Sögustund með Bjarna Guðmundssyni fyrrverandi prófessor á Hvanneyri verður í Tjarnarlundi sunnudaginn 19. apríl.
Bjarni kemur til með að segja í máli og myndum frá verkefni um kindagötur/fjárstíga sem hann hefur unnið að um nokkurt skeið með hjálp heimildarmanna víða um land. Þar verða þessar merku menningarminjar sauðfjárræktar skoðaðar frá ýmsum sjónarhornum.
Fjárgötur geta verið eldfornar, en á hverju ári viðheldur sauðkindin götunum og myndar nýjar eftir þörfum.
Sögustundin er í boði Byggðasafns Dalamanna í samstarfi við Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu.
Allir áhugasamir eru velkomnir, ókeypis og kaffi á könnunni.
