Heyrúlluplast

Íslenska Gámafélagið er viðurkenndur þjónustuaðili Úrvinnslusjóðs fyrir söfnun á heyrúlluplasti til endurvinnslu. Hér eru leiðbeiningar Gámafélagsins um frágang á heyrúlluplasti.
Góður frágangur og hreinleiki eru forsendur þess að hægt sé að endurvinna plastið. Rúlluplasti er reglulega safnað hjá bændum en nákvæmar dagsetningar eru birtar í sorphirðudagatali sem má sjá hér:

Litaflokkun:
Rúlluplast skal flokkað í þrjá flokka.

Hvern lit á að setja í sér bagga. Ekki má setja rúlluplastið í poka af neinni tegund.

  • Hvítt
  • Svart
  • Grænt og aðrir litir (t.d. bleikt og blátt).

Frágangur:

  • Hrista hey og annað lauslegt úr plastinu.
  • Taka frá net og baggabönd og setja með almennu sorpi.
  • Hafa plastið hreint til að hægt sé að endurvinna það. Ef plastið er blautt og skítugt er æskilegt að þurrka plastið í 1-2 daga og hrista það síðan til að losa öll aðskotaefni af plastinu.
  • Þjappa plastinu saman í viðráðanlegar einingar/bagga (EKKI í stórsekki).
  • Geyma heyrúlluplastið á aðgengilegum stað fyrir starfsmann ÍGF þegar það er sótt. Mikilvægt að velja stað þar sem plastið helst hreint og þurrt.
  • Rúllunet- og bönd skal flokka frá og verða þau tekin með við losun á almennu tunnunni. Þau skulu vera í glærum handhægum pokum og vera hjá ílátinu fyrir blandaða úrganginn við hirðingu.

 

Áburðarsekkir:
Gámafélagið tekur við stórsekkjum í sömu ferð rúlluplastið. Þeir skulu vera hreinir og settir í einn sekk með lokað fyrir (ekki stakir eða bundnir saman). Sekkirnir eru þannig auðveldlega greindir frá rúlluplastinu eftir losun.

Ekki má skila rúlluplasti pökkuðu í stórsekki.
Ítarefni
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei