Héraðsbókasafn – sumaropnun

DalabyggðFréttir

Héraðsbókasafn Dalasýslu verður eingöngu opið á þriðjudögum kl. 14-18 frá 1. júní til 15. ágúst. Lokað verður á fimmtudögum á sama tíma, þ.e. 1. júní – 15. ágúst þegar nýir vetraropnunartímar taka gildi.

Bátadagar á Breiðafirði

DalabyggðFréttir

Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar (FÁBB) gengst fyrir sjöttu bátahátíð súðbyrtra trébáta á Breiðafirði 6. – 7. júlí í sumar. Þáttakendur safnast saman með báta sína á Reykhólum föstudaginn 5. júlí og farið verður yfir leiðarlýsinguna. Laugardaginn 6. júlí verður siglt frá Reykhólahöfn kl. 10 og siglt með Reykjanesi um Staðareyjar og inn Þorska-, Gufu- og Djúpafirði. Áð við Teigsskóg …

Tónleikar Auðarskóla

DalabyggðFréttir

Fimmtudaginn 16. maí verða lokatónleikar tónlistardeildar Auðarskóla í Dalabúð kl. 17. Allir eru velkomnir.

Bæjarhreinsun í Búðardal

DalabyggðFréttir

Árleg bæjarhreinsun skátafélagsins Stíganda verður í Búðardal fimmtudaginn 16. maí með mætingu við Dalabúð kl. 15:30. Skipt verður upp í hópa og gengið á alla staði í þorpinu og meðfram veginum að ristahliðum. Gott er að hafa fullorðna með í hverjum hóp. Áhugasamir íbúar geta líka mætt og tekið sérstök svæði. Á staðnum verða einnota hanskar og plastpokar. Gott er …

Sumarstörf hjá Dalabyggð

DalabyggðFréttir

Sumarstörf hjá Dalabyggð eru laus til umsóknar. Á Silfurtúni vantar í afleysingar, flokkstjóra í vinnuskólann og unglinga í vinnuskólann. Vinnuskóli Dalabyggðar Vinnuskólinn verður starfræktur frá 10. júní til 31. júlí og er fyrir unglinga fædda árin 1997 – 2000. Daglegur vinnutími verður kl. 8-12 og 13-15 fimm daga vikunnar fyrir elstu börnin en fjóra fyrir hin yngri. Umsóknareyðublöð má finna …

Sveitarstjórn Dalabyggðar 101. fundur

DalabyggðFréttir

101. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 14. maí 2013 og hefst kl. 18. Dagskrá Almenn mál 1. 1304007 – Ársreikningur 2012 Fundargerðir til staðfestingar 2. 1304029 – Fundargerð fjallskiladeildar Suðurdala frá 2. apríl 2013 3. 1304003F – Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar – 43 3.1. 1302024 – Umsókn um stofnun lóðar úr landi Ljárskóga 3.2. 1304026 …

Hætt við fiskþurrkun í Búðardal – upplýsingafundi aflýst

DalabyggðFréttir

JHS Trading ehf hefur tilkynnt sveitarstjórn að fyrirtækið hafi horfið frá áformum um að koma upp fiskþurrkun í Búðardal. Áhugafólk um framtíð Búðardals hefur aflýst upplýsingafundi er átti að fara fram í Dalabúð í dag 8. maí. Í tölvubréfi JHS Trading kemur m.a. fram að eigandi hitaveitunnar Rarik, geri kröfur um að fyrirtækið leggi fram ábyrgðir vegna framkvæmda sem Rarik …

Dagur aldraðra á Silfurtúni

DalabyggðFréttir

Fimmtudagurinn 9. maí er uppstigningardagur og er hann jafnframt sérstaklega helgaður öldruðum í kirkjunni. Af því tilefni verður messa á Silfurtúni kl. 13:30. Kaffi verður í boði Kvenfélagsins Þorgerðar Egilsdóttur. Sama dag sýna íbúar Silfurtúns sýnis handverk vetrarins. Allir eru velkomnir á Silfurtún á degi aldraðra.

Fundur um sláturhúsið í Búðardal

DalabyggðFréttir

Áhugafólk um framtíð Búðardals hefur boðað til upplýsingafundar í Dalabúð miðvikudaginn 8. maí kl. 20:30 um starfsemi sambærilega þeirri sem fyrirhuguð er í sláturhúsinu í Búðardal. Mikil umræða hefur verið um sölu sláturhússins undanfarnar vikur og fyrir liggja drög að starfsleyfi JHS Trading ehf. fyrir hausaverkun í húsinu. Á fundinum verður sambærileg starfsemi kynnt og einnig munu þau fyrirtæki sem …

Tillaga að starfsleyfi

DalabyggðFréttir

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefur auglýst tillögu að nýju starfsleyfi fyrir fiskþurkkun JHS Trading ehf. að Ægisbraut 2-4 í Búðardal. Samanber ákvæði reglugerðar nr. 785/1999 um atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun. Tillagan mun liggja frammi á skrifstofu Dalabyggðar og á vef Dalabyggðar frá 2. maí til 31. maí þar sem hægt verður að skoða hana og koma með …