Almyrkvi á sólu mun ganga yfir Vesturland 12. ágúst 2026. Um er að ræða sjaldgæfan náttúruatburð sem vekur mikla athygli bæði innanlands og erlendis, því má gera ráð fyrir aukinni aðsókn gesta á svæðið.
Þó óvissa ríki um veður, ferðamynstur og fjölda gesta benda fyrirliggjandi upplýsingar til þess að verulegt álag geti skapast á vegakerfi, þjónustu, fjarskipti og innviði á Vesturlandi, sérstaklega á sólmyrkvadaginn, en líka dagana í kringum atburðinn.
Samráðsvettvangur Vesturlands vegna sólmyrkva hefur verið stofnaður, vefsvæði hans má skoða hér: Samráðsvettvangur um sólmyrkva
Þegar eru farnar að berast spurningar varðandi hvernig málum verður háttað í Dalabyggð og eins hvað landeigendur, ferðaþjónar og aðrir mega gera s.s. varðandi skammtíma tjaldsvæði, bílastæði, sölu veitinga o.s.frv.
Markaðsstofa Vesturlands (MV) heldur utan um samráðsvettvanginn og hefur þegar svör við flestum þeim vangaveltum svo gott er að hafa samráð við þau. Sem dæmi má taka gjald fyrir bílastæði án frekari leyfa en sækja þarf um leyfi vegna tjaldsvæða, jafnvel þó það sé rekið til styttri tíma.
Einnig þarf ekki að „taka á móti öllum“ heldur er hægt að fá aðstoð við að komast í samband við ferðaskrifstofur sem eru að leita að aðstöðu og staðsetningu fyrir sína gesti og þjónusta þannig aðeins ákveðna aðila/hópa.
Mikilvægt er að ná til ferðaþjónustuaðila og landeigenda sem kunna að hafa aðstöðu eða áhuga á að taka á móti gestum í tengslum við almyrkvann, til dæmis með:
- bílastæðum
- tjaldsvæðum
- aðstöðu fyrir hópa
- annarri þjónustu
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í slíku samráði eru hvattir til að skrá sig hjá Markaðsstofu Vesturlands: Almyrkvi – skráning í samráð
Skráningin er ekki bindandi, heldur aðeins til að skrá áhuga á að ræða möguleika á nýtingu á aðstöðu eða landi. Markaðsstofa Vesturlands mun í framhaldi hafa samband við þá aðila sem skrá sig til frekara samráðs.
