Jólaljósasamkeppnin í fullum gangi

DalabyggðFréttir

Nú sem síðastliðin ár verður samkeppni um flottustu jólaskreytinguna í Dalabyggð. Dómnefnd fer um Dalina milli jóla og nýárs og velur einn sveitabæ og eitt hús í Búðardal úr fjöldanum og verður ekkí auðvelt valið þetta árið þar sem menn hafa verið duglegir að skreyta. Nefndin

Nýtt jólalag á Dalavefnum

DalabyggðFréttir

Nú er ekki lengur bara „Heim í Búðardal“ heldur „Jól í Búðardal“ Það geta allir hlustað á jólalag þeirra systkina Írisar og Þorgríms hér á vefnum. Um undirleik og söng sér Íris Guðbjartsdóttir.

Jólatrésala í Daníelslundi

DalabyggðFréttir

Slysavarnadeild Þverárþings og Björgunarsveitin Heiðar í samvinnu við Skógræktarfélag Borgarfjarðar verða með jólatrésölu í Daníelslundi laugardaginn 20.des og sunnudaginn 21.des kl 12-16. Björgunarsveitarmenn verða á staðnum til aðstoðar fólki við að velja sitt eigið jólatré í skóginum og fella það. Björgunarsveitin sér um að pakka trjánum í net. Allir velkomnir

Sögufélagið með upplestur í Leifsbúð

DalabyggðFréttir

Upplestur á aðventu Sögufélag Dalamanna stendur fyrir upplestrarkvöldi í Leifsbúð næstkomandi miðvikudag 17. desember kl. 20:00. Félagar úr sögufélaginu munu lesa sögur og ljóð úr ýmsum áttum. Boðið verður uppá léttar veitingar gegn vægu verði. Nú er tilvalið að taka örstutt hlé frá jólaundirbúningi, drífa sig í Leifsbúð og hitta mann og annan. Stjórnin

Góð mæting á tónleika í Hjarðarholtskirkju

DalabyggðFréttir

Það er óhætt að segja að Dalamenn hafi verið ánægðir með jólagjöfina frá óþekkta aðdáandanum, sem tók forskot á jólin og bauð upp á aðventutónleika í Hjarðrarholtskirkju um helgina. Af 710 íbúum Dalabyggðar þá mættu um 180 manns, eða um 25% íbúanna. Þá var aðventustemning og góð mæting í Leifsbúð þar sem nokkrir jólaenglar voru með fjáröflun fyrir mæðrastyrksnefnd með …

Jólagjöf til Dalamanna

DalabyggðFréttir

Aðventutónleikar Verða haldnir í Hjarðarholtskirkju sunnudaginn 14. desember Á dagskrá verður fjölbreytt jóla- og aðventutónlist Flytjendur eru Sigrún Hjálmtýsdóttir, „Diddú“ sópran Gissur Páll Gissurarson tenór, auk hljómsveitar undir stjórn Hjörleifs Valssonar. Hjómsveitina skipa Hjörleifur Valsson og Helga Steinunn Torfadóttir á fiðlur, Laufey Pétursdóttir á víólu, Örnólfur Kristjánsson á selló, Jóhannes Gerorgsson á kontrabassa, Marion Herrera á hörpu og Hilmar Örn …

Krabbameinsfélag Breiðfirðinga

DalabyggðFréttir

FréttatilkynningFrá Krabbameinsfélagi Breiðfirðinga Á stjórnarfundi í Krabbameinsfélagi Breiðfirðinga 4.des. s.l.sem haldinn var í Búðardal, afhenti Jóna Valgerður Kristjánsdóttir félaginu 75.000,- kr að gjöf til minningar um eiginmann sinn Guðmund H. Ingólfsson sem lést úr krabbameini árið 2000, en hefði orðið 75 ára 6. okt. s.l. Jafnframt færði hún félaginu þakkir fyrir að hafa gefið út jólakort með vatnslitamyndum sem Grétar …

Fundur í sveitarstjórn Dalabyggðar

DalabyggðFréttir

37. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 9. desember nk. í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal og hefst kl. 13:00 (athugið breyttan fundartíma) Dagskrá:1. Fundargerð sveitarstjórnar frá 2. desember 2008. 2. Fundargerð byggðarráðs frá 2. desember 2008.3. Fundargerð fræðslunefndar frá 1. desember 2008. 4. Bréf frá sýslumanninum í Búðardal, dagsett 2. desember sl., þar sem óskað er eftir umsögn vegna reksturs veitingastaðar …

Jólalegt í Dalabyggð

DalabyggðFréttir

Nú hafa ljósin á jólatrénu verði tendruð, skreytingar komnar upp víðsvegar í Dölum og eitthvað sást til jólasveina þar í gær. Þessar mynd tók Toni þegar kveikt var á jólatrénu við Dalabúð. Fleiri myndir hér

SÆLINGSDALSTUNGA til leigu og/eða sölu

DalabyggðFréttir

Búskapur og/eða önnur starfsemi: Hluti jarðarinnar Sælingsdalstungu (ekki frístundasvæði né fjalllendi) er til leigu eða sölu. Um er að ræða 270 hektara jörð sem getur hentað til búskapar, ferðaþjónustu eða sambærilegrar starfsemi. Tilboðsgjafar skulu í tilboðum sínum gera grein fyrir þeirri starfsemi sem þeir hyggjast stunda á jörðinni en hún skal samræmast þeirri starfsemi sem er í næsta nágrenni og …