Vegna óviðráðanlegra aðstæðna opnar Héraðsbókasafn Dalasýslu ekki fyrr en kl.14:00 í dag, þriðjudaginn 24. janúar.
Ný heimasíða Auðarskóla
Auðarskóli í Búðardal hefur tekið í notkun nýja heimasíðu. Veffang síðunnar er audarskoli.is. Auðarskóli var stofnaður þann 1. ágúst 2009 við sameiningu allra skólastofnana í Dalabyggð. Skólinn er því samrekinn skóli með fjórar fjárhagslega sjálfstæðar deildir; leikskóla, tónlistarskóla, grunnskóla og mötuneyti. Eins og gefur að skilja er því nokkuð mikið efni sem hýst er á nýrri síðu. Uppfærsla á heimasíðunni …
Átak í asparræktun – námskeið
Mikill og vaxandi áhugi er á skógrækt í landinu og fram hefur komið að skortur er á skógarplöntum til að mæta aukinni eftirspurn. Óvíða eru betri skilyrði fyrir skógrækt en í Dalabyggð og hafa nú nokkrir aðilar tekið höndum saman um að vinna að því að koma á fót plöntuframleiðslu á svæðinu. Eitt verkefni á því sviði felst í að …
Framkvæmdir á bókasafni
Næstu daga standa yfir framkvæmdir á Héraðsbókasafni Dalasýslu sem valda því að barna- og unglingabækur verða ekki alveg jafn aðgengilegar og venjulega. Við biðjumst velvirðingar á þessum truflunum og vonumst til að geta komið öllu í samt horf sem fyrst.
Matvælasjóður opnar fyrir umsóknir 1. febrúar
Matvælasjóður opnar fyrir umsóknir 1. febrúar 2023. Heildarúthlutunarfé sjóðsins að þessu sinni 580,3 milljónir króna. Umsóknarfrestur verður til miðnættis 28. febrúar 2023. Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu. Sjóðurinn veitir styrki í fjórum flokkum: Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi, úr hugmynd yfir í …
Menningarmálaverkefnasjóður – síðasti dagur á morgun!
Menningarmálanefnd Dalabyggðar auglýsir eftir umsóknum í menningarmálaverkefnasjóð. Til úthlutunar 2023 eru 1.000.000 kr.- Hlutverk sjóðsins er að styðja við menningarmál í Dalabyggð og er það gert með því að veita styrki eftir því sem menningarmálanefnd Dalabyggðar telur þjóna markmiðum sjóðsins. Umsækjendur í sjóðinn geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir með lögheimili í Dalabyggð. Umsóknarfrestur er til og með 14. …
Félög í Dalabyggð hvött til að bregðast við
Með nýlegri lagabreytingu var ríkisskattstjóra falið að koma fram skiptum eða slitum á þeim lögaðilum sem ber að skrá raunverulega eigendur en hafa vanrækt skráningarskyldu samkvæmt lögunum. Um er að ræða nokkuð yfir 1.100 félög, þar af nokkur sem skráð eru í Dalabyggð. Skatturinn skorar á eigendur skráðra félaga um að skrá raunverulega eigendur félaganna. Verði það ekki gert á …
Íslenskunámskeið á Vesturlandi
Símenntun á Vesturlandi vekur athygli á því að íslenskunámskeið fyrir innflytjendur fara að hefjast á Vesturlandi. • Íslenska 1b í Grundarfirði hefst 12. janúar • Íslenska 2 í Ólafsvík hefst 16. janúar • Íslenska 1b í Borgarnesi hefst 17. janúar • Íslenska 2 á Akranesi hefst 23. janúar Íslenskunámskeið eru ætluð fullorðnum einstaklingum sem eru að byrja að læra íslensku …
Átak í asparræktun – auglýst eftir áhugasömum ræktendum
Mikill og vaxandi áhugi er á skógrækt í landinu og fram hefur komið að skortur er á skógarplöntum til að mæta aukinni eftirspurn. Óvíða eru betri skilyrði fyrir skógrækt en í Dalabyggð og hafa nú nokkrir aðilar tekið höndum saman um að vinna að því að koma á fót plöntuframleiðslu á svæðinu. Eitt verkefni á því sviði felst í að …
Reikningsskil vegna uppgjörs 2022
Um þessar mundir er unnið að uppgjöri ársins 2022 og verið að taka saman gögn vegna ársreiknings. Verktakar og aðrir sem hafa starfað fyrir sveitarfélagið á árinu 2022 eru beðnir um að skila reikningum á skrifstofu Dalabyggðar að Miðbraut 11 í Búðardal eigi síðar en föstudaginn n.k. þann 13. janúar. Skrifstofan er opin frá kl. 09:00 – 13:00. Ef eitthvað …