10.08.2011Héraðsbókasafn Héraðsbókasafnið verður lokað á fimmtudögum í ágúst. Opnunartímar á þriðjudögum verða óbreyttir, kl. 15-19.Skoða betur
09.08.2011Guðþjónusta og helgiganga Á sunnudaginn verður helgiganga kl. 12.30 og guðþjónusta kl. 14 í Dagverðarnesi. Gengið verður í helgigöngu frá kirkjunni með keltneskan sólarkross í nágrenni hennar. Sr. Óskar Ingi Ingason sóknarprestur og sr. Gunnþór Þ. Ingason prestur á sviði þjóðmenningar leiða helgistundir við Altarishorn og Kirkjuhóla. Starfshópur þjóðkirkjunnar um helgistaði á föruleiðum og Dagverðarnessókn standa að göngunni. Allir eru velkomnir. Árleg guðsþjónustaSkoða betur
09.08.2011Héraðsmót UDN Árlegt hérðasmót UDN í frjálsum íþróttum verður laugardaginn 13. ágúst, kl. 10:30 á vellinum í dalnum í Búðardal. Keppt verður í hefðbundnum greinum og aldursflokkum eins og verið hefur. Skráningar skulu sendast til Hönnu Siggu á netfangið hannasigga@audarskoli.is og berast fyrir miðnætti miðvikudaginn 10. ágúst. Sem fyrr er þess vænst að einhverjir gefi sig fram sem starfsmenn á mótinu ogSkoða betur
08.08.2011Grafarlaug Nú eru hafnar endurbætur á Grafarlaug. Verið er að slá upp og undirbúa að steypa innan á gömlu veggina. Öll aðstoð er vel þegin og eru áhugasamir beðnir að hafa samband við Finnboga á Sauðafelli, símar 434 1660 / 897 9603. Ungmennafélagið ÆskanSkoða betur
08.08.2011Fréttir af UDN Alls tóku 30 keppendur frá UDN þátt í Unglingamóti UMFÍ á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina. Þeim fylgdu 18 fjölskyldur sem dvöldu saman í góðu yfirlæti og í góðu nábýli við granna sína af Vesturlandi á tjaldsvæðinu. Ljóst er að samstarf og samhugur Vestlendinga er að aukast mikið á þessu sviði og er það vel, vonumst við eftir að það eigi eftirSkoða betur
08.08.2011Drottningar í einn dag …. Laugardaginn 6. ágúst var hin árlega kvennareið Daladrottninga haldin í tuttugasta skiptið. Var það að vísu einu ári á eftir áætlun sökum hrossapestarinnar 2010. Að þessu sinni var farið um Hvammssveit í blíðskaparveðri. Það voru um 100 konur sem söfnuðust saman í Sælingsdalstungu um hádegisbil og hestar gerðir klárir. Lagt var af stað á slaginu eitt og riðið upp TungumúlaSkoða betur
08.08.2011Tómas R. á Laugum Dalamaðurinn og bassaleikarinn Tómas R. Einarsson og slagverksleikarinn Matthías MD Hemstock munu flytja lagaflokk Tómasar, Streng, á Hótel Eddu Laugum fimmtudaginn 11. ágúst, kl. 21. Auk bassa og slagverks fléttast fjölbreytileg vatnshljóð saman við tónlistina ásamt vídeóum. Tómas R. ólst upp á Laugum og hljóðritaði vatnshljóð þar í nágrenninu sem er að finna í verkinu. Strengur er óður Tómasar tilSkoða betur
05.08.2011Sveitarstjórn Dalabyggðar 76. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn miðvikudaginn 10. ágúst 2011 og hefst kl. 17:00 á Hótel Eddu að Laugum í Sælingsdal. Dagskrá 1. Skýrsla sveitarstjóra Fundargerðir til staðfestingar 2. Fundargerð 92. fundar byggðarráðs frá 7.7.2011 3. Fundargerð 93. fundar byggðarráðs frá 2.8.2011 Mál til umfjöllunar / afgreiðslu 4. Fjallskilasamþykkt – fundargerð formannafundar fjallskilanefnda 4.8.2011 5. Embætti byggingarfulltrúa – fundargerð stjórnarSkoða betur
04.08.2011Reykhóladagar Um helgina verða haldnir Reykhóladagar með heljarinnar dagskrá. Meðal dagskráratriða er bíó, kassabílakeppni, dráttarvélaakstur, pulsupartí, spurningakeppni, sýningar, siglingar, kvöldvaka og dansleikur. Allar nánari upplýsingar og dagskrá má finna á heimasíðu Reykhólahrepps.Skoða betur
02.08.2011Ólafsdalshátíð Árleg Ólafsdalshátíð verður sunnudaginn 7. ágúst, kl. 13-17. Aðgangur er ókeypis, ávörp, markaður, leiksýning, sýningar og margt annað til skemmtunar. Ólafsdalur er 6 km inn með Gilsfirði sunnanverðum, vegur 690. Dagskrá 11.00 „Minjar og daglegt líf í Ólafsdal“. Fræðsluganga um Ólafsdals undir leiðsögn Guðmundar Rögnvaldssonar frá Ólafsdal. 12.30 Ólafsdalshappdrætti. Sala miða hefst, fjöldi vinninga, miðaverð er 500 kr. 13.00 RögnvaldurSkoða betur
02.08.2011Tónleikar að Laugum Fyrirhugaðir eru tvennir tónleikar á Hótel Eddu Laugum fimmtudagana 4. og 11. ágúst. Báðir tónleikarnir eru í Gyllta salnum og hefjast kl. 21. Dalabríari verður síðan sunnudaginn 21. ágúst og verður betur kynnt síðar. Fimmtudaginn 4. ágúst kl. 21 verða Eyþór Gunnarsson og Ellen Kristjánsdóttir með tónleika í Gyllta salnum á Hótel Eddu, Laugum. Munu þau flytja nokkur þekktustu lögSkoða betur
02.08.2011Námskeið Ólafsdalsfélagsins Ólafsdalsfélagið býður upp á fjögur námskeið um m.a. lífrænt grænmeti, söl, þara, sushi, ostagerð, torf- og grjóthleðslur í Ólafsdal og Tjarnarlundi í ágúst og september. Inn í námskeiðin er fléttað kynningum á hugmyndum Slowfoodhreyfingarinnar og starfsemi Bændaskólans í Ólafsdal. Á námskeiðunum nýtist lífræni matjurtagarðurinn í Ólafsdal, hráefni til ostagerðar úr nágrenninu, fjaran í Tjaldanesi og torf- og grjótgarðar sem hlaðnirSkoða betur