að við réttarstörf séu ekki fleiri en 100 manns. Börn fædd 2005 eða síðar eru undanskilin fjöldatakmörkun. Hliðvarsla verður við aðkeyrslu að réttum og þangað inn verður …