Afgreiðsla sýslumannsins á Vesturland í Búðardal verður lokuð vikuna 22.-26. júlí 2019.
Sögurölt – Staður í Steingrímsfirði
Fimmtudaginn 18. júlí kl. 19:30 verður vikulegt Sögurölt á dagskránni, en Byggðasafn Dalamanna og Sauðfjársetur á Ströndum standa fyrir þeim viðburðum í samvinnu við fleiri. Nú verður gengið um holt og hæðir við Stað í Steingrímsfirði, auk þess sem kirkjugarðurinn og Staðarkirkja verða skoðuð. Yfirdrifið er af sögum og sögnum sem tengjast bænum og kirkjunni. Mæting er heima á Stað.
Skrifstofa Dalabyggðar
Vegna sumarleyfa verður skrifstofa Dalabyggðar lokuð frá 8. júlí til 19. júlí. Svarað verður í síma Dalabyggðar 430 4700 eins og venjulega kl. 9 – 13.
Sögurölt – Heinaberg
Næsta sögurölt Sauðfjárseturs á Ströndum og Byggðasafns Dalamanna verður þriðjudaginn 9. júlí kl. 19:30 frá bæjarhlaðinu á Heinabergi. Þar verður rölt um jörðina, lífið í fjörunni kannað, stuðlaberg og annað það sem náttúran býður uppá það kvöldið. Þá verða sagðar sögur af kvenskörungum, bardögum, harðindum, búvísindum, sauðaþjófum og öðru markverðu og minna markverðu sem tengist sögu Heinabergs. Leiðsögn er í …
Deiliskipulag í Búðardal
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 13. júní 2019 að endurauglýsa tillögu að deiliskipulagi í Búðardal skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið er um 3,5 ha að stærð og nær yfir Bakkahvamm, Lækjarhvamm og nýja götu sem fær nafnið Efstihvammur. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir lóðum fyrir einbýlis-, par- …
Kynning á vindorkugarði í landi Sólheima
Vegna vinnu við tillögu að matsáætlun vindorkugarðs í landi Sólheima í Dalabyggð mun Quadran Íslandi halda kynningarfundur fyrir íbúa í Dalabúð, Búðardal, mánudaginn 8. júlí 2019 kl: 20:00. Fjallað verður um stöðu undirbúnings og mat á umhverfisáhrifum verkefnisins. Boðið verður upp á kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Víðidalsá og Bugastaðir
Þriðjudagskvöldið 2. júlí verður farið í vikulegt sögurölt sem Sauðfjársetur á Ströndum og Byggðasafn Dalamanna standa fyrir í sumar. Að þessu sinni verður gengið við bæinn Víðidalsá við Steingrímsfjörð á Ströndum, sagðar sögur og skoðaðar minjar, nátthagi, dys og eyðibýlið Bugastaðir sem fór í eyði snemma á öldum. Sögumaður er Jón Jónsson þjóðfræðingur. Mæting er á hlaðinu á Víðidalsá, …
Ólafsdalur – sumaropnun 2019
Opið verður í Ólafsdal er frá 22. júní til 18. ágúst í sumar. Opnunartímar eru kl. 12-17. Sýning um skólann í Ólafsdal er á fyrstu hæð og sýning um konurnar í Ólafsdal á annarri hæð, auk myndbandssýningar. Kaffi, rjómavöfflur og Erpsstaðaís til sölu á staðnum og ókeypis svaladrykkir fyrir börnin. Þá er til sölu lífrænt ræktað grænmeti til sölu úr …
Tónleikar: Dúó Stemma
Dúó Stemma verður með tónleika á Nýp á Skarðsströnd fimmtudaginn 4. júlí kl. 20:30. Efnisskráin er fjölbreytt. Hljóðfærin eru hefðbundin jafnt sem heimatilbúin; raddir, víóla, marimba, íslensk steinaspil ofl. Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari mynda Dúó Stemmu. Bæði eru þau eru hljóðfæraleikarar í Sinfóníuhljómsveit Íslands, en meðfram starfi sínu þar hafa þau sett saman margskonar …
Jazztónleikar á Laugum
Miðvikudagkvöldið 3. júlí kl. 20:30 verða jazztónleikar á Hótel Eddu á Laugum í Sælingsdal. Þar spila Dalamaðurinn Tómas R. Einarsson kontrabassaleikari, Ómar Guðjónsson gítarleikari og saxófónleikarinn Óskar Guðjónsson. Tómas og Ómar hafa haldið tónleika á Laugum mörg undanfarin sumur og fengið til sín ýmsa gesti, Sigríði Thorlacius, Mugison og í fyrra þýska trommuleikarann Tommy Baldu, en saxófónleikarinn Óskar hefur …