Fréttir.

29.09.2011

Aðalfundur SDS

Aðalfundur Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu verður haldinn í Leifsbúð í Búðardal laugardaginn 8. október kl. 17. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Að fundi loknum verður borinn fram veglegur kvöldverður og skemmtiatriði. Félagsmenn þurfa að tilkynna þátttöku hjá trúnaðarmanni eða hafið samband við skrifstofu félagsins með a.m.k. viku fyrirvara. Síminn á skrifstofu er 436 1077 og netfangið dalaogsnae@gmail.com.
Skoða betur
27.09.2011

Félagsstarf eldri borgara

Félag eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi verður að vanda með öflugt starf nú á haustmánuðum. Eitthvað um að vera flesta virka daga vikunnar. Á mánudögum er gönguferð sem endar í Rauða Kross húsinu með kaffisopa og spjalli kl. 10:30-11:30. Á þriðjudögum er samvera í Rauða Kross húsinu frá kl. 13.30, utan þriðjudagsins 18. október þegar hún verður í Króksfjarðarnesi.
Skoða betur
22.09.2011

Ungmennabúðir á Laugum

Ungmennabúðirnar á Laugum eru nú með nýja heimasíðu og er þar hægt að kynna sér starfsemina. Auk fb-síðunnar. Vetrarstarfsemin er nú hafin og fyrstu skólarnir komnir. Nýr ævintýra- og þrautagarður var settur upp í sumar af sjálfboðaliðum, auk annarra endurbóta á staðnum. Auk starfseminnar á Laugum er farið í Erpsstaði, Eiríksstaði og Stóra-Vatnshorn.
Skoða betur
22.09.2011

Réttarmyndir

Nýjar myndir frá Tona úr réttum síðustu daga má nú finna í myndasafninu.
Skoða betur
13.09.2011

Félagsleg liðveisla

Starfsmaður óskast í félagslega liðveislu í Búðardal. Vinnutími er mánudaga-fimmtudaga kl. 15-17 og þrjá föstudaga í mánuði kl. 12-17. Starfshlutfall er um 27%. Laun skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og SDS. Ráðið verður í starfið frá 19. september 2011 eða eftir samkomulagi. Umsóknir sendist á netfangið sveitarstjori@dalir.is eða á skrifstofu Dalabyggðar, bt. sveitarstjóra, Miðbraut 11, 370 Búðardal. Nánari upplýsingar veitir
Skoða betur
13.09.2011

Réttarball í Tjarnarlundi

Eins og jafnvel hinir elstu menn muna voru haldin alræmd réttarböll í Tjarnarlundi um réttarhelgina. Með breyttri starfsemi verður sá menningarviðburður aftur upp tekinn nú í haust. Réttarball verður sem sagt haldið í Tjarnarlundi laugardaginn 17. september kl. 23 með hljómsvetinni Mónó.Miðaverð er 2.000 kr. og aldurstakmark 16 ára.
Skoða betur
12.09.2011

Tómstundir haust 2011

Tómstundabæklingur fyrir Dalabyggð haustið 2011 er nú komin út. Sami háttur verður hafður á og síðastliðið vor að hann er eingöngu gefinn út hér á vefnum. Má finna hann undir liðnum Mannlíf hér að ofan. Leiðréttingum, viðbótum og öðrum athugasemdum skal komið til Svölu Svavarsdóttur.
Skoða betur
08.09.2011

Fjallskil 2011

Fjallskilanefndir hafa nú allar skilað fjallskilaseðlum og er hægt að nálgast þá undir liðnum fjallskil í stjórnsýsluhlutanum. Einnig er hægt að nýta sér flýtileiðir hér til hægri. Almennt eru fyrsta leit laugardaginn 17. september og réttir helgina 17.-18. september. Önnur leit er laugardaginn 1. október og skilaréttir helgina 1.-2. október. Réttir í Dalabyggð 2011 Lögrétt Dagsetning Kl. Réttarstjóri Kirkjufellsrétt 17.
Skoða betur
08.09.2011

Ólafsdalsnámskeið

Nú er námskeiðum á vegum Ólafsdalsfélagsins lokið. Þátttaka var góð og tókust þau á allan hátt með ágætum. Á námskeiðunum var blanda af heimamönnum og lengra að komnum að læra um grænmeti, söl, þang, ostagerð og hleðslur. Í myndasafni má sjá myndir frá námskeiði í grjót- og torfhleðslu. Myndirnar tók Steinþór Logi Arnarsson í Stórholti og Rögnvaldur Guðmundsson formaður Ólafsdalsfélagsins.
Skoða betur
05.09.2011

Kómedíuleikhúsið

Haustleikferð Kómedíuleikhússins hefst í Leifsbúð föstudaginn 9. september kl. 20. Sýnd verða leikritin „Jón Sigurðsson strákur að vestan“ og „Bjarni á Fönix“. Aðgangseyrir er 1.900 kr. Jón Sigurðsson strákur að vestan Sómi Íslands sverð og skjöldur. Frelsishetjunna Jón Sigurðsson frá Hrafnseyri þekka allir og þá einkum afrek hans í Danaveldi. En hver var Jón Sigurðsson og hvaðan kom hann? Hvað
Skoða betur
30.08.2011

Réttir í Ljósmyndasafni Reykjavíkur

Á sýningunni Réttir í Ljósmyndasafni Reykjavíkur er að finna myndir eftir Hjalta Sigfússon teknar á síðustu árum í réttum í Haukadal af bændum, búfénaði og aðkomumönnum. Sýningin er opin virka daga frá 26. ágúst – 19. október, kl. 12–19 og um helgar frá 13–17. Hjalti vann ljósmyndasamkeppni sem haldin var á vegum Flikr@Iceland, Höfuðborgarstofu og Menningarnótt 2010. Í verðlaun hlaut
Skoða betur
30.08.2011

Aðalfundur SBK

Aðalfundur Sambands breiðfirskra kvenna verður haldinn þriðjudaginn 30. ágúst kl. 20 í félagsheimilinu Staðarfelli. Fundarefni 1. Venjuleg aðalfundarstörf. Fundargerð aðalfundar 2010 Skýrslur kvenfélaga. Skýrsla stjórnar og orlofsnefndar Reikningar ársins 2010 Stjórnarkosning. Kjósa skal gjaldkera og eina konu í varastjórn til þriggja ára. 2. Um orlof húsmæðra og framtíð SBK. 3. Önnur mál. 4. Kaffiveitingar í boði Hvatarkvenna. 5. Erindi um
Skoða betur
Fréttir.