Fréttir.

28.08.2011

Grjóthleðslur og ostar

Næstu helgi eru tvö námskeið á vegum Ólafsdalsfélagsins. Á laugardag og sunnudag verður grjót- og torfhleðslu í Ólafsdal. Og á laugardag verður ostagerð og slowfood í Tjarnarlundi. Grjót- og torfhleðsla Helgina 3.-4. september stendur Ólafsdalsfélagið fyrir námskeiðinu Grjót- og torfhleðsla í Ólafsdal. Á tíma bændaskólans voru í Ólafsdals hlaðnir umfangsmiklir grjótgarðar um tún, en einnig falleg tröð heim að húsunum
Skoða betur
23.08.2011

Göngudagur Æskunnar

Árlegur göngudagur Æskunnar verður laugardaginn 27. ágúst. Um kvöldið verður síðan töðugjaldagrill í Árbliki. Gengið verður fram Austurárdal í Miðdölum. Gangan hefst kl. 13 við þjóðveg 60 hjá Austurá. Leiðin er frekar stutt og lárétt og hentar því ungum sem öldnum. Þeir sem vilja lengri göngu geta gengið heim Beigaldadal og Bæjargil. Á leiðinni er skógrækt, berjaland, fallegt stóð og
Skoða betur
22.08.2011

Tónleikar í Skarðskirkju

Guðrún á Klifmýri stendur annað árið í röð fyrir tónleikum í Skarðskirkju og verða þeir laugardaginn 27. ágúst kl. 20-21. Ekki hefur verið leiðinlegt í fyrra því Stofubandið var sérstaklega stofnað til að spila á þessum tónleikum. Er það að hluta skipað þeim sömu og spiluðu á tónleikunum í fyrra. Á dagskrá eru íslensk og erlend þjóðlög. Aðgangur er ókeypis
Skoða betur
22.08.2011

Tómstundabæklingur

Nú er komið að því að útbúa “Tómstundabækling” fyrir haust 2011 í Dalabyggð. Allir sem verða með námskeið eða atburði eru hvattir til að senda inn svo að framboðið sé allt á einum stað. Bæklingurinn fer ekki í póst að þessu sinni heldur verður hann auglýstur á vef sveitarfélagsins í lok ágúst. Skilafrestur er til föstudagsins 26. ágúst.Eftirfarandi þarf að
Skoða betur
19.08.2011

Auðarskóli – verkfall leikskólakennara

Félag leikskólakennara hefur boðað til verkfalls mánudaginn 22. ágúst næstkomandi, hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Ef af boðuðu verkfalli verður, lokar Álfadeild leikskóla Auðarskóla frá og með þeim tíma. Bangsadeild og önnur starfssemi leikskólans verður með óbreyttum hætti. Vel verður fylgst með framvindu verkfallsins og hugsanlegum ágreiningsmálum með veitta þjónustu leikskólans í huga. Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri
Skoða betur
18.08.2011

Tómas á Laugum

Einstakir tónleikar Tómasar R. Einarssonar voru haldnir á Laugum s.l. fimmtudag. Björn Anton var á staðnum og sendi okkur myndir sem birtar eru í myndasafninu.
Skoða betur
16.08.2011

Barnamót HSS

Héraðssamband Strandamanna (HSS) hefur boðið Ungmennasambandi Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN) að taka þátt í Barnamóti HSS sem verður haldið á Drangsnesi sunnudaginn 21. ágúst kl. 14. Keppnisgreinar Börn 8 ára og yngri 60 metra hlaup boltakast langstökk 60 metra hlaup boltakast langstökk Börn 11-12 ára 60 metra hlaup kúluvarp spjótkast langstökk hástökk Framkvæmdastjóri HSS, Arnar S. Jónsson, tekur á móti
Skoða betur
16.08.2011

Íslandsmeistaramót í hrútadómum

Níunda Íslandsmeistaramótið í hrútadómum verður haldið laugardaginn 20. ágúst kl. 14 í Sauðfjársetrinu Sævangi. Hrútadómarnir fara þannig fram að Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur og dómnefnd meta fjóra íturvaxna hrúta með nútíma tækjum og tólum og raðar þeim í gæðaröð. Síðan reyna keppendur sig við matið á hrútunum með hendur og hyggjuvit að vopni og reyna að komast að sömu niðurstöðu
Skoða betur
16.08.2011

Dalabríarí 2011

Dalabríarí verður haldið í annað sinn sunnudaginn 21. ágúst kl. 20:30 á Hótel Eddu að Laugum í Sælingsdal. Dalabríarí er skemmtidagskrár með matarívafi. Að þessu sinni verður smurbrauðsþema og matreiðslan undir stjórn Jakobs Jakobssonar veitingamanns, oftast er kenndur við Jómfrúna í Lækjargötu. Tónlistin verður í höndum Grétars Örvarssonar, Siggu Beinteins og Ólafs Þórarinssonar (Labba í Mánum). Veislustjóri verður Ólafía Hrönn
Skoða betur
15.08.2011

Söl og sushi

Laugardaginn 20. ágúst kl. 15-18:30 stendur Ólafsdalsfélagið fyrir námskeiðinu Sölvafjara og sushi. Kynnt verður nýting sölva og þara eins og hún var í Ólafsdalsskólanum á 19. öld. Einnig verður kynnt hugmyndafræði Slowfood-hreyfingarinnar. Gengið í sölvafjöru og safnað þangi, þara og sölvum. Sýnikennsla og kynning á hugmyndafræði og aðferðum Sushi. Á sama tíma verður barnanámskeið um ströndina, þang og þara, farið
Skoða betur
15.08.2011

Moses Hightower

Stofutónleikar hljómsveitarinnar Moses Hightower verða að Nýp á Skarðsströnd fimmtudaginn 18. ágúst kl. 20:30. Íslenski sálarkvartettinn Moses Hightower sló óvænt í gegn á síðasta ári með Búum til börn. Textar og tónlist sveitarinnar er öll frumsamin. Hljómsveitina skipa þeir Andri Ólafsson sem syngur og spilar á bassa, Daníel Friðrik Böðvarsson gítarleikari, Magnús Trygvason Eliassen á slagverk og Steingrímur Karl Teague
Skoða betur
12.08.2011

Ólafsdalshátíð 2011

Ólafsdalshátíð á sunnudag tókst afbragðsvel í góðu veðri. Daginn áður var haldið vel sótt námskeið „Grænmeti og góðmeti“ og þar var einnig dagská fyrir börn þátttakenda. Stjórn Ólafsdalsfélagsins vill þakka bæði þeim sem styrktu félagið með því að gefa vinninga og þeim sem keyptu miða í happdrættinu á Ólafsdalshátíðinni. Þetta er annað árið sem félagið stendur fyrir happdrætti á Ólafsdalshátíð
Skoða betur
Fréttir.